Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Shriharikota. AFP. | Indverjar skutu á loft burðarflaug með brautarfar og lendingarfar í gær og gangi áform þeirra eftir verður Ind- land fjórða landið til að senda lendingarfar á yfirborð tunglsins, á eftir Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og Kína. „Allir Indverjar eru mjög stoltir núna!“ sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Ind- lands, í yfirlýsingu um geimskotið á Twitter. „Stórmerkileg stund sem verður skráð í ann- ála stórkostlegrar sögu okkar!“ bætti hann við. Modi segir að landið sé nú á meðal helstu „geimvelda heimsins“ og hefur lofað að senda mannað geimfar á braut um tunglið árið 2022. Í fyrstu tunglferð Indverja, Chandraya- an-1, fór ómannað geimfar á braut um fylgi- hnöttinn fyrir ellefu árum til að leita að merkjum um vatn. Önnur tunglferð Indverja, Chandrayaan-2, hófst í gær klukkan 2.43 að staðartíma (kl. 9.13 að íslenskum) þegar geimflaug var skotið frá Satish Dhawan-geimvísindastöðinni á eyj- unni Shriharikota. Ram Nath Kovind, forseti Indlands, og 7.000 aðrir gestir fylgdust með geimskotinu ásamt börnum sem veifuðu fána landsins. Yfirborð tunglsins rannsakað Burðarflauginni var skotið á loft með brautarfar, lendingarfar og geimvagn. Gert er ráð fyrir því að brautarfarið verði á braut um tunglið í um ár, taki myndir af yfirborðinu, leiti að merkjum um vatn og rannsaki loft- hjúpinn. Lendingarfarið er nefnt eftir Vikram Sarabhai, föður geimrannsóknaáætlunar Ind- verja, og stefnt er að því að það lendi á tungl- inu í byrjun september. Í farinu er geimvagn sem nefnist Pragyaan. Honum verður fjar- stýrt á tunglinu og gert er ráð fyrir því að hann ljúki rannsóknunum á 14 jarðdögum, eða u.þ.b. hálfum tungldegi (tímanum sem það tekur tunglið að snúast um möndul sinn). Metnaðarfull en tiltölulega ódýr Kumar Krishen, fyrrverandi vísindamaður NASA, sagði það lofsvert að indverska geim- vísindastofnunin skyldi takast á hendur svo metnaðarfullt verkefni sem Chandrayaan-2 væri. „Við þurfum að hafa í huga að geimferð- um fylgir áhætta því að margir leiðangrar hafa mistekist og mörg mannslíf tapast,“ sagði hann. Undirbúningur tunglferðarinnar kostaði jafnvirði 17,5 milljarða króna, miklu minna en sambærilegar geimferðir annarra landa. Til samanburðar má nefna að allar Apollo-ferðir NASA kostuðu samtals rúma 100 milljarða dala, jafnvirði 12.500 milljarða króna, en þá voru geimfarar sendir til tunglsins á árunum 1969 til 1972. Heimildir: ISRO, NASA – kortleggja steindir og svæði við suðurskautið – rannsaka yfirborðið og lofthjúpinn Auka þekkingumanna á uppruna og þróun tunglsins: – staðfesta vísbendingar um ís Tæknilegt markmið Markmið vísindarannsóknanna Lendingarfarið lækkar flugið Geimvagninn Pragyan Sólarknúinn Á að rannsaka yfirborð suðurpóls tunglsins Drægi 500 metrar 27 kg Fyrirhuguð lending á tunglinu: Í september, 48 dögum eftir geimskotið Lendingar- farið Vikram 1.471 kg Verður í notkun í 14 daga Braut um tunglið Brautarfar 2.379 kg Lendingarfar Burðarflaugin GSLVMk-III Er alindversk Leiðangur Indverja til tunglsins: Chandrayaan-2 NÝJA DELHÍ Skotið á loft frá Sriharikota á Indlandi „Allir Indverjar eru mjög stoltir núna“  Indverjar skjóta ómönnuðu geimfari til tunglsins og ætla að senda þangað mannað brautarfar Keppandi stekkur ofan af 22 metra hárri brú í ána Drin í þorpinu Dol, um nítján kílómetra frá borginni Gjakova í Kósóvó. Brúin er frá átjándu öld og vinsæll áfangastaður ferðamanna. Stökk- og dýfingarkeppni var fyrst haldin á brúnni árið 1954 og hún hefur verið haldin á hverju sumri síðustu árin eftir hlé á árunum 1999 til 2014. AFP Stokkið fram af hárri brú Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bresk dagblöð segja að minnst sex ráðherrar og aðstoðarráðherrar búi sig undir að segja af sér á næstu dög- um vegna brexitstefnu Boris John- sons ef hann verður leiðtogi Íhalds- flokksins og næsti forsætisráðherra Bretlands. Póstkosningu um 160.000 skráðra félaga í Íhaldsflokknum lauk í gær og úrslitin verða tilkynnt í dag. Kosið var á milli Johnsons og Jeremy Hunts utanríkisráðherra og talið var líkleg- ast að sá fyrrnefndi færi með sigur af hólmi. Gert er ráð fyrir því að sigur- vegari leiðtogakjörsins taki við emb- ætti forsætisráðherra af Theresu May á morgun. Philip Hammond fjármálaráðherra sagði á sunnudag að hann myndi segja af sér áður en Boris Johnson yrði forsætisráðherra vegna brexit- stefnu leiðtogaefnisins. Johnson hef- ur lofað því að Bretland gangi úr Evr- ópusambandinu 31. október, jafnvel þótt ekki náist nýr samningur um út- gönguna. Hammond og fleiri ráð- herrar og þingmenn Íhaldsflokksins eru hins vegar andvígir útgöngu án samnings, segja að hún myndi hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag landsins. David Gauke dóms- málaráðherra hefur einnig sagt að hann hyggist segja af sér þegar nýr leiðtogi tekur við. Þá tilkynnti sir Al- an Duncan aðstoðarutanríkisráð- herra í gær að hann hefði ákveðið að segja af sér vegna væntanlegra breytinga á brexitstefnu ríkisstjórnar Íhaldsflokksins. Ríkisstjórnin felld? Ríkisstjórn Íhaldsflokksins er nú aðeins með þriggja sæta meirihluta á þinginu vegna úrsagna þingmanna úr flokknum. Hammond og fleiri íhalds- menn á þinginu hafa gefið til kynna að þeir myndu fella ríkisstjórnina frekar en að samþykkja útgöngu Bretlands úr ESB án samnings. Sautján þing- menn Íhaldsflokksins snerust á sveif með stjórnarandstöðunni í vikunni sem leið og samþykktu tillögu um að hindra að næsti forsætisráðherra gæti slitið þingi eða sent það heim tímabundið til að knýja fram útgöngu án samnings. Talið er þó að erfitt yrði fyrir þingmennina að hindra útgöngu án samnings því að eins og staðan er núna gengur Bretland sjálfkrafa úr ESB 31. október nema samningur ná- ist eða ef sambandið samþykkir að fresta útgöngunni. 2007 20101997 1990 1979 2016 2019 Theresa May 2016-2019 Forsætisráðherrar Bretlands frá 1979 David Cameron 2010-2016 Gordon Brown 2007-2010 Tony Blair 1997-2007 John Major 1990-1997 Margaret Thatcher 1979-1990 Verkamannaflokkurinn Íhaldsflokkurinn Ráðherrar í Bret- landi boða afsögn  Eru andvígir stefnu Boris Johnsons í brexitmálinu Vill „stöðva brexit“ » Jo Swinson, 39 ára þing- kona, hefur verið kjörin leið- togi Frjálslyndra demókrata, fyrst kvenna. » Swinson hét því í gær að gera allt sem í valdi sínu stæði til að „stöðva brexit“. AFP Leiðtogi Swinson fagnar kjörinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að ekkert væri hæft í fullyrðingum embættismanna klerkastjórnarinnar í Íran um að leyniþjónustumenn hennar hefðu leyst upp hóp Írana sem hefðu njósnað fyrir bandarísku leyni- þjónustuna CIA. Írönsk yfirvöld sögðu í gær að alls hefðu sautján Íranar verið handteknir frá mars á síðasta ári og nokkrir þeirra hefðu verið dæmdir til dauða en aðrir fengið langa fangelsisdóma. Klerkastjórnin heldur því fram að mennirnir hafi látið CIA í té upp- lýsingar sem varði meðal annars her Írans og kjarnorkustöðv- ar landsins. Trump sagði á Twitter að þess- ar fullyrðingar Írana væru „al- rangar“, „lygar og áróður“. Mikil spenna hefur verið í samskiptum landanna eftir að Trump ákvað fyrir rúmu ári að draga Bandarík- in út úr kjarnorkusamningi sex landa við Íran. DONALD TRUMP NEITAR FULLYRÐINGUM ÍRANA Donald Trump Segjast hafa leyst upp njósnahóp CIA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.