Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Tókst að afstýra hörmulegu slysi
Snör handtök urðu til þess að togarinn Orlik sökk ekki í Njarðvík Táningum var bjargað úr skipinu
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Fjórir táningar á aldrinum 13-15 ára
voru inni í rússneska togaranum Or-
lik í Njarðvíkurhöfn í fyrrinótt þegar
litlu munaði að hann sykki, en snör
viðbrögð urðu til þess að þeim var
komið út úr skipinu. Þá tókst að
koma í veg fyrir að skipið sykki.
Skipið verður fært úr höfninni á
næstu vikum og flutt í Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur til niðurrifs, en það
er í eigu Hringrásar.
Togarinn hefur verið við höfnina í
um fimm ár og einu sinni áður hefur
það hent að koma hefur þurft í veg
fyrir að það sykki. Halldór Karl Her-
mannsson, hafnarstjóri í Reykjanes-
höfn, sagði í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi að táningarnir hefðu líklegast
verið að forvitnast eins og krakka sé
oft siður. Hann vildi ekki hugsa til
þess ef illa hefði farið.
Rétt mat hafnaryfirvalda
Snörum handtökum Sigurðar
Stefánssonar hjá Köfunarþjónustu
Sigurðar er að þakka að skipið sökk
ekki í gær að því er fram kom í frétt
Víkurfrétta. Fyrirtækið hafði eftirlit
með skipinu og þegar aðstæður voru
kannaðar um borð í síðustu viku var
allt með felldu. Þegar skipið tók að
sökkva var kallaður til mannskapur
og mengunarvarnabúnaður fenginn
frá Faxaflóahöfnum. Dælum var
komið fyrir í skipinu og um klukkan
tvö í fyrrinótt hóf dælingin að skila
árangri.
Sigurður hjá köfunarþjónustunni
hefur áður þurft að bjarga skipinu,
en svipað atvik kom upp fyrir tveim-
ur árum. Þá stóð til að rífa skipið, en
ekki varð af því. Leyfi til þess fékkst
á föstudag að afloknum neyðarfundi
með Umhverfisstofnun, en stofnunin
þurfti að gefa leyfi til niðurrifs togar-
ans í ljósi stærðar hans sem er 1.800
brúttótonn.
Halldór Karl sagði í samtali við
mbl.is að það hefði reynst ágætis
staðfesting á mati hafnaryfirvalda
þegar skipið tók að leka. „Við tókum
eftir því fyrir um tíu dögum að ryð-
göt voru í gömlu sjólínunni og gerð-
um strax ráð fyrir að þetta væri ekki
eini staðurinn,“ sagði hann.
Hefði skipið sokkið hefði orðið
talsvert tjón, en kostnaður við að ná
sokknu skipi úr höfninni getur hæg-
lega náð 200 milljónum króna. Hall-
dór vísaði til þess að aðgerðir við að
losa sanddæluskipið Perlu úr
Reykjavíkurhöfn kostuðu á bilinu
150-200 milljónir króna, en Orlik er
þó mun stærra skip.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Orlik Ljósmyndin er úr safni.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Íslenskum ríkisborgurum sem búa í
Reykjavíkurborg fækkaði um u.þ.b.
þúsund á árunum 2016 til 2019, að
því er fram kemur í tölum Hagstofu
Íslands um mannfjölda á fyrsta árs-
fjórðungi þessara ára. Á sama tíma
fjölgaði erlendum ríkisborgurum í
borginni um u.þ.b. 7.600.
Reykjavík er eina sveitarfélagið á
höfuðborgarsvæðinu þar sem ís-
lenskum íbúum fækkaði á þessu ára-
bili, en íslenskum ríkisborgurum
fjölgaði lítillega í hverju hinna sveit-
arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Fjölgað um 18 þúsund frá 2016
Á landsvísu fjölgaði íslenskum rík-
isborgurum um 6.470, úr 306.640 í
313.110 á árunum 2016-2019. Er-
lendum ríkisborgurum fjölgaði aftur
á móti um 18.010, úr 27.660 í 45.670.
Á heildina litið hefur íbúum í
Reykjavík fjölgað mest frá árinu
2016, eða um 6.660, en næstmest
fjölgun hefur orðið í Kópavogi, um
2.590.
Hlutfall erlendra ríkisborgara í
borginni árið 2016 var 9,4%, en var
fyrr á þessu ári 14,9%. Þannig hefur
hlutfall íslenskra ríkisborgara farið
úr 90,6% í 85,1%. Þetta er fjölgun
sem nemur 5,4 prósentustigum, en á
landinu öllu fjölgaði erlendum ríkis-
borgurum um 4,5 prósentustig.
Hlutfall erlendra ríkisborgara á
landinu öllu er 12,7%, en var 8,3% ár-
ið 2016. Hlutfallslega búa fæstir er-
lendir ríkisborgarar í Garðabæ,
4,5%, en þar á eftir kemur Seltjarn-
arnesbær með 7,7%. Í Hafnarfirði,
Kópavogi og Mosfellsbæ er þessi
tala á bilinu 7,8-11%, flestir erlendir
ríkisborgarar búa í Hafnarfirði og
fæstir í Mosfellsbæ.
Fer fækkandi í Reykjavík
Einungis þar fækkar Íslendingum á höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Hari
Reykjavík Íbúum borgarinnar hef-
ur fjölgað um 6.660 frá árinu 2016.
Siðanefnd Al-
þingis hefur lokið
umfjöllun sinni
um Klausturs-
málið og sent
forsætisnefnd
þingsins álits-
gerð. Fá þeir sex
þingmenn sem
málið varðar
frest út þessa
viku til að bregð-
ast við álitinu og mun forsæt-
isnefnd líklega ljúka málinu í næstu
viku. Steinunn Þóra Árnadóttir,
þingmaður Vinstri grænna, stað-
festi þetta í samtali við mbl.is í
gærkvöldi.
Steinunn Þóra er önnur tveggja
sérstakra varaforseta Alþingis
vegna Klaustursmálsins. Hún og
Haraldur Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, óskuðu á sín-
um tíma eftir áliti siðanefndar um
hvort gildissvið siðareglna Alþingis
ætti við um þær samræður sem
teknar voru upp á barnum Klaustri
steinsnar frá þinghúsinu. Var það
mat meirihluta ráðgefandi siða-
nefndar að ummæli og hegðun
þingmannanna sex sem náðist á
upptöku féllu undir gildissvið siða-
reglnanna. Var málinu þá vísað til
siðanefndar til efnislegrar umfjöll-
unar og er þeirri vinnu nú lokið.
Málið snýst um niðrandi ummæli
sem þingmenn Flokks fólksins og
Miðflokksins létu falla um ýmsa
samstarfsmenn sína á umræddum
bar 20. nóvember í fyrra.
Beðið
viðbragða
þingmanna
Klaustur Staðurinn
varð umtalaður.
Siðanefnd hefur
lokið Klaustursmálinu
Heldur fjölgaði í Grundarfirði í gær þegar þrjú
skemmtiferðaskip heimsóttu bæinn. Aldrei áður
hafa jafn mörg skemmtiferðaskip komið til
Grundarfjarðar á einum og sama deginum.
Skipin þrjú eru Sapphire Princess, Star
Breeze og Astoria, en samanlagt fluttu þau um
3.780 farþega. Fyrir vikið fylltist bærinn, þar
sem íbúafjöldi er tæplega 900 manns, af gestum.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri sagði í samtali
við mbl.is í gær að Sapphire Princess væri
stærsta skipið sem kemur til Grundarfjarðar í
sumar, en með því komu 3.000 farþegar. Hún
sagði að vel hefði gengið að taka á móti farþeg-
unum í landi enda hefðu bæjarbúar langa
reynslu af því.
Fjórfaldur íbúafjöldi heimsótti bæinn
Morgunblaðið/Anna Lilja Þórisdóttir
Þrjú skemmtiferðaskip lögðust að bryggju í Grundarfirði