Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 9

Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 9
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 MORGUNBLAÐIÐ 9 Kryddblanda fyrir bleikju (rub) Uppskrift er fyrir 4 1 msk. paprikuduft 1 msk. kúmmínduft 1 tsk. kóríanderduft ½ tsk. chilli-duft 1 tsk. hvít sesamfræ 1 tsk. svört sesamfræ 1 tsk. salt Öllu blandað saman 2 bleikjuflök (roðflétt og beinhreinsuð) Kryddið bleikjuna með kryddblöndunni og grillið á mjög heitu grilli í ca 1 mín á hvorri hlið. Lárperumauk 2 stk. lárperur (þroskaðar) safi úr 1 stk límónu 2 msk. grísk jógúrt 1 msk. ólífuolía Öllu blandað saman í skál og maukað með písk, smakkið til með salti Gott að setja saxaðan kóríander (má sleppa) 1 stk ferskur maís 1 stk granatepli 2 hausar hjartasalat 1 box ferskt dill (má nota aðrar jurtir). Grillið maísinn og skerið baunirnar af. Hreinsið fræin úr granateplinu. Takið salatið í sundur og skolið vel. Setjið lárperumauk í salatlaufin ásamt bleikju, maís og granateplafræjum. Klárið með pilluðu dilli og smá ólífuolíu. Grilluð bleikja í hjartasalati með lárperumauki, grilluð- um maís og granateplum Jóhannes Jóhannesson reiðir hér fram dásamlega bleikju með kryddblöndu sem er alveg upp á tíu. Bleikjan er borin fram í hjartasalati með ómótstæðilegu lárperumauki, grilluðum maís og að sjálfsögðu granateplum sem setja punktinn yfir i-ið. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Maísveisla Maísstönglar eru vinsælir á grillið enda afskaplega bragðgóðir. Hér sker Jóhannes maísinn af stönglinum. Ferskur réttur Þessi uppskrift er bæði fersk og einstaklega bragðmikil. Maítreiðslumeistarinn Jóhannes er enginn aukvisi í matargerð enda margverð- launaður matreiðslumaður og landsliðsmeðlimur. POTTAGALDRAR VIÐ GRILLIÐ Í SUMAR Með sjálfbærni og mannúð að leiðarljósi • Engin aukaefni • 100% hrein krydd Kebab kjúklingakrydd Villijurtir Eðalsteik- og grillkrydd Best á allt Víkingaolía fyrir naut og lamb Ítölsk hvítlauksolía Grísk kryddolía fyrir kjúkling og fisk Piri piri kryddolía Uppskrift að góðri matargerð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.