Morgunblaðið - 25.07.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
NÝ
SENDING
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
LAXDAL SUMARSALAN
MEIRA & MEIRA
ÚTSÖLUFJÖR
50-70%
afsláttur
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
str. 36-56
20%
aukaafsláttur
af allri útsöluvöru
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Nýjar haustvörur streyma inn
Str.
38-58
Ármúla 44, 108 Reykjavík
s. 562 6062
Nýjar vörur komnar
Allt að 80% afsláttur
Útsala
Félags- og barnamálaráðherra hef-
ur nú birt í samráðsgátt stjórnvalda
minnisblað um aðgerðir sem hann
hyggst ráðast í til þess að gera
Íbúðalánasjóði kleift að bjóða nýjar
tegundir lána til uppbyggingar
íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni. Í
frétt frá ráðuneytinu segir að fyr-
irhugaðar séu breytingar á lögum
um almennar íbúðir, sem m.a. er
ætlað að bregðast við misvægi á
milli byggingarkostnaðar og mark-
aðsverðs á landsbyggðinni. Mark-
mið breytinganna sé að gera sveit-
arfélögum á landsbyggðinni kleift
að byggja íbúðir í almenna leigu-
kerfinu með stofnframlagi ríkisins.
Í frétt ráðuneytisins segir að
stöðnun sé algengt vandamál í þess-
um sveitarfélögum og víða hafi ekk-
ert íbúðarhúsnæði verið byggt í
einn til tvo áratugi. Mun meira hafi
verið byggt á landsbyggðinni frá
aldamótum og fram að hruni, held-
ur en síðustu ár. Sérfræðingar
Íbúðalánasjóðs sjái merki um mark-
aðsbrest á mörgum svæðum enda
ráðist fáir í að reisa nýtt íbúðar-
húsnæði þrátt fyrir að atvinna sé
víðast hvar næg og eftirspurn eftir
íbúðum mikil. Þeir fáu sem vilja
byggja í smærri sveitarfélögum
komi oft á tíðum að lokuðum dyrum
á lánamarkaðnum. Dýr og erfið
fjármögnun, skortur á byggingarað-
ilum og misvægi milli húsnæðis-
verðs og byggingarkostnaðar hafi
valdið því að lítið eða ekkert sé
byggt.
Ráðherra boðar einnig að hann
muni setja í reglugerð nýjan lána-
flokk hjá Íbúðalánasjóði til að auð-
velda sjóðnum að veita fjármögnun
á landsbyggðinni
Nýr lánaflokkur fyrir landsbyggðina
Morgunblaðið/Golli
Húsnæði Skortur er á íbúðar-
húsnæði á landsbyggðinni.
Greitt fyrir byggingu íbúða úti á landi Kynnt í samráðsgátt stjórnvalda
Rétt uppsetning
Þau mistök urðu við uppsetningu
greinar Sigurðar Skúlasonar,
„Bæbæ íslenska“, sem birtist í
blaðinu í fyrradag, að millifyrirsögn
rann inn í ljóðið Hreinsun eftir Gyrði
Elíasson og er beðist velvirðingar á
því.
Ljóðið er svona:
Einhverntíma kemur
að því að plánetan fær nóg,
tekur á sig snöggan rykk
á ofurhröðum snúningi sínum
og þeytir öllum þessum 7 milljörðum
ásamt því sem tilheyrir út í myrkan
geiminn, svona rétt einsog þegar
dýr hristir af sér óværu. Svo
byrjar hún í rólegheitum
upp á nýtt að safna
lífi.
LEIÐRÉTT
SMARTLAND