Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 www.itr.is Pepsi Max-deild karla ÍBV – Stjarnan ......................................... 0:2 Fylkir – KA............................................... 3:2 HK – Valur................................................ 1:2 Staðan: KR 10 7 2 1 19:10 23 Breiðablik 10 7 1 2 22:11 22 Stjarnan 11 5 3 3 19:16 18 ÍA 9 5 1 3 15:12 16 Fylkir 10 4 3 3 18:18 15 Valur 11 4 1 6 18:17 13 KA 10 4 0 6 15:16 12 FH 9 3 3 3 15:17 12 Víkingur R. 9 2 4 3 15:17 10 Grindavík 9 2 4 3 7:9 10 HK 10 2 2 6 11:14 8 ÍBV 10 1 2 7 8:25 5 Inkasso-deild karla Magni – Víkingur Ó................................. 0:0 Fjölnir – Þór............................................. 4:0 Sjálfsmark 46., Jóhann Árni Gunnarsson 67., Ingibergur Kort Sigurðsson 85., Jón Gísli Ström 89. Staðan: Fjölnir 9 6 1 2 18:9 19 Grótta 9 5 2 2 19:13 17 Fram 9 5 2 2 15:11 17 Þór 9 5 1 3 15:10 16 Leiknir R. 9 5 0 4 16:15 15 Keflavík 9 4 2 3 14:10 14 Víkingur Ó. 9 4 2 3 9:6 14 Þróttur R. 9 3 1 5 16:15 10 Haukar 9 2 3 4 13:15 9 Afturelding 9 3 0 6 12:21 9 Njarðvík 9 2 1 6 8:17 7 Magni 9 1 3 5 10:23 6 2. deild karla Leiknir F. – Kári...................................... 5:1 Benedikt Daríus Garðarsson 56., 59., 66., Kristján Gabríel Kristjánsson 84., 86. – Aaron Spear 71. KFG – Vestri ............................................ 5:1 Daniel Garcia 29., 32., 77., Marteinn Már Sverrisson 83., Arkadiusz Grzelak 85. – Andri Júlíusson 65. (víti). Staðan: Leiknir F. 9 6 3 0 20:8 21 Selfoss 9 5 2 2 21:10 17 Víðir 9 5 1 3 17:13 16 Vestri 9 5 0 4 12:15 15 Völsungur 9 4 2 3 11:12 14 Fjarðabyggð 9 4 1 4 13:11 13 KFG 9 4 0 5 16:19 12 Dalvík/Reynir 9 2 5 2 10:10 11 ÍR 9 3 2 4 10:10 11 Þróttur V. 9 2 4 3 11:14 10 Kári 9 2 2 5 16:21 8 Tindastóll 9 0 2 7 8:22 2 Ameríkubikarinn 8-liða úrslit: Kólumbía – Síle........................................ 0:0  Síle vann í vítaspyrnukeppni, 5:4, þar sem William Tesillo klúðraði síðustu spyrnu Kólumbíu. Úrúgvæ – Perú ........................................ 0:0  Perú vann í vítaspyrnukeppni, 5:4, þar sem Pedro Gallese varði spyrnu Luis Suá- rez sem tók síðustu spyrnu Úrúgvæ. KNATTSPYRNA Fjögur íslensk mörk litu dagsins ljós í tveimur efstu deild- um Noregs í fótbolta í gær. Samúel Kári Friðjónsson skor- aði mark Viking í 1:1-jafntefli gegn Mjölndalen í úrvals- deildinni og spilaði hann allan leikinn. Markið var það fyrsta sem Samúel skorar fyrir liðið í deildinni. Arnór Smárason lagði upp tvö mörk fyrir Lilleström í 4:0-sigri á Tromsö og lék í klukkutíma. Matthías Vilhjálmsson lagði upp eitt marka Vålerenga í 4:1-útisigri á Haugesund, en Matthías lék allan leikinn. Í B-deildinni skoraði Aron Sigurðarson tvö mörk í 3:1- sigri Start á Tromsdalen. Aron kom sínum mönnum tví- vegis yfir í leiknum. Hann hefur leikið afar vel á leiktíð- inni og skorað átta mörk í tólf leikjum. Kristján Flóki Finnbogason lék í 56 mínútur með Start. Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði fyrsta mark Aalesund í 3:1-sigri á Sandnes Ulf. Hólmbert fór meiddur af velli ellefu mínútum síðar. Framherj- inn er búinn að skora fimm mörk í tólf leikjum til þessa á tímabilinu. Daníel Leó Grétarsson, Davíð Kristján Ólafsson og Aron Elís Þrándarson spiluðu allan leikinn fyrir Aalesund sem er með tveggja stiga forskot á toppnum. Fjögur íslensk mörk í Noregi Samúel Kári Friðjónsson 0:1 Hilmar Á. Halldórsson 74. (víti) 0:2 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 83. I Gul spjöldDiogo Coelho, Telmo Castan- heira og Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV), Martin Rauschenberg (Stjörn- unni). Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 6. Áhorfendur: 567. ÍBV – STJARNAN 0:2 M Víðir Þorvarðarson (ÍBV) Sindri Snær Magnússon (ÍBV) Priestley Griffiths (ÍBV) Haraldur Björnsson (Stjörnunni) Brynjar Gauti Guðjónsson (Stj.) Jósef Kristinn Jósefsson (Stj.) Alex Þór Hauksson (Stjörnunni) Guðmundur St. Hafsteinss. (Stj.) Hilmar Árni Halldórsson (Stj.) KÓRINN/ÁRBÆR/ VESTMANNAEYJAR Víðir Sigurðsson Jóhann Ingi Hafþórsson Arnar Gauti Grettisson Birnir Snær Ingason gaf vonum Valsmanna um að feta sig nær bar- áttunni í efri hluta úrvalsdeild- arinnar byr undir báða vængi með því að skora sigurmarkið gegn HK í Kórnum í gærkvöld, með síðustu spyrnu leiksins, 2:1. Þar með hafa Valsmenn náð að vinna þrjú af neðstu liðum deildarinnar í síðustu fjórum leikjunum og eru komnir upp í sjötta sætið sem er þeirra besta staða á tímabilinu enn sem komið er. Þessi sigur blasti hinsvegar alls ekki við en HK-ingar höfðu fengið tvö góð færi til að komast yfir á loka- mínútum leiksins. En Birnir, sem hafði aðeins verið inni á vellinum í rúmar 15 mínútur, sýndi snilli sína þegar hann fékk boltann við vinstra vítateigshornið þegar uppbótartím- inn var liðinn og sendi hann með glæsilegu skoti í hornið fjær. HK situr eftir í fallsæti og í annað sinn í sumar misstu nýliðarnir af dýr- mætum stigum á síðustu sekúndu í heimaleik. Þeir hefðu líklega verð- skuldað meira út úr leiknum eftir að hafa átt í fullu tré við Íslandsmeist- arana allan tímann, verið betri að- ilinn á nokkrum köflum og náð for- ystunni með marki Ásgeirs Marteinssonar í byrjun síðari hálf- leiks. En Lasse Petry kom Val á bragðið með marki 20 mínútum fyrir leikslok og eftir það gat sigurinn dottið hvorum megin sem var. vs@mbl.is Fylkir neitaði að gefast upp Fylkismenn unnu afar sterkan 3:2- sigur á KA á heimavelli. Áföllin dundu á Fylki í gegnum leikinn, en þrátt fyrir það náði liðið í mjög góð þrjú stig. Tveir leikmenn fóru af velli eftir tæplega hálftíma leik og þar á meðal Ólafur Ingi Skúlason, lykil- maður. KA komst í 2:1 snemma í seinni hálfleik og skömmu síðar þurfti Aron Snær Friðriksson, aðal- markmaður Fylkis að fara meiddur af velli. Hefðu þá einhver lið lagt árar í bát, en ekki Fylkismenn, sem þurftu að leika 120 mínútur í bikarnum gegn Breiðabliki á fimmtudag. Einhvers staðar grófu lærisveinar Helga Sigurðssonar upp orku til að snúa leiknum sér í vil. Valdimar Þór Ingimundarson skoraði tvö mörk fyr- ir Fylki, en Hákon Ingi Jónsson var maður leikins. Allt sem var gott í sóknarleik Fylkis byrjaði á honum, nema sigurmarkið, þar sem hann skoraði það sjálfur. Fylkismenn gætu verið þunnskipaðir næstu vikurnar vegna meiðsla og gæti Kolbeinn Birgir Finnsson einnig horfið á braut, en lánssamningur hans við Fylki rann sitt skeið í dag. Fylkismenn gerðu vel í að gefast ekki upp og ná í stigin sem í boði voru, þrátt fyrir að útlitið væri dökkt. Vel mannað lið KA gerði hins vegar afleitlega úr góðri stöðu. Leikurinn var algjörlega í höndum KA, en ákveðið kæruleysi tók yfir þegar staðan var orðin góð. Það hefur gengið illa hjá KA síðustu vikur og gæti liðið dregist niður í alvöru fall- baráttu, ef menn fara ekki að taka til í höfðinu. johanningi@mbl.is Stjarnan kom fram hefndum Stjarnan fór til Vestmannaeyja og sótti öll 3 stigin sem í boði voru á Há- steinsvelli í gær. Hilmar Árni Hall- dórsson kom gestunum á bragðið á 73. mínútu þegar hann skoraði úr víti sem Brynjar Gauti Guðjónsson fisk- aði. Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði svo eitt fallegasta og flottasta mark Íslandsmótsins það sem af er á 83. mínútu þegar hann lék á varn- armenn Eyjamanna líkt og þeir væru Birnir blés byr í segl Valsmanna  Meistararnir með naumindum upp í 6. sæti  Mikilvægur sigur Fylkis Ljósmynd/Sigfús Gunnar Mark Hilmar Árni Halldórsson kemur Stjörnunni yfir í Eyjum. Miðjumenn Kristinn Freyr Sigurðsson og Ásgeir Börkur Ásgeirsson á ferðinni í Kórnum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.