Morgunblaðið - 23.07.2019, Page 28

Morgunblaðið - 23.07.2019, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Smáauglýsingar Bækur Hefur þú áhuga á Strandasýslu? Vissir þú að Guðlaugur Gíslason frá Steinstúni hefur samið fjórar bækur þar sem sögusviðið er einkum úr Árneshreppi? Vestfirska forlagið jons@snerpa.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Námskeið Námskeið í Reiki Heilun Lærðu Reiki fyrir sjálfan þig. Reiki iðkun stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan ásamt almennu jafnvægi í lífinu, viðurkennt sem hluti heilbrigðis- þjónustu erlendis. Hólmfríður reiki@simnet.is/spamidill.is 8673647 Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.fl. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Veiði Sumarið er tíminn S. 555 6090 • heimavik.is Tveir góðir úr nýju netunum Reynsla • Þekking • Gæði Heimavík, s. 892 8655 Silunganet • Sjóbleikjunet Flot og Sökknet Fyrirdráttarnet Ofurnet fyrir fiskeldisfélög Bleikjugildrur Netin í littlasjó tilbúin Sendum um land allt Tjaldvagnar Fjallatjaldvagn til sölu Upphækkaður með alvöru fjöðrun. Upplitaður og snjáður en í góðu lagi. Fortjald fylgir. Uppl. í síma 6609970 Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús, t.d. spil kl. 13-15. Bridge kl. 12.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535 2700. Boðinn Bridge og Kanasta kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringborðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Salatbar kl. 11.30-12.15. Hádegismatur kl. 11.30. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Kosning á nafni á æfingarsvæðið stendur yfir, komdu og taktu þátt, þitt atkvæði skiptir máli. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Tölvu- og snjallsímakennsla kl. 10.30. Opin handverksstofa alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegismatur frá kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Verið velkomin á Vitatorg. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upples- tur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, kaffihúsaferð kl. 14, síðdegiskaffi kl. 14.30, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 411 2760. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. 200 mílur ✝ VilhjálmurHannesson fæddist 11. júlí 1936 í Efstabæ í Skorradal. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. júlí 2019. Foreldrar hans voru Hannes Vil- hjálmsson, bóndi í Sarpi, f. 17. júní 1903, d. 2. októ- ber 1971, og Hanna Ingibjörg Lárusdóttir húsfreyja, f. 28. maí 1909, d. 24. janúar 1999. Vilhjálmur var sá fimmti í röð ellefu systkina. Systkini hans eru í aldursröð: Ragn- hildur, f. 1926, Guðrún, f. 1929, d. 2016, Auðbjörg, f. 1930, d. 2011, Helga, f. 1933, Hanna, f. 1939, Hjördís, f. 1942, Jónas, f. 1945, Lárus, f. 1949, Valborg, f. 1954, og f. 1994, og Helena, f. 2002, unnusta Heiðars er Hafdís Davíðsdóttir, f. 1992. 3) Arn- dís, f. 8. ágúst 1982, gift Eggerti Jóni Magnússyni, dóttir þeirra er Svava, f. 2011. Fyrstu tvö æviárin átti Vilhjálmur heima í Efstabæ í Skorradal, en síðan flutti fjölskyldan að Sarpi í sömu sveit. Vilhjálmur ólst upp við almenn sveitastörf og var í farskóla í Skorradal. Vilhjálmur stundaði bú- skap með foreldrum sínum til þrítugs og seinna gegndi hann ýmsum öðrum störfum, m.a. sem farmaður á milli- landaskipi, afgreiðslumaður hjá BYKO, vaktmaður í Olíu- birgðastöðinni á Miðsandi og starfsævinni lauk hann hjá Kópavogsbæ. Árið 1971 stofnaði Vil- hjálmur heimili í Kópavogi ásamt eiginkonu sinni en síð- ar flutti fjölskyldan í Garða- bæ. Útför Vilhjálms fer fram frá Garðakirkju í Garðabæ í dag, 23. júlí 2019, kl. 13. Guðmundur, f. 1956, d. 1961. Hinn 29. maí 1971 kvæntist Vil- hjálmur eftirlif- andi eiginkonu sinni, Guðmundu Ólöfu Jónsdóttur, f. 7. september 1951. Foreldrar hennar voru Sól- veig Laufey Eyj- ólfsdóttir, f. 31. október 1918, d. 28. nóv- ember 1989, og Jón Bjarna- son, f. 29. september 1917, d. 27. desember 1999. Dætur Vilhjálms og Guð- mundu eru: 1) Sólveig, f. 1. október 1971, gift Haraldi Emilssyni, dóttir þeirra er Magnea, f. 1997. 2) Hanna, f. 20. júlí 1974, var gift Ara Kristmundssyni, þau skildu. Börn þeirra eru Heiðar Örn, Þau voru þung sporin er ég gekk út af Hrafnistu daginn sem þú kvaddir okkur. Það var sárt að kveðja en minning þín lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þú varst börnum mínum góð- ur afi og mér góður faðir. Það var erfitt að sjá hvernig sjúkdómurinn fór með líkama þinn en alltaf var þó hugsunin skýr og gátum við spjallað sam- an um hinu ýmsu málefni. Það eru margar minningarn- ar sem rifjast upp þegar komið er að kveðjustund, allar ferð- irnar í hesthúsið, útreiðar- túrarnir og þær stundir sem við áttum saman, minningar sem ekki verða teknar frá okkur. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ég kveð þig hér elsku pabbi og þakka þér fyrir samfylgdina. Þín dóttir, Hanna. Tengdafaðir minn, Vilhjálm- ur Hannesson, er látinn. Ég kynntist Villa fyrst vorið 2006, þegar hann var rétt tæp- lega sjötugur. Hann var þá ný- lega hættur að vinna, en sat aldrei auðum höndum. Hann fór á fætur og viðraði hundinn fyrir allar aldir, og þegar flestir voru á leið í vinnu voru þeir að koma inn eftir góðan göngutúr. Hann og hundurinn voru miklir fé- lagar, og nutu báðir góðs af. Hestamennskan átti jafnframt hug hans allan og hann sinnti hrossunum af natni, eins og reyndar öllum skepnum. Það var honum því mikil raun þegar hann greindist með Lewy body-sjúkdóminn árið 2012. Missti hann upp úr því smátt og smátt allan mátt og hreyfigetu, og þurfti sífellt meiri aðstoð við daglegar at- hafnir. Hann var þó skýr og hafði gott minni, alveg fram á síðustu daga var hægt að gleðja hann með sögum af uppátækj- um hundsins á heimilinu. Villi var trygglyndur og þó hann væri nægjusamur var hann örlátur þegar þess þurfti. Hann var ósérhlífinn og stund- vís og alltaf tilbúinn að hjálpa til, féll honum sjaldan verk úr hendi. Hann var fróður, víðles- inn og vel að sér um landsins gagn og nauðsynjar. Hann hafði litríkt orðfæri, var skemmtileg- ur viðræðu og kunni ýmsan kveðskap utanbókar. Hann hafði dálæti á skáld- skap Davíðs Stefánssonar, sér í lagi ljóðinu „Kirkja finnst hér engin“, um afdalaklerkinn sem kom sóknarbörnum sínum heil- um í gegnum aftakavetur með því að fórna til þess eigin búi og rífa kirkjuna á staðnum í eldivið fyrir sóknarbörnin. Síðustu árin dvaldi Villi á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem hann þurfti mikla umönnun vegna veikinda sinna. Heilsu hans hrakaði hratt, og ég hugsa að hann hafi verið hvíldinni feg- inn þegar yfir lauk. Ég trúarveikur tók til minna ráða. Með talandi verkum hvatti ég til dáða. Ég gekk til þeirra, er gátu heyi fargað, og gat á þann hátt mörgum skepn- um bjargað. Sjálfur lét ég mikið hey af hendi. Hungruðu fólki matbjörg nokkra sendi. Mitt guðsorð var að miðla feng og forða til fólks, sem annars væri hungur- morða. Einn spaðbiti var máttugri en messa. Ég mælti í fólkið kjark, en hætti að blessa. Kúgildin öll ég kotungunum sendi. Mín köllun var að láta allt af hendi. Þau urðu forlög fáka minna og sauða að frelsa börn með sínum eigin dauða. Af gaddinum hefði getað hlotist verra. Ég gaf það, sem ég átti – og meira, herra. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Eggert Jón Magnússon. Elsku afi. Það er komið að kveðjustund. Tími þinn hér með okkur er kominn á enda en minning þín lifir í hjarta okkar til endaloka. Ég þakka þér fyrir allar sam- verustundir okkar. Ég gleymi því seint þegar við fórum í trjá- ræktina til Birgis og traktorn- um þar, en þá sá ég þig fyrst keyra. Mér þótti það merkilegt og var ég þá einungis unglings- drengur. Við spiluðum stöku sinnum, en helst af öllu gaf nærvera þín mér hugarró í heimi sem sífellt hraðast. Ég veit að þú ert kom- inn á góðan stað núna, laus undan veikindunum og með Stubb hjá þér, sólin skín og kjötsúpa á hverju horni með feitum bitum. Elsku afi minn, mín helsta og dýrmætasta minning er tann- lausa bros þitt sem hlýjar mér um hjartaræturnar. Við sjáumst síðar vinur minn, þegar minn tími kemur. Bros þitt veitir mér hlýju. Þinn blessaður, Heiðar Örn. Við hjónin kynntumst Villa þegar við byrjuðum með hesta í Gusti í Kópavogi þar sem við vorum nágrannar í Faxaholtinu. Fljótlega byrjaði vinskapur með hjálpsemi í kringum hestana, járningar, góð ráð og fleira. Villi var góður járningamað- ur. Á sjötíu og eins árs afmæl- isdegi sínum hjálpaði hann okk- ur að járna fjóra hesta og á meðan sagði hann okkur alls- konar sögur frá hestaferðinni sem hann fór í inn í Land- mannalaugar árinu áður en þar var skálað í kampavíni í tilefni sjötugsafmælisdagsins. Það var gaman að ferðast með Villa, hann var fróður um sveitir og bæi sem farið var fram hjá og gat sagt margar sögur frá þessum stöðum. Við urðum samferða úr Gusti inn í Sörla þar sem margur reiðtúr- inn var farinn um frábært svæði. Veikindi tóku Villa alltof snemma úr umferð frá hesta- mennskunni, við minnumst hans sem hjálplegs og trausts vinar. Við vottum Guðmundu og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Sigurbjörn Arnar (Addi) og Helga. Vilhjálmur Hannesson frá Sarpi í Skorradal flutti á mölina á besta aldri en var áfram hreinræktaður sveitamaður. Hann og faðir okkar, Svein- björn Jóhannesson, Bangsi á Heiðarbæ, þekktust eitthvað sem ungir menn en þegar báðir voru komnir á miðjan aldur tók- ust með þeim meiri kynni. Villi var þá að vinna í BYKO og pabbi átti stundum þangað er- indi. Haustið 1979 hafði pabbi farið með okkur systkinin að Syðri-Brú í Grímsnesi þar sem við völdum okkur hvert sitt fol- aldið. Sú villtasta úr þeim hópi hét Þruma og hana átti Helga. Sem trippi hafði Þruma meðal annars unnið sér það til frægð- ar að svífa yfir bæjarlækinn og eina girðingu í leiðinni. Fæst benti til þess að hún yrði auð- tamin. Henni var komið í tamn- ingu til Villa og varð fljótt þæg- asta hrossið á bænum. Þegar Villi fór að vinna sem vaktmaður í Olíubirgðastöðinni í Hvalfirði átti hann góð frí á milli vakta og þeir pabbi fundu fljótt sameiginlegan flöt á að láta þann tíma líða. Villi kom oft í Heiðarbæ og vann með pabba við ýmislegt, ekki síst það er tengdist fénu. Hann smalaði með okkur á haustin, ef ekki á Þrumu þá á Hornfirðingi er Funi hét og var ekki allra. Grá meri af skosku kyni var svo gjarnan tekin aðeins til kost- anna í lok smalamennsku. Mögulega hefur hún slegið tóf- una sem Villi kom með heim á hnakknefinu úr einni smala- mennskunni, að minnsta kosti var hann vopnlaus að öðru leyti og ekki varð hún sjálfdauð. Eitt af því sem einkenndi samskipti Villa við skepnur var að hann spjallaði talsvert við þær, og þurfti ekki stór tilefni til. Einhverju sinni voru þeir Villi og hundurinn Lappi að horfa á fréttirnar og síminn hringdi. Þá sagði Villi: „Jæja Lappi minn, þá hringir síminn.“ Margt fé þurfti að sækja í nærsveitir og þar var Villi betri en enginn, marka- og fjárglögg- ur og lipur við fé. Eitt sinn hafði Nesjabóndinn af alkunnri gjafmildi fært föður okkar ýmsa gosdrykki, framleidda af Sól hf., er höfðu sumir tor- kennileg nöfn. Þótt þessir drykkir nytu ekki allir alþýðu- hylli þótti þeim félögum sjálf- sagt að nýta þá sér til svölunar við fjárragið. Þegar þeir voru nýlagðir af stað í eina ferðina í Grafninginn varð þeim á að lesa á miðann utan á einni flöskunni. Þar stóð Rafgeymasýra. Þeim leist ekki á blikuna, stöðvuðu farartækið, hlupu beint niður í Þingvallavatn og supu drjúgum á þeim hreina og líknandi drykk sem þar er að finna. Héldu svo áfram för og vonuðu það besta. Komu alheilir heim og höfðu með tímanum mjög gaman af öllu saman, enda höfðu báðir lag á að taka sjálfa sig ekki of hátíðlega. Fjölskylda Villa er samhent og dugleg og höfum við á Heið- arbæ oft fengið að njóta þess. Hanna var hér vinnukona eitt sumarið og Arndís lét líka ung til sín taka undir handleiðslu föður síns. Sömuleiðis hefur Sólveig og fjölskylda margoft tekið til hendinni í kjúklinga- húsinu. Þær systurnar og Munda, ástin og kletturinn í lífi Villa, hafa misst mikið en eftir standa minningarnar um gegn- heilan og góðan eiginmann og föður. Við vottum fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð og þökkum Villa samfylgdina. Margrét, Jóhannes, Helga og Kolbeinn, börn Sveinbjörns og Steinunnar á Heiðarbæ. Við Vilhjálmur vorum settir sem fóðurgæslumenn í hest- húsahverfi Gusts í Kópavogi fyrir yfir 30 árum. Það varð að ævarandi vináttu okkar sem ekki bar skugga á síðan, og varð ástæða þess að við fórum saman í hestaferð austur í Bisk- upstungur fyrir um 20 árum. Ég ætla að rifja upp helstu minnisatriði ferðarinnar. Við lögðum af stað frá Völlum undir Esjunni til Þingvalla, heilsuðum upp á Bangsa (Sveinbjörn) á Heiðarbæ. Héldum síðan að skógarhólum og gistum þar. Daginn eftir var riðið austur á Hofmannaflöt og síðan út úr Goðaskarði út á hraunið sem þar tekur við í svonefndum Ey- firðingavegi að Hlöðuvöllum. Þar gistum við í skála 4x4 klúbbsins. Daginn eftir var haldið austur úr Hellisskarði og niður Úthlíðarhraun að Úthlíð, þar tók Björn bóndi rausnar- lega á móti okkur með góðu vis- kíi. Frá Úthlíð héldum við venju- lega þjóðleið til Reykjavíkur eftir frábæra ferð í sólskini all- an tímann. Ég vil að lokum votta eig- inkonu Villa og dætrunum þremur dýpstu samúð okkar hjóna, við fráfall góðs drengs sem alltaf gekk heill að öllum verkum sem hann tók að sér. Haukur og Guðrún. Vilhjálmur Hannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.