Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 TISSOTWATCHES .COM TISSOT, INNOVATORS BY TRADITION #ThisIsYourTime SKARTGRIPIR&ÚR SÍÐAN 1923 DEEPIKA PADUKONE. TISSOT pr 100 lady. TOP WESSELTON DIAMONDS. Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is 50 ára Bryndís er Reykvíkingur, er lög- fræðingur að mennt frá HÍ og er lögfræð- ingur hjá Sýslumann- inum á höfuðborgar- svæðinu. Maki: Benjamín Júl- íusson, f. 1970, atvinnuráðgjafi hjá Janus endurhæfingu. Börn: Arnar Freyr, f. 1993, Bára Elísabet, f. 1995, og Benjamín Þór, f. 2005. Stjúp- sonur er Alexander, f. 1995. Foreldrar: Gunnar Bachmann, f. 1939, d. 2012, rafvirki, og Bára Ragnarsdóttir, f. 1940, vann síðast sem móttökuritari. Hún er búsett í Reykjavík. Bryndís Bachmann Gunnarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ótrúlega mikil hamingja fellur þér í skaut svo lengi sem þú nærð að halda í bjartsýnina. Leyfðu breytingum að hafa sinn gang. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú nýtur þess að fegra heimilið þessa dagana. Sá tími kemur að þú munt geta sagt hug þinn allan. Veltu öllum stein- um við í leit þinni að svari. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt auðvelt með að ná sam- bandi við börn og nú er rétti tíminn fyrir leiki, skemmtanir og frí. Þín bíður skóla- bekkur í haust og þú getur ekki beðið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gefðu þér tíma til að hafa sam- band við vini og ættingja. Dagdraumar eru nauðsynlegir en varastu að dvelja of lengi í þeim. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert áhugalaus og hefur enga burði til að leysa málin þessa dagana. Sóaðu ekki tímanum í vonlaust samband. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú eins og aðrir verður að beygja þig fyrir staðreyndum hvort sem þér er það nú ljúft eða ekki. Farðu varlega í um- ferðinni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að miðla af reynslu þinni til þeirra yngri. Horfðu í kringum þig og veldu tíu hluti sem þú getur losað þig við, gefið þá eða selt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert loksins tilbúin/n að skríða út úr skel þinni og blanda geði við aðra. Samtal við makann mun skýra ým- islegt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú skalt ígrunda vel ráðlegg- ingar þeirra sem standa þér næst. Notaðu innsæi þitt öðrum til góðs og þú munt hafa meiri áhrif á gang mála en þú áttir von á. 22. des. - 19. janúar Steingeit Farðu í saumana á öllum fjár- málum og gefðu þér til þess góðan tíma. Auktu þekkingu þína, farðu á námskeið eða kynntu þér eitthvað ofan í kjölinn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gefðu þér tíma til þess að sinna vinum og vandamönnum og leita lausna á þeim vandamálum sem þeir vilja bera upp við þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver sem virðist ekki hafa áhuga á því sem þú segir mun brátt skipta um skoðun. Svaraðu skilaboðum eins fljótt og þú getur. firði í janúar um helming, í 4.700 fermetra, erum að stækka í Mos- fellsbæ um 940 fermetra og á Sel- fossi um 400 fermetra og svo eru einhverjar fleiri pælingar sem eru ekki komnar lengra. Það er nóg að hjá því. „Mitt starf hjá World Class er að sjá um uppbyggingu og þróun en konan mín er meira í daglegu amstri. Við erum að fara að stækka stöðina sem við opnuðum í Hafnar- B jörn Kristmann Leifs- son fæddist 1. júlí 1959 á Flateyri við Önundarfjörð. Æsku- slóðirnar voru Önund- arfjörður og svo var hann eitt ár í Rifi á Snæfellsnesi þegar hann var 6 ára. Björn var eitt sumar í sveit í Hrauni á Ingjaldssandi. Björn var í grunnskólanum á Flateyri og Héraðsskólanum á Núpi 1. og 2. bekk 1974-1976. Hann fór í vélskólann á Ísafirði og tók 1.-3.stig þar og kláraði 4. stig í Vélskóla Ís- lands í Reykjavík og útskrifaðist 1979 sem vélstjóri. Skólaárin var Björn til sjós á trillu með föður sínum á króka- veiðibát á sumrin og línubátum í jóla- og páskafríum. Eftir vélskóla- námið vann hann hjá Eimskip og sigldi þrem skipum félagsins í þrjú og hálft ár sem 2. og 3. vélstjóri. Hann fór í land og hóf vinnu við að sóla dekk í Gúmmívinnustofunni í þrjú ár og stofnaði eftir það World Class 1985 og hefur starfað við það síðan sem eigandi og framkvæmda- stjóri. „Ég fór að æfa líkamsrækt þegar ég kom í land en okkur félögunum fannst aðstaðan og stemningin ekki góð á þessum líkamsræktarstöðvum þar sem við vorum að æfa. Ég taldi mig geta gert betur og ákvað að stofna mína eigin stöð.“ Björn byrjaði með 360 fermetra stöð í Skeifunni en þremur árum síðar þurfti að stækka hana og þá var flutt í Skeifuna 19. Þar var hún í sjö ár þar til flutt var í Fellsmúlann. „Þá fór þetta að ganga betur og við opnuðum stöð á Akureyri 1996 en það var fyrsta útibúið.“ Upp úr aldamótum opnaði World Class stöðvar í Spönginni og Austurstræti og 3. janúar 2004 í Laugum. „Þá varð sprengja í vinsældum og í dag rekum við fimmtán stöðvar, eina á Selfossi, tvær á Akureyri og restin er á höfuðborgarsvæðinu. 46.000 manns eiga kort hjá okkur sem gera 13% prósent þjóðarinnar og 20% af þeim sem búa í nágrenni við stöðv- arnar. Ég held að þetta sé margfalt heimsmet.“ 200 stöðugildi eru í fyrirtækinu en um 400 manns vinna gera.“ Björn rak veitinga- og skemmti- staðinn Ingólfskaffi 1991-2000 og jafnframt rak hann Þjóðleikhús- kjallarann frá 1994-2001. „Þetta voru einir vinsælustu skemmtistað- irnir á þessum tíma og við gátum tengt raðirnar yfir Hverfisgötuna. Þetta var mjög skemmtilegur tími, en óheilbrigður. Ég var á daginn að vinna í líkamsræktinni og á kvöldin og um helgar á skemmtistöðunum og ég var kominn með fjölskyldu svo þetta var ekki boðlegt.“ Helstu áhugamál Björns eru skíði, líkamsrækt, fisk- og skotveiði, og hann er byrjaður að fikta í golfi. „Ég var mikið á skíðum sem krakki og við förum reglulega í skíðaferðir og erum líka farin að fara í golf- ferðir. En líkamsræktin er í fyrsta sæti og ég æfi að minnsta kosti fimm sinnum í viku.“ Björn fer í veiði á miðvikudaginn á Nessvæðið í Aðaldal. „Ég hef veitt í mörgum ám, en þær skemmtileg- ustu eru Miðfjarðará, Selá og Hofsá Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class – 60 ára Fjölskyldan Björn Boði, afmælisbarnið, Hafdís og Birgitta Líf stödd á Havaí árið 2017. Rekur 15 líkamsræktarstöðvar Morgunblaðið/Hari Í Laugum Með opnun stöðvarinnar fór World Class-ævintýrið á flug. 40 ára Valgerður er Reykvíkingur, er sam- eindalíffræðingur frá Háskóla Íslands og er með doktorsgráðu í líf- og læknavísindum frá HÍ. Hún er verk- efnastjóri hjá Actavis. Maki: Hörður Bjarnason, f. 1978, verk- fræðingur hjá Mannviti. Börn: Tómas Helgi, f. 2001, Ísabella Helga, f. 2004, María Björt, f. 2009, og Bjarni Snær, f. 2018. Foreldrar: Tómas Einarsson, f. 1949, tannlæknir, og Elísabet Benediktsdóttir, f. 1950, kennari. Þau eru búsett í Reykja- vík. Valgerður Tómasdóttir Til hamingju með daginn Júlía Fönn Freysdóttir safn- aði peningum og gaf Rauða krossinum, alls 957 kr. Rauði krossinn þakkar henni kær- lega fyrir framlagið. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.