Morgunblaðið - 23.07.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Herrasandalar úr leðri
Útsöluverð
4.497
Verð áður 8.995
Stærðir 40-46
Útsalan í fullum gangi
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
-30%
-40%
40%
Askov Tungusófi 195x185 cm kr. 176.600 Freja hliðarborð 2 í setti kr. 44.600
Nú kr. 123.620 Nú kr. 29.760
ALLIR PÚÐAR
20 - 40%
AFSLÁTTUR
Tristan ljós kr.13.900
Marocco puff kr.32.800
Nú 8.340
Nú 24.600
- -25%
S U M A R Ú T S A L A
10 - 50 % afsláttur af öllum vörum
Evrópsk flugmálayfirvöld hafa kyrr-
sett allar flugvélar af sömu tegund
og flugvélin sem fórst í Umeå í Sví-
þjóð fyrir viku
með þeim afleið-
ingum að níu
manns létu lífið.
Báðar flugvélar
íslenska flug-
félagsins Circle
Air eru af þessari
tegund og hefur
félagið því þurft
að verða sér út
um lánsvélar á
meðan kyrrsetningin stendur yfir.
Flugvélarnar sem um ræðir eru af
gerðinni GippsAero GA8 Airvan.
Segir kyrrsetninguna hafa
lágmarksáhrif á reksturinn
Circle Air gerir út þyrlur og flug-
vélar frá Akureyri og Reykjavík og
telur framkvæmdastjóri flugfélags-
ins að kyrrsetning muni hafa lítil
áhrif á reksturinn sem gangi vel.
„Það verður lágmarksröskun [á
rekstri Circle Air] en það er háanna-
tími núna og auðvitað kemur þetta
ekki vel við reksturinn,“ segir Þor-
valdur Lúðvík Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Circle Air, í samtali
við mbl.is og bætir við:
„En sem betur fer hvílir rekstur-
inn á mörgum stoðum og við þolum
þetta í einhvern tíma en ef þetta
verður til langs tíma þá mun það auð-
vitað rífa í. Það segir sig sjálft.“
Hann segir ekkert hægt að segja
til um hvað kyrrsetningin gæti varað
lengi, hvort sem það er ein vika eða
sex mánuðir. Hann telur þó enga
sérstaka ástæðu benda til þess að
kyrrsetningin gæti varað í langan
tíma þar sem slysið í Svíþjóð hafi
verið furðufyrirbæri eða „freak acci-
dent“.
„Það er engin sérstök ástæða til að
halda að þetta verði langt. Þessar
vélar hafa ekki lent í neinum öðrum
slysum nema árið 2008 en það var af
allt öðrum ástæðum. „Freak acci-
dent“ er nákvæmlega orðið yfir
þetta [slysið í Svíþjóð],“ útskýrir
hann og bætir því við að GippsAero
GA8 Airvan-flugvélarnar hafa í
marga áratugi verið notaðar í erfið-
um aðstæðum svo sem við björgun-
arstörf og í hjálparstörfum í Afríku.
Circle Air hefur fengið tvær
Cessna-flugvélar til að brúa bilið á
meðan GA8 vélarnar eru kyrrsettar,
annars vegar Cessna 206 og hins
vegar Cessna 207.
Þorkell Jóhannsson, flugmaður
hjá Circle Air, segir að Cessna-vél-
arnar hafi svipaða eiginleika og GA8
og muni því nýtast vel. Spurður
hverjir kostir GippsAero GA8 Air-
van-flugvélanna séu segir Þorkell að
þær séu vel og skemmtilega hann-
aðar og henti í ýmsum aðstæðum.
„Hún hefur þá kosti að vera sterk-
byggð og traust með stóra glugga og
þannig upplögð í útsýnisflug. Í henni
eru gangar milli sæta og stór renni-
hurð sem gerir auðvelt að umgang-
ast hana og þess vegna er hún vinsæl
fyrir fallhlífarstökk.“
Framleiðsla stöðvuð meðan
rannsókn stendur yfir
En GA8-vélarnar hafa ekki ein-
ungis verið kyrrsettar í Evrópu held-
ur hafa flugmálayfirvöld í Ástralíu
kyrrsett 68 slíkar vélar þar í landi.
Þetta kom fram á vef The Guardian í
gærkvöldi. Sænsk flugmálayfirvöld
kyrrsettu allar vélar af þessari gerð í
kjölfar slyssins í Umeå og evrópsk
flugmálayfirvöld gerðu slíkt hið
sama á föstudaginn síðastliðinn.
Flugvélarnar eru framleiddar í
Ástralíu og eru eins hreyfils flugvél-
ar með leyfi fyrir átta manns. Í flug-
vélinni sem fórst í Svíþjóð voru aftur
á móti níu manns um borð.
Yfirvöld í Ástralíu hafa stöðvað
framleiðsluna tímabundið á meðan
rannsókn á vélunum fer fram. Kyrr-
setning mun vara til 3. ágúst.
Alls eru 228 flugvélar af gerðinni
GippsAero GA8 Airvan í notkun í
heiminum.
Kyrrsetja vél-
ar Circle Air
Sömu gerðar og vél sem fórst í Svíþjóð
Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson
Ljósmynd/Circle Air
Kyrrsettar Vél Circle Air, af gerðinni GippsAero GA8 Airvan.
Þeir sem hyggja á að hlaupa heilt
maraþon í Reykjavíkurmaraþoni Ís-
landsbanka í ágúst mega búast við
því að stemningin á hlaupaleiðinni
verði meiri en undanfarin ár.
Hlaupaleiðinni hefur verið breytt
og liggur hún nú í auknum mæli í
gegnum íbúðargötur í borginni, fer
meðal annars um Tún, Teiga og
Bryggjuhverfi. Einnig verður farið í
gegnum miðbæinn, um bæði Berg-
staðastræti og Grettisgötu, þar sem
búast má við því að fjöldi fólks verði
á ferli til þess að hvetja keppendur
til dáða.
Maraþonhlauparar hafa undanfar-
in ár gagnrýnt það að síðari hluti
keppnisbrautarinnar taki á, þar sem
hlaupaleiðin hefur á síðari hlutanum
legið um Fossvog og meðfram
strönd Seltjarnarness alla leið út að
Gróttu, á göngustígum þar sem fáir
eru til þess að hvetja hlauparana
áfram. Hvatning skiptir enda miklu
máli þegar búið er að fara á tveimur
jafnfljótum yfir 30 kílómetra leið og
þreyta og óþægindi byrjuð að sækja
að.
Breytingarnar á leiðinni hafa ver-
ið gerðar í samráði við lögreglu,
Reykjavíkurborg og Strætó og hefur
ferlið staðið yfir frá því síðasta
haust. Truflanir verða á umferð í
þeim götum sem bætast við hlaupa-
leiðina í ár. Þetta verður kynnt nán-
ar þegar nær dregur, sagði Jóna
Hildur Bjarnadóttir, stjórnandi
Reykjavíkurmaraþonsins, í samtali
við mbl.is í gær.
Maraþonið um íbúðargötur
Vonast til að stemningin aukist við breytingu á leiðum
Olíuverzlun Íslands, Olís, hefur
skrifað undir samning þess efnis að
allur rekstur félagsins verði kolefn-
isjafnaður, en um er að ræða allan
akstur, flug og dreifingu eldsneytis
til viðskiptavina félagsins um allt
land. Verkefnið er unnið í samstarfi
við Landgræðsluna en Olís og
Landgræðslan hafa átt í samstarfi
undanfarin 30 ár og undirrituðu sl.
föstudag samstarfssamning til
næstu fimm ára. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu frá Olís.
Haft er eftir Jóni Ólafi Halldórs-
syni, forstjóra Olís, að þótt samn-
ingurinn sé til fimm ára horfi félag-
ið lengra fram í tímann. Um sé að
ræða samstarfsverkefni sem eigi
sér rætur 30 ár aftur í tímann. Seg-
ist Jón Ólafur líta svo á að Olís muni
vinna þetta áfram með Land-
græðslunni í framtíðinni. Á þremur
áratugum hefur Olís styrkt Land-
græðsluna um 80 milljónir króna.
Olís kolefnisjafnar
allan reksturinn
Kolefnisjöfnun Jón Ólafur Hall-
dórsson og Árni Bragason rita
undir samstarfssamninginn.