Morgunblaðið - 09.07.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019
Belgíski knattspyrnumaðurinn
Youri Tielemans varð í gær dýrasti
leikmaðurinn í sögu enska félagsins
Leicester City sem keypti hann af
Mónakó fyrir 40 milljónir punda. Thie-
lemans, sem hefur leikið 23 landsleiki
fyrir Belgíu, spilaði sem lánsmaður
með Leicester síðustu mánuðina á síð-
asta tímabili.
Stúlkurnar í U17 ára landsliðinu í
knattspyrnu fóru taplausar í gegnum
Norðurlandamótið sem lauk í Svíþjóð í
gær en máttu þó sætta sig við fjórða
sætið. Þær gerðu jafntefli, 2:2, við
Svía í leiknum um bronsið en biðu
lægri hlut í vítaspyrnukeppni. Amanda
Jacobsen Andradóttir og Hildigunnur
Ýr Benediktsdóttir skoruðu mörkin í
leiknum og Cecilía Rán Rúnarsdóttir
varði vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum.
Eyjamenn, sem sitja á botni úrvals-
deildar karla í knattspyrnu, hafa feng-
ið miðjumanninn Sindra Björnsson
lánaðan frá Val. Fot-
bolti.net greindi frá
þessu í gær. Sindri,
sem er 24 ára gam-
all og á að baki 44
leiki með Val og
Leikni R. í efstu
deild, hefur aðeins
leikið einn leik í
deildinni
með
Hlíðar-
endalið-
inu í sumar og
verður ekki
lengi í Eyjum
því hann fer til
náms í Banda-
ríkjunum um
miðjan ágúst.
Eitt
ogannað
Í KAPLAKRIKA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Glæsilegt mark færeyska landsliðs-
mannsins Brands Olsens batt enda á
versta kafla karlaliðs FH í fótbolta í
efstu deild í sautján ár. Hann
tryggði Hafnarfjarðarliðinu nauman
en langþráðan 1:0 sigur á Víkingi í
Kaplakrika í gærkvöld, með skoti
beint úr aukaspyrnu á 78. mínútu og
þar með vann FH sinn fyrsta leik frá
20. maí, í sjö vikur, og fyrsta sig-
urinn í sex leikjum. Það þarf að fara
aftur til haustsins 2002 til að finna
slíkan kafla hjá FH-ingum sem hafa
verið í algjörlega nýrri stöðu í neðri
helmingi deildarinnar síðustu vik-
urnar.
„Þetta var ekki fallegt en það
skiptir engu máli!“ sagði FH-ingur
við mig eftir leikinn og það er ná-
kvæmlega málið. FH-ingar þurftu
að knýja fram sigur með öllum ráð-
um til að dragast ekki frekar niður í
fallbaráttu, og til þess að geta gert
sér vonir um að klifra upp í efri hluta
deildarinnar og jafnvel í baráttu um
Evrópusæti. Það er talsvert langt
þangað enn fyrir FH-inga en þeir
sýndu þó í gærkvöld, sérstaklega
eftir mark Brands, að þeir eru til-
búnir að slást fyrir sigrunum sem
eru nú orðnir fjórir í fyrstu ellefu
leikjunum. Þeir vörðust með kjafti
og klóm eftir mark Brands, Ólafur
H. Kristjánsson fjölgaði í vörninni,
og náðu að standast þunga pressu á
lokakaflanum.
Víkingar tefldu Kára Árnasyni
fram í fyrsta skipti og hann hafði
þau áhrif á varnarleik liðsins að það
virtist aldrei sérstaklega líklegt til
að fá á sig mark. FH skapaði sér
varla færi í opnum leik. Kári og Sölvi
voru með allt á hreinu, og á meðan
voru Guðmundur Kristjánsson og
Pétur Viðarsson reyndar í svipuðum
hlutverkum hinum megin. Þeir síð-
arnefndu höfðu meira að gera eins
og leikurinn þróaðist.
Víkingar voru mun hættulegri
þegar kom að marktækifærum í
annars tilþrifalitlum leik hvað sókn-
arleik varðar. Kwame Quee fékk
tvö bestu færi leiksins, Daði Freyr
Arnarsson, hinn ungi markvörður
FH, varði glæsilega frá honum í
fyrri hálfleik og Quee skaut yfir úr
góðu færi eftir fallega sókn Víkinga í
þeim síðari.
Með ósigrinum sigu Víkingar nið-
ur í fallsæti deildarinnar. Þar eiga
þeir þó engan veginn heima, miðað
við heildarframmistöðu liðsins í
leiknum. En þeir þurfa að skora.
Gullmoli Brands lauk
versta kaflanum í 17 ár
FH-ingar sendu Víkinga niður í fallsæti með 1:0 sigri í Kaplakrika
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annríki Miðverðirnir Pétur Viðarsson og Guðmundur Kristjánsson höfðu mikið að gera í vörn FH.
1:0 Brandur Olsen 78.
I Gul spjöldGuðmundur Kristjánsson,
Brynjar Á. Guðmundsson, Davíð Þór
Viðarsson og Atli Guðnason (FH),
Arnar Gunnlaugsson (Víkingi)
Dómari: Egill A. Sigurþórsson, 5.
Áhorfendur: 1.380.
FH – VÍKINGUR R. 1:0
M
Daði Freyr Arnarsson (FH)
Pétur Viðarsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Brandur Olsen (FH)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Kári Árnason (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Guðmundur Andri Tryggvas. (Vík)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Svíinn Ola Lindgren, sem ráðinn
var landsliðsþjálfari Finna í hand-
knattleik á dögunum, mun ekki að-
eins einbeita sér að því en hann hef-
ur einnig verið kynntur til leiks
sem nýr þjálfari egypska félags-
liðsins Al Ahly og skrifað þar undir
eins árs samning.
Lindgren lét óvænt af störfum
hjá Íslendingaliðinu Kristianstad í
janúar eftir sjö ára veru, en á þeim
tíma varð liðið meðal annars sænsk-
ur meistari fjórum sinnum. Hann
stýrði einnig sænska landsliðinu á
árunum 2008-2016 og vann silfur á
Ólympíuleikunum í London árið
2012. Áður stýrði hann meðal ann-
ars þýska stórliðinu Rhein-Neckar
Löwen og sem leikmaður var hann
hluti af afar sigursælu landsliði
Svía rétt fyrir aldamót.
Lindgren mun nú flytjast búferl-
um til Kaíró þar sem honum er ætl-
að sem þjálfari að leiða enn frekar
framþróun handboltans hjá Al
Ahly. Um er að ræða sigursælasta
félag Egyptalands sem nú er
ríkjandi bikarmeistari og hefur
unnið meistaratitilinn 23 sinnum,
en Al Ahly hefur verið í sérflokki
þar í landi ásamt ríkjandi meist-
urum Zamalek.
Lindgren sagðist við undirskrift-
ina hlakka til að innleiða skandin-
avíska handboltahugsun hjá félag-
inu með því að byggja á sterkum
varnarleik og hraðaupphlaupum.
Egyptar hafa lengi verið ein
sterkasta handboltaþjóð Afríku og
sjö leikmenn Al Ahly voru í lands-
liðinu á heimsmeistaramótinu í jan-
úar þar sem Egyptar spiluðu um
sjöunda sætið. Þá eru Egyptar gest-
gjafar næsta heimsmeistaramóts
árið 2021. yrkill@mbl.is
Stýrir Finnum og
þjálfar í Egyptalandi
Ljósmynd/Al Ahly
Egyptaland Ola Lindgren með
treyju Al Ahly við undirskrift.