Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  152. tölublað  107. árgangur  ÞARF NOKKUR GÖNG Í VEST- URBYGGÐ DREYMIR UM SELÁ ALLT ÁRIÐ VILL SKAPA MENNINGAR- UMRÆÐU RATCLIFFE Í SELÁ 6 BOÐN DÆMIR LJÓÐ 29MÁNUDAGSVIÐTALIÐ 11 Eftirlitsmyndavélum hefur verið komið upp við bæjarmörk á Hellu og Hvolsvelli, áþekkum þeim sem finna má á Seltjarnarnesi, í Kópavogi og í Garðabæ. Þá eru myndavélar við bæj- armörk Selfoss. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni á Suð- urlandi, segir vélarnar nýtast með margvíslegum hætti. „Við höfum not- að myndir úr þessu við rannsóknir hjá okkur. Bæði í innbrotamálum og þeg- ar við erum að leita að fólki sem hefur horfið. Þetta getur satt að segja nýst í mjög mörgum tegundum mála, til dæmis fíkniefnamálum,“ segir hann, en lögreglan hefur ein aðgang að efni úr myndavélunum sem er aðgengilegt í takmarkaðan tíma. Þá er eftirlitið ekki viðvarandi, heldur grípur lög- regla aðeins til þess þegar sérstök þörf krefur. „Myndavélarnar taka myndir af bílnúmerum og við getum síðan flett bílnúmerum upp í kerfinu hjá okkur,“ segir Sveinn Kristján. Gríðarmikil umferð er um þjóðveg eitt gegnum Hellu og Hvolsvöll. Að- spurður segir Sveinn Kristján að myndavélaeftirlit á þessum stöðum sé þó ekki eðlisólíkt því sem fram fari á höfuðborgarsvæðinu. „Það er auðvit- að gríðarlegt magn af myndum sem safnast upp hjá okkur, en þetta er ósköp svipað og á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir hann og tekur fram, að ekki sé um hraðamyndavélar að ræða. jbe@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Eftirlit Fylgst með bílaumferðinni. Mynda umferð á þjóðvegi 1  Aukið eftirlit við Hellu og Hvolsvöll Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Notkun samfélagsmiðla mælist hæst á Íslandi meðal EES-landa og aðild- arríkja Evrópusambandsins. Áætlað er að um 91% Íslendinga noti sam- félagsmiðla en næstmest notkun mældist í Noregi, þar sem áætlað er að um 82% landsmanna noti sam- félagsmiðla. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Eurostat, hagstofu Evrópusam- bandsins. Guðrún Katrín Jóhann- esdóttir, félagsfræðingur og ráðgjafi hjá Streituskólanum, segir að notk- un samfélagsmiðla þurfi ekki endi- lega að vera neikvæð: „Það er ýmislegt neikvætt og ann- að jákvætt við notkunina. Það er svo margt í dag sem við getum séð inni á samfélagsmiðlum – við getum fylgst með fjölskyldunni og fréttamiðlum þar til dæmis,“ segir hún. Metnotkun er hjá Íslendingum á aldrinum 65 til 74 ára í samanburði við aðrar þjóðir. Samkvæmt rann- sókninni nota 65% Íslendinga í þeim aldurshópi samfélagsmiðla, en með- altal Evrópusambandsþjóða var 19% í sama flokki. Næstflestir notendur á aldrinum 65 til 74 ára eru Norður- Makedóníumenn, en samkvæmt rannsókninni nota 55% samfélags- miðla. „Þessi aldurshópur getur fylgst með börnunum sínum og barnabörn- um sínum í gegnum samfélags- miðla,“ sagði Katrín. Ísland er einnig með hæst hlutfall notenda á aldrinum 16 til 24 ára, 98%, en notkunin er mun svipaðri milli landa hjá ungu fólki. Næst- flestir notendur í þessum aldurs- flokki eru í Danmörku, Tékklandi, Svartfjallalandi og Króatíu, 97%. Þá mældist lægsta hlutfalll not- enda samfélagsmiðla í Frakklandi, 42% allra landsmanna og einungis 13% þeirra sem eru á aldrinum 65 til 74 ára. Notkun samfélagsmiðla mest á Íslandi Ljósmynd/AFP Samfélagsmiðlar Íslendingar eru virkir á þeim, samkvæmt Eurostat.  Um 91% Íslendinga notar samfélagsmiðla  Norðmenn næstir með um 82%  Ný rannsókn bendir til þess að ungmenni séu þrátt fyrir reglulega íþróttaiðkun þreklítil og með of háa fituprósentu. 40% þeirra ungmenna sem tóku þátt í rannsókninni og stunduðu íþróttir við sautján ára aldur féllu í áhættuflokk fyrir lífs- stílstengda sjúkdóma á borð við sykursýki 2 og hjarta- og æða- sjúkdóma. „Við gætum spurt okkur: Gæti verið að kyrrseta sé svo mikil milli æfinga að æfingarnar dugi ekki til að halda holdafari ákjósanlegu og þreki góðu? Gæti verið að fæðuval sé svo slæmt að regluleg íþrótta- iðkun vinni ekki gegn þessari um- framfitusöfnun?“ spyr íþróttafræð- ingurinn Selmdís Þráinsdóttir. »4 Hreyfing regluleg en fituprósenta há Mávarnir sveimuðu áræðnir yfir Skarfabakk- anum í Reykjavík í kvöldsólinni og biðu þess að fá sinn skerf af afla dagsins, innyflin sem veiði- menn á sportbátnum við strendur Grafarvogs láta svo góðfúslega af hendi. Sennilega er allra hagur af því fyrirkomulagi. Í baksýn er enn eitt skemmtiferðaskipið, frá Bermúda í þetta sinn, sem sigldi að landi til stuttrar viðkomu í höfuðborginni. Veiðitúr í Kollafirði Morgunblaðið/Hari Stolt siglir fleyið og sportbáturinn Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stjórnendur álversins í Straumsvík fylgjast grannt með þróun nýrrar tækni sem gæti gjörbreytt losun koldí- oxíðs frá álframleiðslu. Með tækninni yrðu innleidd óbrenn- anleg rafskaut í kerunum en þau eru nú úr kolefni. Það binst súrefni úr súráli og þá myndast koldíoxíð. Með óbrennan- legum rafskautum myndi framleiðslan einkum losa súrefni í stað koldíoxíðs. Slík breyting gæti haft gífurleg áhrif á kolefnisbókhald í álframleiðslu ef þessar tilraunir takast og hægt væri að innleiða þetta í álverum. Tölvufyrirtækið Apple leiddi saman álframleiðendurna Rio Tinto og Alcoa sem voru framarlega í rannsóknum á þessu sviði. Þróunin fer fram í Kanada og styðja þarlend stjórnvöld hana. Horft til næsta áratugar Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, segir markmiðið að tæknin verði orðin nógu þróuð til notkunar í til- raunaverksmiðju árið 2024. Áður en slík tækni komi til álita í ál- verinu í Straumsvík muni fyrirtækið vinna að áætlun um að dæla niður kol- díoxíði í jarðlögin umhverfis álverið. Markmiðið sé að álverið verði orðið kol- efnishlutlaust 2040. Norsk Hydro hugðist kaupa álverið í Straumsvík í fyrra. „Það er greinilega áhugi á að kaupa fyrirtækið. Viðræður komust langt en ekki varð af kaupun- um. Það var óvænt að þetta gekk ekki eftir en við erum áfram hluti af Rio Tinto sem er traustur bakhjarl,“ segir Rannveig. Fjallað er um 50 ára afmæli framleiðslunnar í Morgunblaðinu í dag. Breytir miklu fyrir álver  Ný tækni gæti mögulega dregið mikið úr losun koldíoxíðs frá álverum á Íslandi  Stjórnendur álversins í Straumsvík skoða tæknina og niðurdælingu koldíoxíðs Mikil fjárfesting » Rannveig segir álverið í Straumsvík eiga sér bjarta framtíð en 50 ár eru í dag frá gangsetningu keranna. » Árin 2012-2014 hafi verið fjárfest fyrir 63 milljarða í ein- um fullkomnasta steypuskála heims, sem sé nú að hluta tölvustýrður og sjálfvirkur. M Ísland hafi þróast … »10-11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.