Morgunblaðið - 09.07.2019, Page 19

Morgunblaðið - 09.07.2019, Page 19
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN REYNISDÓTTIR, Mörkinni, Suðurlandsbraut 68a, lést laugardaginn 6. júlí. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 12. júlí klukkan 13. Halldór Júlíusson Margrét Halldórsdóttir Árni Guðmundsson Ingibjörg Halldórsdóttir Reynir Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019  Fleiri minningargreinar um Einar Geir Þorsteinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður og afa, RAGNARS STEFÁNS MAGNÚSSONAR, Breiðvangi 22, Hafnarfirði, verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 10. júlí klukkan 15. Guðlaug Pálsdóttir Wíum Magnús Páll Ragnarsson Þórunn Þorleifsdóttir Sigrún Ragnarsdóttir Elín G. Magnúsdóttir Þuríður Magnúsdóttir Jakob Fannar Árnason Atli Bent Þorsteinsson Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI SVERRIR ERLINGSSON, húsasmíðameistari og kennari, Birkivöllum 22, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 2. júlí. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 16. júlí klukkan 13.30. Sigríður Sæland Hulda Sæland Árnadóttir Óðinn Kristjánsson Rannveig Árnadóttir Brynjar Jón Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, unnusta, systir, mágkona og frænka, KRISTÍN AÐALSTEINSDÓTTIR, lést á Kaiser-sjúkrahúsinu í Los Angeles þriðjudaginn 25. júní. Útför verður auglýst síðar. Aðalsteinn Dan Árnason John Bergeson Ragnar E. Aðalsteinsson Jónína Magnúsdóttir Eggert B. Aðalsteinsson Svanlaug Aðalsteinsdóttir Sigurjón Kristinsson og systkinabörn Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, ÁRNI SIGURÐSSON frá Skammdal í Mýrdal, lést á Bæjarási í Hveragerði föstudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá Víkurkirkju föstudaginn 12. júlí klukkan 14. Guðgeir Sigurðsson Kristín Sunneva Sigurðard. Hallur Jónsson Sigurður Garðarsson Ármann Jón Garðarsson og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, FRÚ HEIÐRÚN SIGURBJÖRNSDÓTTIR, Birkigrund 61, Kópavogi, lést sunnudaginn 30. júní á hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin verður fimmtudaginn 11. júlí klukkan 13 í Hjallakirkju. Svanur Sveinsson Sveinn Halldór Svansson Marianne Toftdal Freyja Svansdóttir Nanna Sigrún Georgsdóttir Ólafur Örn Svansson Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir og barnabörn Tungnamanna og stýrði þar söng af mikilli röggsemi. Oftar en ekki kom í sjónvarpsfréttum réttar- söngur Tungnamanna með Einar Geir í fararbroddi söngmanna. Einar Geir var mikill fjöl- skyldumaður og unni henni fram- ar öllu. Hann eignaðist fjögur börn og átti fjöldann allan af barnabörnum og einnig barna- barnabörn. Hann hafði mikinn áhuga á þeim og fylgdist vel með þeirra lífi. Hann hafði unun af yngstu börnunum og fundu þau það og vildu alltaf hitta afalang. Barnabarn mitt hafði mikla ástúð á honum, spurði oft um hann og vildi fara og hitta hann. Ekki var verra að fá kex hjá honum. Mér er minnisstætt að hann hafði fyrir því að koma með kex með sér ef hann vissi að hann myndi hitta lít- inn vin. Einar Geir og Ingveldur Björg Stefánsdóttir gengu í hjónaband árið 1959 og var hjónaband þeirra gæfuríkt. Þau kynntust í Biskups- tungum en fluttu úr sveitinni og byggðu sér framtíðarheimili í Garðabænum. Það var á Móaflöt- inni og hafa þau búið þar síðan. Ber heimilið vitni um natni og snyrtimennsku. Samband þeirra var einstaklega náið og er missir Ingveldar mikill. Dýrmætar eru minningar um hinstu ferð Einars sem var ferð stórfjölskyldunnar til Króatíu dagana 13. júní til 24. júní síðastliðinn en þar áttum við ynd- islegar samveru- og gleðistundir. Einar Geir lést einungis tveimur dögum eftir heimkomuna. Hann var fram á hið síðasta hress og kátur og undi hag sínum vel með fjölskyldunni sinni sem hann unni svo heitt. Það er svo sárt að kveðja en ég veit að Einar Geir mun lifa áfram í hjarta okkar og minning- um. Ég lærði margt af honum og minning hans mun lifa í mínu hjarta um ókomna tíð. Ég kveð kæran tengdaföður minn með virðingu og er mér þakklæti nú efst huga fyrir að hafa kynnst þessum góða manni. Hafðu þökk fyrir allt. Hvíl í friði. Þín tengdadóttir, Ásta Sigrún Helgadóttir. Meira: mbl.is/minningar Hinn 27. júní síðastliðinn lést tengdafaðir minn, Einar Geir Þor- steinsson, á Landspítalanum. Hann hafði lítið kennt sér meins og var fram á síðasta dag í fullu fjöri og glæsilegur eins og hann var alltaf, jafnvel tignarlegur. Einar Geir ólst upp á litlum bæ í Tungunum, sem var þó ekkert kotbýli, enda var faðir hans einn af forvígismönnum bænda. Þau Ingveldur, sem einnig er úr sömu sveit, fluttu svo á mölina árið 1958 og bjuggu lengst af í Garðabæ. Einar Geir var um margt leið- togi. Hann var bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, í því mikla vígi flokksins – Garðabæ – árin 1978 til 1990, formaður Karlakórs- ins Fóstbræðra árin 1969-1974 og hann stjórnaði fjöldasöng í Tungnaréttum allar götur frá and- láti föður síns árið 1974 og þar til í fyrra. Að auki gegndi hann ýms- um öðrum trúnaðarstörfum, eink- um á vettvangi kóra og Fram- sóknarflokksins. Einar Geir var mikill höfðingi í þessum störfum sínum, sem og almennt, en leit ekki stórt á sig og aldrei niður á nokkurn mann. Þvert á móti var hann áhugasamur um alla þá sem hann hitti og af honum stafaði óvenjulega mikil gleði, jákvæðni og hlýja. Hann var svo alveg sér- staklega blíður og áhugasamur um börn og dýr, þannig að jafnvel spörfuglarnir sem fengu hjá hon- um korn á köldum vetrarmánuð- um urðu jafnan eins og vinir hans. Einar Geir og Ingveldur voru alveg sérlega heppin að finna hvort annað. Óhætt er að segja að samband þeirra og heimilishald hafi verið til mikillar fyrirmyndar. Samheldnari hjón eru vandfundin og takturinn og jafnvægið í sam- bandi þeirra var óvenjulegt og fal- legt. Sama má raunar segja um fjölskylduna alla. Fjögur börn þeirra heiðurshjóna og fjölskyldur þeirra hafa öll verið afar hænd að þeim og Móaflötin verið bæði at- hvarf og jafnframt staður mikilla veislustunda. Því til viðbótar hefur nær allur hópurinn farið tvívegis á undanförnum árum saman í frí til útlanda, síðast nú í sumar þegar við vorum tæplega 30 saman. Ein- ar lést aðeins þremur dögum eftir að við komum til baka úr þeirri ferð, hvar hann hafði eins og venjulega borið af fyrir jákvæðni, gleði og hlýju. Fyrstu kynni mín af Einari, Ingveldi og fjölskyldu þeirra eru eftirminnileg. Mér var boðið í mat heim til þeirra hjóna, en Áslaug bjó þar þá enn. Öðrum börnum þeirra og tengdabörnum var líka boðið. Í upphafi vildu allir sýna á sér sparihliðina, bæði þau fjöl- skyldan en ekki síst sá sem verið var að frumsýna. Öll slík varfærni hvarf þó undraskjótt eins og dögg fyrir sólu og varð kvöldið nokkuð fjörugt, eins og oft á þessu heimili. Var þetta dæmigert fyrir það áreynslulausa, þægilega og glað- lega andrúmsloft sem ávallt var til staðar í návist þeirra sómahjóna. Minningin um einstakan mann, sem lifði svo gæfuríku lífi og hafði svo jákvæð áhrif á allt umhverfi sitt, mun lifa með okkur sem hann þekktum. Einar Örn Ólafsson. Hann afi hafði einstaka per- sónutöfra, sem erfitt er að lýsa. Hann var miðpunktur allra mannamóta og fann hann sig gíf- urlega vel í kringum fólk, þá sér- staklega fjölskylduna og frænd- fólk sitt og vini í Biskupstungum. Afi var hvers manns hugljúfi, og hafði hann sérstaklega gaman af börnum. Svo dæmi sé tekið um einstaka barngæsku afa, þá hafði hann áttað sig á því að syni mínum þætti tiltekin kextegund góð sem hann átti til á Móaflötinni. Gætti hann þess þá að alltaf væri nóg til af kexi í skápnum ef barna- eða barnabörnin skyldu koma í heim- sókn og bað afi mig vinsamlegast að kaupa ekki kextegundina á mitt heimili, því hann vildi að sonur minn myndi tengja kexið við „afa lang“, sem hann og gerði. Sömu aðferð notaði afi við skógarþrest- ina í hverfinu, en hann lagði reglu- lega fuglafóður fyrir framan Móa- flötina og man ég eftir ófáum stundum er afi flautaði í takt við söng þrastanna, sem höfðu gert sig heimakomna fyrir utan Móa- flötina. Ég er þakklátur fyrir þær stundir sem ég hef átt með afa í gegnum árin og þá sérstaklega ferðirnar í sumarbústaðinn Kjarr, jólaboðin á Móaflötinni og utan- landsferðirnar til Mallorca, eða nú síðast Króatíu. Með kveðju, Einar Geir Þorsteinsson. Fyrirmynd var orðið sem kom upp í hugann þegar ég lít til baka yfir ævi Einars Geirs bróður míns. Fimmtán ár skilja okkur að í aldri og alla tíð hef ég litið til þessa bróður míns sem fyrirmyndar. Þetta er auðvitað æskumyndin eins og hún birtist mér. Systkina- hópurinn ásamt frændsystkinum á Vatnsleysubæjunum var stór glað- vær og söngvin. Ég missti auðvit- að af leikjum og uppátækjum eldri barnanna en mér var alltaf ljóst að Einar var einn af þeim sem gættu vel að því að mörk væru sett og farið eftir þeim. Vélvæðing og þró- un bændasamfélagsins var að taka örum breytingum á sjötta áratugn- um. Einar tók virkan þátt í þeirri mótun í uppsveitum Árnessýslu. Hann og fleiri ungir menn grófu skurði og nótt var lögð við dag til að fjölga gröfnum km. Vinsældir skurðgröfustjóra voru ótvíræðar því þeir voru boðberar nýrra tíma með stærri túnum svo auka mætti framleiðsluna. Kappið var stund- um meira en forsjáin hjá bændum og sumir þessara skurða hafa enn ekki notið þess að umlykja grösug tún. Var hægt að hugsa sér betri fyrirmynd fyrir yngri bróður. Gróðurhúsaáhrif og útblástur við skurðgröft voru orð sem ekki voru til í málinu á þessum tíma. Þegar vetur lagðist að tók karl faðir okk- ar að æfa karlakórinn og hver ann- ar en Einar var aðaltenórinn. Enn ein sterka fyrirmyndin. Ung- mennafélagið og félagslífíð í sveit- inni stóð með blóma. Hver annar en Einar lék burðarhlutverkið eitt árið í uppfærslu ungmennafélags- ins í gamla fundarhúsinu á Vatns- leysu, jafnframt því að veita félag- inu forystu. Enn ein fyrirmyndin. En svo kom ástin í spilið og Einar náði í eina glæsilegustu stúlku sveitarinnar. Þau Inga og Einar sem fullu nafni heitir Ingveldur Stefánsdóttir frá Syðri-Reykjum gengu í hjónaband 1959 og vantar aðeins nokkra mánuði í að ná sex- tíu árunum. Ég tel ekki ofmælt að segja að Einar hafi fæðst undir heillastjörnu og að hann hafi verið sannkallaður hamingjuhrólfur í líf- inu. Hver er sinnar gæfu smiður og Einar bar gæfu til að spila vel úr sínum spilum allt til loka. Mann- kostir hans, jafnlyndi, heiðarleiki og félagslyndi nýtti hann vel með Ingu sér við hlið. Hér ætla ég ekki að rekja frekar æviferil Einars, það munu að líkum aðrir gera bet- ur. Vil þó aðeins segja að æsku- stöðvarnar áttu alla tíð ríkan sess huga og sál Einars og þar dvöldu þau Inga ófáar stundir í fjölskyld- ureitnum, Frændgarði, þegar um hægðist. Mér er sagt að hann hafi hvatt mjög til þess að börn þeirra Ingu ásamt barnabörnum og mök- um þeirra færu saman til Króatíu núna í byrjun júní. Enn ein fyr- irmyndin í hinum sterka fjöl- skylduföður. Örfáum dögum eftir heimkomu er höfðinginn allur. Við háan aldur er ekki hægt að hugsa sér betri sögulok og vert að þakka almættinu fyrir vel saminn endi. Enginn flýr dauðann, hann er okk- ar vissu sögulok. Ég þakka Einari fyrir handleiðslu fyrr og síðar. Við áttum samleið í söngstarfi með Fóstbræðrum í nær fimmtíu ár. Þakka þér samfylgdina, kæri bróð- ir, og megi góður Guð styrkja Ingu og fjölskylduna við þessi snöggu umskipti. Viðar Þorsteinsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; Dauðinn er óskeikull en hverf- ull, stundum gerir hann boð á und- an sér en stundum kemur hann fyrirvaralaust. Einar Geir Þor- steinsson, móðurbróðir minn, dó fyrirvaralítið, í faðmi fjölskyldunn- ar 27. júní sl., þegar hann átti rúmt ár í nírætt. Nokkrum dögum fyrir fráfall Einars Geirs kom hann heim úr vel heppnaðri fjölskyldu- ferð til Króatíu með börnum, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Þar naut hann lokaþáttar ævi sinnar með þeim sem honum voru kærust í ægifögru umhverfi Adríahafsins. Þetta var hans „gran finale“ eins og nafni minn, sonur Einars Geirs, orðaði það. Allt þetta ber að þakka, það breytir þó ekki því að okkur sem stöndum eftir er brugðið við brátt fráfalls manns sem skipaði svo þýðingarmikinn sess í lífi okkar. Eftirvæntingin að keyra austur í Tungur verður minni þegar Ein- ars Geirs nýtur ekki lengur við, litbrigði Frændgarðs í gili við Tungufljót eru önnur án Einars Geirs. Einar Geir stjórnaði söng í Tungnaréttum í meir en 40 ár. Maður kemur í manns stað, nú hefur Brynjar á Heiði tekið við sprotanum og fer það vel úr hendi. Það breytir þó ekki því að tónninn í Tungnaréttum verður öðruvísi án Einars Geirs. Fóstbræðra- heimilið, sem hann átti stóran þátt í að reisa, verður tómlegra. Verk- efnið á næstunni er að laga sig að veröld án Einars Geirs. Einar Geir er fæddur og alinn upp á Vatnsleysu í Biskupstung- um, hann var eitt níu barna Þor- steins og Ágústu á Vatnsleysu. Einar Geir gegndi ýmsum störf- um um ævina, oftast stjórnunar- stöðum. Einar Geir var formaður Fóstbræðra um árabil. Undir hans forystu varð viðsnúningur í starfi Fóstbræðra í félagslegu og listrænu tilliti. Í formannstíð hans var félagsheimili Fóstbræðra við Langholtsveg byggt og grunnur lagður að listrænni velgengni kórsins. Eina Geir var þó fyrst og fremst fjölskyldumaður. Hann ræktaði fjölskyldu sína svo eftir var tekið. Einar Geir og kona hans Inga áttu gæfuríkt hjónaband og barnaláni að fagna. Einar Geir var samnefnari niðja sinna og hlúði að fjölskylduþelinu. En Einar Geir var einnig í forystu við ræktun frændgarðs systkina og systkina- barna sinna. Árlega eru haldin fjölskyldumót og ógleymanlegar fjölskylduferðir farnar einkum fyrir hvatningu Einars Geirs. Einar Geir gekk mér að sumu leyti í föðurstað þegar pabbi dó, vorið sem ég fermdist. Hann gerði það með kærleika, umhyggju og stuðningi. Einar Geir var svara- maður minn þegar ég kvæntist konu minni. Fyrir hans tilstilli gekk ég í Fóstbræður liðlega tví- tugur. Einar Geir var fyrirmynd mín og annarra. Ljúfar minningar um mætan mann og góðan frænda eru huggun harmi gegn. Ég er þakklátur fyrir að hafa notið ná- innar samveru við Einar Geir allt mitt líf. Hans verður saknað, hans verður minnst. Hans verður sér- staklega minnst með virðingu og þakklæti 7. ágúst ár hvert á sam- eiginlegum afmælisdegi okkar. en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Þorsteinn Guðnason. HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Betri afa var ekki hægt að finna, allt- af var ég svo velkomin á Móaflötina til ykkar og þegar ég kom var alltaf mikill söngur og lífsgleði frá þér. Ég veit að þú verð- ur alltaf hjá mér að fylgjast með mér og hvetja mig áfram, eins og þú gerðir alltaf. Mun hugsa til þín á hverjum einasta degi. Þín fósturdóttir Guðlaug Dóra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.