Morgunblaðið - 09.07.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
SVIÐSLJÓS
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við stefnum á að ljúka þessari skoð-
un á allra næstu vikum og í kjölfarið
verður gefin út ítarleg skýrsla um
stöðuna eða formleg tillaga um sölu á
bönkunum. Við settum upp tíma-
plan, sem gert
var í samráði við
fjármálaráðu-
neytið, og er sú
vinna á áætlun.
Þess er nú beðið
að allar upplýs-
ingar komi í hús
þannig að hægt
sé að klára skoð-
unina,“ segir Lár-
us L. Blöndal,
stjórnarformaður
Bankasýslu ríkisins. Vísar hann í
máli sínu til söluferlis Landsbanka
og Íslandsbanka.
Líkt og fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins um helgina hefur
þess verið beðið að tillaga um sölu
bankanna berist frá Bankasýslu rík-
isins. Að sögn Bjarna Benediktsson-
ar fjármálaráðherra verður ekki haf-
ist handa við sölu á bönkunum fyrr
en slík tillaga er komin inn á borð
stjórnvalda.
Nú er ljóst að skammt er þar til
Bankasýsla ríkisins kynnir niður-
stöðu sína, hvort heldur sem slík til-
laga felur í sér sölu á bönkunum eða
áframhaldandi ríkisrekstur. Lárus
segir að ef af sölu bankanna verður
sé mikilvægt að sátt ríki um málið.
Þá verði réttar forsendur að vera til
staðar. „Að mínu mati þarf að vera
sátt um sölu bankanna og menn vita
alveg að þetta er viðkvæmt mál.
Vinnan við hvítbókina fór einmitt af
stað ekki síst til þess að kafa vel ofan
í málin og velta við öllum steinum.
Nú eru menn að skoða þær forsend-
ur sem talið er að þurfi að vera til
staðar til að hægt sé að fara í sölu á
bönkunum. Það eru ákveðin box sem
þarf að haka í, t.d. kanna markaðs-
forsendur, stöðu bankanna og
ákveða hvort þetta sé rétti tíminn.
Þá hafa stjórnvöld undirbúið laga-
breytingar á grundvelli tillagna hvít-
bókarinnar en mikilvægt er að þær
komi fram fyrir sölu,“ segir Lárus.
Betri tími nú en árið 2016
Í viðtali við Bjarna Benediktsson
sem birtist í Morgunblaðinu um
helgina kemur fram að svo virðist
sem áhugi á ríkisbönkunum sé ekki
mikill. Þá séu engar líkur á því að
takast muni að selja annan hvorn
bankanna í heilu lagi. Spurður hvort
hann hafi áhyggjur af því að ekki
finnist kaupendur að bönkunum
kveður Lárus nei við.
„Við viljum bíða með að tjá okkur
um það fyrr en við kynnum niður-
stöðu okkar. Við sjáum það þó út frá
sölunni á Arion banka að það eru
kaupendur til staðar. Stóra spurn-
ingin er hins vegar á hvaða verði
menn eru tilbúnir til að kaupa þá,“
segir Lárus sem kveðst sannfærður
um að nú sé betri tími til sölu á
bönknum en fyrir þremur árum.
„Við erum klárlega ekki á verri stað
núna en árið 2016 enda tel ég að
verðið sem fást mun fyrir þá í dag sé
ekki lægra en þá. Að mínu mati eru
bankarnir tilbúnari til sölu núna
þannig að við erum ekki búin að
missa af neinu í þessum efnum held-
ur þvert á móti.“
Hægt að ljúka sölu á næsta ári
Verði tillaga Bankasýslu ríkisins
þess efnis að hefja eigi söluferli
bankanna má ráðgera að hægt verði
að ljúka slíku ferli á næsta ári. Að
sögn Lárusar miðast vinna Banka-
sýslunnar við það að hægt verði að
ljúka söluferli bankanna á kjörtíma-
bilinu.
„Ég tel að unnt verði að klára sölu
á hlut í bönkunum á þessu kjörtíma-
bili. Það verður síðan að koma í ljós
hver niðurstaða okkar verður. Ef
hún verður sú að hefja söluferli þá
þarf samþykki ráðherra. Það er
framkvæmanlegt að hefja söluferli á
bönkunum á þessu ári og tímalína
okkar miðar við að hægt verði að
framkvæma tillögu um sölu á bönk-
unum, ef til hennar kemur, þannig að
söluferlinu ljúki á næsta ári,“ segir
Lárus og bætir við að það fari eftir
vilja ríkisstjórnarinnar hversu stór
hluti bankanna verður seldur.
„Í hvítbókinni kemur fram að það
væri gott fyrir markaðinn hér á landi
ef það tækist að selja Íslandsbanka í
heilu lagi. Eins og staðan er í dag er
þó mjög ólíklegt að það takist.
Hversu stór hluti bankanna, ef ein-
hver, verður seldur fer eftir hinum
pólitíska vilja,“ segir Lárus.
Söluferli geti lokið á næsta ári
Morgunblaðið/Ómar
Bankar Mögulegt er að ríkisbankarnir tveir skipti um eigendur á næstunni.
Ríkisbankarnir verði hugsanlega komnir í hendur nýrra aðila innan tveggja ára Bankarnir betri
söluvara nú en fyrir þremur árum Niðurstöðu Bankasýslu ríkisins að vænta á allra næstu vikum
Lárus L.
Blöndal
Mikil umskipti hafa orðið í vænt-
ingum stjórnenda í íslensku at-
vinnulífi, samkvæmt niðurstöðum
nýrrar Stjórnendakönnunar MMR.
Tæp 63% stjórnenda telja nú að ís-
lenska hagkerfið muni dragast
saman á næstu tólf mánuðum, sem
er mikil breyting frá því sem verið
hefur, en innan við 12% stjórnenda
voru þessarar skoðunar í febrúar
2017 þegar könnunin var síðast
gerð.
Af öðrum helstu niðurstöðum þá
kemur fram að þeim stjórnendum
sem telja að samdráttur verði í
veltu fjölgar mikið, en 32% eru á
þeirri skoðun, samanborið við 11% í
febrúar 2017. Þá telja 35% stjórn-
enda að eftirspurn minnki, 42%
telja að arðsemi dragist saman og
17% eiga von á að draga úr mark-
aðsstarfi. Þá leiðir könnunin í ljós
að 31% stjórnenda sér fram á fækk-
un starfsfólks í fyrirtækjum sínum.
Síðast þegar könnunin var gerð var
það hlutfall 8%.
Ólafur Þór Gylfason, fram-
kvæmdastjóri MMR, segir í samtali
við Morgunblaðið að um mjög
dramatískan viðsnúning sé að
ræða. „Þetta eru meiri sveiflur en
við höfum séð áður. Menn eru
greinilega áhyggjufullir og sjá
þetta í veltutölum sínum. Það er
undirliggjandi ótti við að hlutirnir
séu hér á niðurleið.“
Ólafur bendir einnig á að það sé
sama hvaða starfsgrein sé skoðuð,
svörin séu alls staðar á sömu lund.
63% stjórnenda sjá fram á samdrátt
Dramatísk umskipti frá síðustu könnun MMR Menn áhyggjufullir
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnendur Sjá fram á erfiða tíma.
9. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.52 126.12 125.82
Sterlingspund 157.43 158.19 157.81
Kanadadalur 96.01 96.57 96.29
Dönsk króna 18.932 19.042 18.987
Norsk króna 14.673 14.759 14.716
Sænsk króna 13.396 13.474 13.435
Svissn. franki 127.1 127.82 127.46
Japanskt jen 1.1611 1.1679 1.1645
SDR 173.61 174.65 174.13
Evra 141.3 142.1 141.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.6655
Hrávöruverð
Gull 1414.4 ($/únsa)
Ál 1779.0 ($/tonn) LME
Hráolía 63.27 ($/fatið) Brent
Í fyrradag bárust fréttir af því að þýski bankinn Deutsche Bank stefndi
að því að segja upp allt að tuttugu þúsund manns. Mikil endurskipulagn-
ing er fram undan hjá stærsta banka Þýskalands, en alls starfa um 100
þúsund manns hjá honum. „Þetta segir manni það að þörf fyrir mannafla
er alltaf að verða minni í bankastarfsemi. Tækniþróunin hefur gert það
að verkum að nú þarf færri hendur til að vinna sömu störf,“ segir Lárus
Blöndal.
Verðlagning hlutabréfa Deutsche Bank sem hlutfall af eigin fé hans er
nú 0,24 og hefur verið á mikilli niðurleið síðustu ár. Væri sama hlutfall
heimfært á íslensku ríkisbankana tvo, Landsbanka og Íslandsbanka,
myndi heildarverðmæti þeirra vera í kringum 100 milljarðar króna.
Endurskipulagning í kortunum
DEUTSCHE BANK SEGIR UPP ALLT AÐ TUTTUGU ÞÚSUND MANNS