Morgunblaðið - 09.07.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, lokað um helgar í sumar
Misty
Dekraðu
við línurnar
BH 10.900kr
Buxur 4.990kr.
„ER Í LAGI AÐ ÉG ORGI AF SÁRSAUKA
Á MILLI ÞESS SEM ÉG SVARA
SPURNINGUNUM?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda út á lífið
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DJÖ!!
ÞAÐ ER EKKI HÆGT
AÐ SKERA ÚT VÍNBERSMELL!
KOMDU MEÐ ALLA PENINGANA! HVER ER
ÞETTA?
ÉG HEF EKKI HUGMYND … ÉG HÉLT AÐ
ÉG ÞEKKTI ALLT ÞITT SLEKTI!
GÖNGU-
DEILD
„ÉG HEF ALDREI VERIÐ FJÖRUGRI.
HVERSU KALDHÆÐNISLEGT ER ÞAÐ?”
3) Sigurður Þengill Þórðarson, f. 6.
ágúst 1956, félagsliði á geðsviði
Landspítalans, búsettur í Reykjavík.
Eiginkona hans er Anna Lísa Sig-
urjónsdóttir, f. 30. mars 1958. Þau
eiga tvö börn og sjö barnabörn.
4) Anna Sigríður Þórðardóttir, f. 3.
febrúar 1964, deildarstjóri á Heil-
brigðisstofnun Austurlands, búsett í
Neskaupstað. Eiginmaður hennar er
Gunnar Þorsteinsson, f. 13. sept-
ember 1964. Börn og stjúpbörn
þeirra eru sex og barnabörn sjö.
5) Ingveldur Lára Þórðardóttir, f.
5. september 1965, skrifstofustjóri
hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð-
isins, búsett í Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Jan Erik Murtomaa, f. 12.
ágúst 1965. Þau eiga son.
6) Ólafur Þórður Þórðarson, f. 24.
desember 1967, rekstrar- og öryggis-
stjóri hjá Kópavogsbæ, búsettur í
Garðabæ. Eiginkona hans er Mar-
grét Sigríður Sævarsdóttir, f. 13. júlí
1966. Þau eiga tvö börn og tvö barna-
börn.
7) Katrín Þórey Hjorth Þórðar-
dóttir, f. 6. febrúar 1973, ritari hjá
Center for Quantum Devices, Niels
Bohr Institute, búsett í Kaupmanna-
höfn. Eiginmaður hennar er Peter
Hjorth, f. 29. nóvember 1970. Þau
eiga tvö börn.
Foreldrar voru sem segir í ætt-
artré. Síðari kona Sigurðar var Þór-
ey Hannesdóttir ritari, f. 1919, d.
1994.
Fósturforeldrar Þórðar voru
Björn Vigfússon, lögreglumaður í
Reykjavík, f. 5. júlí 1899, d. 28. des-
ember 1989, og kona hans Anna
Kristjana Pétursdóttir Hjaltested
húsfreyja, f. 7. mars 1895, d. 6. jan-
úar 1958. Síðari kona Björns var Sig-
ríður Hannesdóttir saumakona, f.
1911, d. 1986.
Þórður Baldur
Sigurðsson
Ingveldur Björnsdóttir
húsfreyja á Narfeyri, síðar búsett í Reykjavík
Lárus Jónsson
bóndi og smiður á Narfeyri
á Skógarströnd, Snæf.
Katrín Lárusdóttir
húsfreyja á Sunnuhvoli
Ólafía Pétursdóttir Hjaltested
húsfreyja í Reykjavík
Georg Pétur Einarsson Hjaltested
úrsmiður og kaupmaður á
Sunnuhvoli í Reykjavík
Anna Kristjana Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Einar Pétur Pétursson Hjaltested
söðlasmiður í Reykjavík
Einar Pétursson Hjaltested
söngvari í Reykjavík
Regína Þórðardóttir leikkona í Reykjavík
Anna Kristjana Pétursdóttir Hjaltested
húsfreyja í Reykjavík og fósturmóðir Þórðar
Gróa Jónsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Hans Ditlev Linnet Hansson
kaupmaður í Hafnarfi rði
Hansína Hansdóttir Linnet
húsfreyja í Reykjavík
Þórður Bjarnason
endurskoðandi, kaupmaður og
bæjarfulltrúi í Reykjavík
Þórey Kristín Ólína Pálsdóttir
húsfreyja á Reykhólum og í
Reykjavík
Bjarni Þórðarson
bóndi og gullsmiður á Reykhólum
í Reykhólasveit og í Reykjavík
Úr frændgarði Þórðar B. Sigurðssonar
Sigurður Þórðarson
bankamaður í Reykjavík
Á laugardaginn skrifaði FriðrikSteingrímsson á Leir: „Nú er
ég staddur á Landspítala við Hring-
braut og bíð eftir þræðingu. Mér
var að sjálfsögðu gert að fara í
nærfatnað spítalans þegar ég kom
og satt að segja finnst mér ekki sá
fatnaður fylgja tískunni.“
Til nærbuxna ég nokkuð þekki
en nú eru málin ekki skýr,
verst finnst mér að vita ekki
vel hvað fram og aftur snýr.
Og fékk um hæl kveðju frá Birni
Ingólfssyni:
Ég get ekki annað en hrist minn haus
og hluttekning sýna þér mína.
Það er helvítis rassgat og rosalegt
maus
að rata ekki í brókina sína.
Jón Arnljótsson skildi þetta þann-
ig að vandamálið hefði komið eftir
að Friðrik var kominn í brókina og
allar leiðbeiningar hefðu reynst
gagnslausar:
Líf við flókið Friðrik býr,
fer í brók og gatar
á hvort lókur aftur snýr.
Öllum bókum fatar!
Davíð Hjálmar í Davíðshaga hjó á
hnútinn:
Svona brók er flókið fyrirbæri
en fráleitt er að liggja þarna ber.
Fáðu að láni skurðhníf eða skæri
og skerðu rifu þar sem typpið er.
Í Vísnahorni hafði ég orð á því að
Helgi Ingólfsson kvæðist skemmti-
lega á við sjálfan sig. Fyrst með
„Limra um ferskeytlu“:
Ferskeytlan ort er á Fróni
og fer vel í munni hjá Jóni,
hjá Helgu og Sigga
og Halldóru og Bigga,
frá Hornbjargi austur að Lóni.
Svo er „Ferskeytla um limru“:
Limran, hún er líka góð.
Lipur áfram renni
þótt nokkrir yrki nöpur ljóð
og nöldri yfir henni.
Gunnar J. Straumland skrifar á
Boðnarmiði við fallega mynd af
ströndinni:
Lífsins myndir leggjast á
láð, af Guði sendar.
Geisla sólar þiggja þá,
þar sem hafið endar.
„Kvöldskin,“ segir Guðmundur
Arnfinnsson og yrkir:
Senn er komið sólarlag,
sindra blik um fjörðu.
Lofa þennan drottins dag
dýr og menn á jörðu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af þræðingu og spítalabrókum