Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 20
Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Bridge kl. 12.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12- 16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40- 12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Þriðjudagur: Bridge og Kanasta kl. 13.00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringborðið kl. 8:50. Listasmiðja opin kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Gáfumannakaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, kaffihúsaferð kl. 14, síðdegiskaffi kl. 14.30, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.10, upprifjunar snjallsímanámskeið kl.10.00, kaffispjall í króknum kl.10.30, pútt á golfvellinum kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.00. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.fl. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Hjólhýsi Til Sölu Hjóhýsi Cruzer 460 SR. Swife fast. Árgerð 2017. Næsta skoðunarár 2021. Uppblásið fortjald og motta, eins og nýtt. Verð 3.520.000. Sími: 893-7065 Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019 ✝ Guðjón Pálssonfæddist á Sléttu við Reyðarfjörð 17. september 1943. Hann lést á Borg- arspítalanum í Foss- vogi 24. júní 2019. Foreldrar hans voru Sesselja Páls- dóttir frá Arnhóls- stöðum í Skriðdal, f. 25. mars 1912, d. 22. maí 2002, og Páll Guðjónsson bóndi á Sléttu, f. 21. ágúst 1897, d. 28. júlí 1987. Systkini hans eru Sólrún, f. 14. mars 1942, gift Guðmundi Helga- syni skipstjóra, f. 1. nóvember 1936, og Guðmundur verkefn- isstjóri, f. 5. júlí 1945. Guðjón giftist Sigrúnu Jóns- dóttur, f. 30. ágúst 1946, d. 13. Guðjón stundaði sjómennsku um skeið á Gunnari SU-139 og síldarflutningaskipinu Hafern- inum ásamt vinnu í landi. Einnig vann hann tvær vertíðir í Hrað- frystistöðinni Vestmannaeyjum, þá 17 og 18 ára. Hann fór til Reykjavíkur í Iðn- skólann og lærði húsasmíði. Hann tók sveinspróf og seinna fékk hann meistararéttindi í iðninni. Guðjón keypti Trésmiðju Aust- urbæjar og rak hana í 10 ár og tók að sér verkefni, aðallega við op- inberar stofnanir, t.d. Borgarspít- alann og Veðurstofu Íslands. Eftir það var hann með húsasmíð- arekstur í eigin nafni og byggði m.a. verslunarhúsnæðið í Gerðu- bergi og rak þar verslanir og veit- ingastað. Guðjón rak einnig fyrir- tækið Eignaskipti og ráðgjöf um tíma. Útför Guðjóns fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 9. júlí 2019, kl. 13. október 2018, þau skildu. Sonur þeirra er Birgir Páll, f. 10. september 1967. Birgir á þrjú börn. Sonur Guðjóns og Erlu Tryggvadóttur er Tryggvi Rúnar, f. 8. júní 1965, d. 26. des 2009. Tryggvi lætur eftir sig tvo syni. Sambýliskona Guðjóns til margra ára var Sig- urrós Arthúrsdóttir, þau skildu. Guðjón ólst upp á Sléttu í Reyð- arfirði til 10 ára aldurs en þá flutti fjölskylda hans að Mánagötu 11. Hann var í barna- og unglinga- skóla Reyðarfjarðar og fór í Al- þýðuskólann á Eiðum veturinn 1959-1960. Elsku bróðir minn er látinn. Þegar sólin er hæst á lofti og sumarið yndislegt þá kveður hann þennan heim og er kominn á annan stað. Það hefur verið tekið vel á móti honum af fólkinu okkar. Lífs- hlaup hans ætla ég ekki að rekja hér nákvæmlega, þetta eru aðeins ljósbrot frá liðnum stundum. Góðar minningar frá bernsku, allt frá því við vorum lítil börn heima á Sléttu. Þar var mannmargt heimili. Móðuramma okkar og -afi bjuggu þar og einnig föðuramma okkar. Ég segi að það hafi verið for- réttindi fyrir okkur að fá að alast upp með þeim. Guðjón var lífsglaður, hjartahlýr og stutt var í brosið. Hann var einn af þeim sem þurfa alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni, það kom í ljós strax þegar hann var lítill. En eitt er gæfa og annað gjörvileiki, lífið hefur ekki alltaf verið dans á rós- um. Ég veit að við hittumst seinna og ég veit að þú ert kominn á góðan stað núna. Sólrún Pálsdóttir og Guð- mundur Helgason. Ég man fyrst eftir Guðjóni í boð- um hjá ömmu Sesselju þar sem oft var glatt á hjalla og hafði hann mjög gaman af að gantast í okkur börn- unum enda með eindæmum barn- góður. Alltaf var stutt í hláturinn og alltaf dálítill grallari í honum, marga bíltúra fékk maður einnig með honum, þar sem keyptur var ís eða eitthvert góðgæti, farið í bíó eða eitthvað skemmtilegt gert. Á þessum árum var hann áber- andi í atvinnurekstri og síðar með verslunar- og veitingarekstur; inn- réttaði og byggði ýmis hús í bæn- um. Mikill kraftur og dugnaður ein- kenndu hann, aldrei skortur á bjartsýni og fór hann sínar eigin leiðir. Oft skemmtilegar sögur af hans ævintýralegu framtakssemi sem ekki gefst tími til að fara yfir hér. Því miður fór aðeins að halla undan fæti hjá honum seinna og ef- laust hefur áfengið ekki bætt úr sem því miður var orðinn of stór hluti af lífi hans og dró úr honum þá jákvæðu eiginleika sem hann hafði. Var ég alltaf í ágætis sam- bandi við hann og aðstoðaði eins og ég gat við allt sem ég gat hjálpað með. Sorgleg þáttaskil urðu í lífi hans árið 2007 um verslunarmanna- helgi, þar sem hann fannst meðvit- undarlaus úti á götu við Hraun- berg í Breiðholti með höfuðáverka, engir aðrir áverkar voru til staðar. Miðað við allar upplýsingar sem ég hef leit þetta ekki út eins og hvert annað slys. Ekki tókst lögreglu að finna út hvað gerst hafði en ýmsar getgátur uppi, málið því aldrei ver- ið leyst og líklega aldrei nægilega vel rannsakað enda hafði Guðjón ekki marga sterka málsvara á þessum tíma til að fylgja málum eftir. Eftir þennan atburð hlaut hann alvarlegan heilaskaða og þurfti mikla umönnun allt til dags- ins er hann lést. Þegar ég bjó á Íslandi heimsótt- um við Maria hann eins oft og við gátum á dvalarheimilið í Skipholti þar sem hann var flest árin, fórum með hann í bíltúr og keyptum fyrir hann ís; nú höfðu hlutverkin snúist við. Horfinn er dagur og húma tekur. Gengin að viði er glóey skær. Draumblæja liggur um laut og hæðir. Döggin vætir dala brár. Hljótt er í lundi, hvílir þar friður yfir blikandi bjarkafjöld. Litfríðar jurtir loka augum, blómin sælu blunda vært. Fugla í dölum dreymir í runnum. Blævindar sofa, blakta ei lauf. Lognslétt er hafið himinvíða. – Kvöldið er þrungið kyrrð og ró. Á bláum vötnum bærist ei alda. Elfur og lækir lægja nið. – Friðsæl náttúran faðmi vefur allt og að hjarta sér hneigir rótt. (Gunnar S. Hafdal.) Kæri frændi, hvíl í friði og takk fyrir allar góðu stundirnar. Páll Guðmundsson og Eva Maria Boström. Elsku frændi. Nú ertu látinn og eflaust hvíldinni feginn. Síðustu dagana fyrir andlátið skein sólin sem aldrei fyrr. Við fjölskyldan vorum hjá þér þar til yfir lauk. Út- sýnið úr sjúkrastofunni var fallegt, grasið grænt og trén í fullum skrúða. Ég var sorgmædd yfir ör- lögum þínum og öllum þeim erfið- leikum sem þú þurftir að glíma við. En minningarnar streymdu og runnu aftur til bernskuáranna. Jólaboðin og veislur í Arahólunum hjá ömmu og afa. Þar varst þú hrókur alls fagnaðar og heillaðir okkur krakkana. Þú varst alltaf svo hress og skemmtilegur með góða nærveru. Einnig man ég eftir ferðum þar sem þú hóaðir okkur krökkunum saman í bíó og aðrar skemmtiferðir. Amma og afi bjuggu ykkur systkinunum góða og áhyggju- lausa barnæsku. Þú hafðir alla þá burði sem þarf til þess að farnast vel í lífinu. En hver er sinnar gæfu smiður og má segja að þú hafir ver- ið sjálfum þér verstur. Líf þitt var stöðugur öldugangur, stundum gekk vel og stundum illa. Það var svo fyrir 12 árum að kaflaskil urðu í lífi þínu. Áverkar sem þú varðst fyrir urðu ekki aftur teknir. Við tóku afar erfið ár og hallaði undan fæti smátt og smátt. Ég kveð þig með söknuði elsku Guðjón. Hvíldu í friði. Erna Guðmundsdóttir. Vinur minn Guðjón Pálsson er látinn og verður jarðsettur í dag. Vil ég minnast hans með nokkr- um orðum og þakka góð og inni- haldsrík kynni. Þau hófust vorið 1966 en þá vorum við hásetar á síldarflutningaskipinu Hafernin- um sem Síldarverksmiðjur ríkis- ins höfðu fest kaup á. Þar stofn- uðust vinatengsl okkar Guðjóns sem stóðu traust alla tíð síðan. Af- hending Hafarnarins fór fram í Cuxhaven þar sem unnið var að breytingum á skipinu í um mánuð. Sá tími er einstaklega eftirminni- legur en þau verkefni sem þurfti að sinna áður en skipið fór að þjóna síldarflotanum á Íslandi voru óþrjótandi. Þarna naut Guð- jón sín vel enda lá vel fyrir honum að leysa verkefni. Hann var ekki aðeins harðduglegur heldur ávallt jákvæður og glaðvær. Hann lagði áherslu á gæði og vönduð vinnu- brögð og bar allt sem hann gerði þess merki. Þannig var hann ekki ánægður fyrr en niðurníddir há- setaklefar skipsins höfðu verið gerðir vandvirknislega upp og af smekkvísi. Það var því lærdóms- ríkt að fá að vinna með honum. Þá var hann mörgum góðum kostum búinn og voru þeir ófáir sem nutu hjálpsemi hans og tryggðar. Þrátt fyrir erfiðleika sem hann átti við að glíma síðustu árin eftir að hafa lent í slysi var hann enn jákvæður og brosmildur. Síðustu árin áttum við fáar en góðar stundir og voru þær alveg í hans anda þar sem gæðin voru aðalatriðið. Ég minn- ist Guðjóns með hlýhug og votta fjölskyldu hans samúð mína. Valtýr Sigurðsson. Guðjón Pálsson Snemma á lífs- leiðinni var iðulega langbesti kosturinn í stöðunni að fara í sveitina, þar sem kjarni ættarinnar bjó. Það var þá sem nóg var til að Ólöfum í ættinni. Fjölskyldan að Selalæk 2 voru öll í miklu uppá- haldi og þar var einstök Ólöf. Er furða mann setji hljóðan á þessari stund, því hugur minn reikar til æsku minnar sem Ólöf límdi sam- an. Ég man afmælin, íþróttamót- in, hlöðuna frægu, ómældar klukkustundirnar á Grána og Ljúf, nýja herbergið og sauðburð, sérstaklega ef illa gekk, þá fengu þínar hendur forgang. Smölun, ná í kýrnar og svo margt fleira. Ég heyrði Ólöfu sjaldan kvarta yfir verkefnum dagsins þá nema helst ef þurfti að tætla heilu túnin. Ólöf átti einstaklega gott skap, hafði Ólöf Bjarnadóttir ✝ Ólöf Bjarna-dóttir fæddist 24. maí 1983. Hún lést á 23. júní 2019. Útför Ólafar fór fram 29. júní 2019. húmor og í leik var hún kappsöm bar- áttukona. Ég var mjög stoltur að eiga hana sem frænku. Við létum nægja í seinni tíð að senda á milli stuttar setning- ar en þær sögðu okkur miklu meira, tenging okkar var sterk og það traust rofnaði aldrei. Ég fæ ekki skilið óréttlætið og veik- indi þín að mér finnst miskunn- arlaus en þú tókst á við þau af hörku, festu og þínu einstaka æðruleysi. Frændsystkinafaðmi í æskunni á Selalæk tókum við sem sjálf- sögðum hlut, eðlilega, en hann var í bestu mögulegu útgáfu og hefur fylgt okkur einlæglega síð- an. Þannig minnist ég þín, elsku frænka. Innilegar samúðarkveðjur til Lárusar og dætra Fanndísar og Köru, Bjarna, Kristínar, Braga, Eyglóar, Unnar, Stefáns og Val- dísar. Guðmundur Árnason. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minn- ingargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á net- fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.