Morgunblaðið - 14.06.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.06.2019, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Eggert V ið fengum Alla til að grilla fyrir okkur og fyrir valinu varð hin goð- sagnakennda Tomahawk-steik sem þykir algjört sælgæti. Aðferð: Steikin tekin út klukkutíma fyrir grillun. Rétt áður er sett olía á hana og kryddað með salti, pipar og hvítlauk. Grillið hitað upp í 120 gráður og steikin sett á óbeinan hita. Leyfið steikinni að hitna hægt og rólega upp í 50 gráður. Takið þá steikina af og kyndið grillið í botn eða upp í 300 gráður. Þá er steikin brúnuð vel í mínútu á hvorri hlið til að hún fái fallegar grillrendur. Með þessu eru bornar fram mini hassel- back-kartöflur sem voru toppaðar með salti og timjan. Einnig var boðið upp á heimagerða chimi- churri-sósu sem Alla finnst ómissandi með nautakjöti auk smjörsteiktra sveppa og strengjabauna. Að lokum var beinið gull- húðað með 24 karata matargulli – en ekki hvað. Grillkóngurinn grillar með gulli Hann er einn öflugasti grillari landsins og hálf þjóðin fylgir honum andaktug í hvert skipti sem hann mundar grilltöngina því fáir hafa jafnmikla lagni á grillinu eins og Grindvíkingurinn síkáti Alfreð Fannar Björnsson – betur þekktur sem BBQ kóngurinn á Instagram. Veislumáltíð Steikin var borin fram með hasselback-kartöflum toppuðum með salti og timjan, smjörsteiktum sveppum og strengjabaunum og chimichurri sósu. 10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Auðvelt að þrífa • Má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta STÓRSNIÐUGT GRILL Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ Matargull Hér dugar ekkert hálfkák. Beinið er húðað með 24 karata matargulli eins og Alla einum er lagið. Fullkomnun Steikin er elduð upp á tíu eins og sjá má, en Tomahawk- steikin nýtur mikilla vinsælda. Grillmeistarinn Alfreð Fannar er alla jafna kallaður Alli-Tralli á samfélagsmiðlum en þar nýtur hann mikilla vinsælda.  Hafa grillið hreint. Alltaf. Gott er að hita grillið og bursta grindina áður en byrjað er að grilla og svo á eftir.  Nota kjöthita/kjarnhitamæli því það er kjarnhitinn sem segir til um hvort kjötið er til, ekki tíminn.  Leyfið kjötinu að hvíla eftir grillun.  Það má grilla allan mat – allt árið. Grill fer ekki í matgreinarálit og það má grilla kökur, vöfflur eða poppa popp.  Allt kjöt sem er í þykkari kantinum er gott að taka úr kæli nokkru áður en það er grillað svo að grillunin verði jafnari. Grillráð Alla-Tralla:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.