Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 60
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Samkeppnin á risamótunum í
golfi er svo hörð að ekki eru það allt-
af frægustu nöfnin sem sigra þótt
Tiger Woods hafi unnið Masters í
apríl. Írinn Shane Lowry stóð uppi
sem sigurvegari á Opna mótinu
(The Open) á dögunum og Gary Wo-
odland vann Opna bandaríska í júní.
Lowry er þó enginn nýgræðingur.
32 ára gamall og hefur unnið fimm
mót á Evrópumótaröðinni og tvö á
PGA-mótaröðinni á ferlinum. En
hann hafði sjaldan verið í baráttunni
um sigur á risamótunum. Hafnaði
þó í 2. sæti á Opna bandaríska árið
2016. Einnig varð hann í 8. sæti á
PGA-meistaramótinu í maí og hefur
því leikið vel í sumar.
Lowry kemur frá Clara, fámennu
bæjarfélagi á Írlandi, sem telur
3.432 íbúa samkvæmt síðasta mann-
tali. Hann fékk hjartnæmar mót-
tökur við heimkomuna en Lowry
ákvað að fara heim með Silfurkönn-
una og fagna með sínu fólki. Dró sig
út úr næsta móti sem hann var
skráður í og hefst í dag.
Englendingar í baráttunni en
þurfa að bíða enn um sinn
Stuðningurinn við Lowry náði
langt út fyrir heimabæinn en Írar
studdu vel við bakið á sínum manni
á mótinu og settu mikinn svip á við-
burðinn þegar á leið. Stemningin
mun hafa verið frábær á hinum
snúna en glæsilega Royal Purtrush-
velli á Norður-Írlandi en áhorfendur
létu ekki misjafnt veður spilla
gleðinni. Rétt eins og á Íslandi er
allra veðra von á þessum slóðum á
sumrin. Eða svo gott sem.
Fyrir fram var búist við því að
stemningin yrði vegna heimamanns-
ins Rorys McIlroy en hann höndlaði
ekki andrúmsloftið fyrsta daginn og
missti af niðurskurðinum með einu
höggi.
Bretar fylgdust spenntir með
þegar á leið en þá var Írinn í forystu
en einnig gerðu nokkrir Englend-
ingar sig líklega: Tommy Fleetwo-
od, Justin Rose og Lee Westwood.
Íri sigraði síðast á mótinu árið 2008
þegar Padraig Harrington sigraði
annað árið í röð. Englendingar
þurfa að bíða enn um sinn en Eng-
lendingur hefur ekki unnið Opna
mótið síðan Nick Faldo gerði það
með stæl árið 1990.
Frábært skor á þriðja hring
Írar eru ekki vanir því að vera á
heimavelli þegar kemur að Opna
mótinu. Síðast var mótið haldið á
Royal Portrush árið 1951. En vell-
irnir sem fengið hafa að halda mótið
eru flestir í Skotlandi en nokkrir á
Englandi.
Á lokaholunum á öðrum keppn-
isdegi var Lowry kominn í forystu
og þá virtist taugatitringur gera
vart við sig. Misjafnt er hvort gott
sé fyrir íþróttamenn að vera á
heimavelli eða ekki. Pressan getur
orðið meiri en menn ráða við. Sér-
staklega í golfinu þar sem mót sem
þetta er tuttugu klukkustunda sál-
arstríð á golfvellinum sjálfum og ef
til vill svefnlitlar nætur á milli.
Lowry tók hins vegar taugaveikl-
unina út á lokaholunum á föstudeg-
inum. Hann fór á kostum á laug-
ardeginum þegar hann lék á 63
höggum. Var einungis tveimur
höggum frá því að jafna vallarmetið
sem er í eigu McIlroy. Þar lagði
hann grunninn að sigrinum því
Lowry gaf ekki mörg færi á sér við
krefjandi aðstæður á lokadeginum.
Hann gat því leyft sér að fagna á 18.
holunni og drekka í sig stemn-
inguna.
Írar hylltu sinn mann. Enginn
velti því fyrir sér hvort hann væri úr
suðrinu eða norðrinu eða hvort hann
væri kaþólikki eða mótmælandi.
Einfaldlega kylfingur að vinna eitt
stærsta íþróttaafrek í sögu Írlands.
Súrrealísk upplifun
„Þegar ég var að alast upp æfði
ég pútt þar sem ég ímyndaði mér að
þau væru fyrir sigri á The Open. Að
sitja hér með könnuna fyrir framan
mig er ótrúlegt. Sjáiði bara nöfn
þeirra sem eru letruð á hana. Ég
átti bágt með að trúa því að þetta
væri að verða að veruleika. Ég
leyfði mér að njóta stundarinnar á
18. holunni og drekka í mig stemn-
inguna eins og gat. En það var á
vissan hátt erfitt því mér fannst súr-
realískt að vera í þessum sporum,“
sagði Shane Lowry meðal annars á
blaðamannafundinum þegar sig-
urinn var í höfn.
Írar sameinað-
ir í stuðningi
Shane Lowry hylltur sem þjóðhetja
eftir glæsilegan sigur á Norður-Írlandi
AFP
Sigurstund Shane Lowry á 18. holunni á Royal Portrush á sunnudaginn.
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Inkasso-deild kvenna
Fjölnir – Afturelding .............................. 1:2
ÍR – Þróttur R .......................................... 0:7
Margrét Sveinsdóttir 8. 40., 43., 58., Linda
Líf Boama 9., 14., Lauren Wade 51.,
Staðan:
Þróttur R. 10 8 0 2 38:9 24
FH 9 7 1 1 24:10 22
Tindastóll 9 6 0 3 27:19 18
Afturelding 10 5 1 4 13:13 16
Haukar 9 4 0 5 13:9 12
Augnablik 9 4 0 5 8:10 12
ÍA 9 3 2 4 9:9 11
Grindavík 9 3 2 4 13:16 11
Fjölnir 10 3 2 5 15:21 11
ÍR 10 0 0 10 3:47 0
Meistaradeild karla
2. umferð, fyrri leikir:
BATE Borisov – Rosenborg................... 2:1
Willum Þór Willumsson lék ekki með
BATE vegna meiðsla.
Maribor – AIK.......................................... 2:1
Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 62 mín-
úturnar með AIK.
CFR Cluj – Maccabi Tel Aviv ................. 1:0
Ferencváros – Valletta ............................ 3:1
Celtic – Nömme Kalju.............................. 5:0
Dundalk – Qarabag .................................. 1:1
Rauða stjarnan – HJK Helsinki ............. 2:0
Evrópudeild karla
2. umferð, fyrri leikur:
Slovan Bratislava – Feronikeli................ 2:1
Noregur
B-deild:
Sogndal – Start ........................................ 0:1
Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Start og Kristján Flóki Finnbogason kom
inn á sem varamaður á 77. mínútu. Jóhann-
es Harðarson er þjálfari liðsins.
Efstu lið: Aalesund 35, Sandefjord 33,
Raufoss 28, Start 28, Kongsvinger 24.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Evrópudeild karla, fyrri leikur:
Origo-völlur: Valur – Ludogorets ............ 19
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Leiknir R. 19.15
Ásvellir: Haukar – Fram ..................... 19.15
Ólafsvík: Víkingur Ó. – Þróttur R....... 19.15
Varmá: Afturelding – Keflavík............ 19.15
2. deild karla:
Fjarðabyggðarhöll: Leiknir F. – ÍR ... 17.30
Samsung-völlur: KFG – Víðir ............. 19.15
3. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Augnablik.... 20
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Mustadv.: Grindavík – Augnablik....... 19.15
Kaplakrikavöllur: FH – ÍA.................. 19.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
HM U21 karla
Leikið á Spáni:
16-liða úrslit:
Danmörk – Ungverjaland.................... 30:29
Egyptaland – Serbía ............................ 30:29
Noregur – Brasilía ............................... 29:28
Slóvenía – Suður-Kórea....................... 32:28
Króatía – Ísland.................................... 29:16
Portúgal – Þýskaland........................... 37:36
Frakkland – Spánn............................... 24:23
Túnis – Svíþjóð ..................................... 29:26
Í 8-liða úrslitum í dag mætast:
Egyptaland – Noregur
Frakkland – Danmörk
Slóvenía – Portúgal
Túnis – Króatía
Ísland leikur í dag við Serbíu um sæti 13-
14 á mótinu.
Keppni um sæti 17-20:
Barein – Síle.......................................... 30:29
Halldór Jóhann Sigfússon þjálfar Barein
sem leikur við Japan um sautjánda sætið á
mótinu.
Japan – Nígería .................................... 26:16
Keppni um sæti 21-24:
Kósóvó – Argentína.............................. 29:36
Bandaríkin – Ástralía........................... 31:18
Undanúrslit eru leikin á laugardag og á
sunnudag er leikið til úrslita um sæti.
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar
U17 ára lið karla, leikið í Bakú:
B-riðill:
Frakkland – Slóvenía ........................... 30:29
Króatía – Ísland.................................... 24:21
Mörk Íslands: Arnór Viðarsson 6, Arnór
Ísak Haddsson 5, Ísak Gústafsson 2,
Tryggvi Þórisson 2 Kristófer Máni Jónas-
son 2, Reynir Freyr Sveinsson 1, Jakob Ar-
onsson 1, Benedikt Gunnar Óskarsson 1,
Jóhannes Berg Andrason 1.
Lokastaðan í riðlinum: Frakkland 4,
Króatía 3, Ísland 3, Slóvenía 2.
Ísland mætir Aserbaídsjan á morgun í
keppni um sæti fimm til átta og spilar um
endanlegt sæti á laugardaginn.
Knattspyrnumaðurinn Þórður Þor-
steinn Þórðarson hefur rift samn-
ingi sínum við ÍA en félagið skýrði
frá þessu í gærmorgun. Þórður hef-
ur leikið allan sinn feril með ÍA en
hefur fá tækifæri fengið á þessu
tímabili. „Ég vil ítreka að ég ber
engan kala til neins, þjálfarinn taldi
bara aðra leikmenn vera betri í þær
stöður sem ég spila,“ sagði Þórður
m.a. í viðtali við mbl.is í gær. Hann
kvaðst hafa heyrt strax frá mörg-
um félögum og reiknaði með að
vera kominn í nýtt félag fyrir
helgina. vs@mbl.is
Þórður er farinn
frá Skaganum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Farinn Þórður Þorsteinn Þórðarson
er á leiðinni í annað félag.
Kolbeinn Sigþórsson var í byrj-
unarliði AIK í 2. umferð Meist-
aradeildarinnar í knattspyrnu í
gær. Sænska liðið heimsótti þá
Maribor til Slóveníu og tapaði 2:1 í
fyrri leik liðanna en Maribor sló
Val út í 1. umferðinni. Kolbeinn fór
út af eftir 62 mínútur.
BATE Borisov hafði betur 2:1
gegn Rosenborg í Hvíta-Rússlandi í
sömu keppni en Willum Þór Will-
umsson gat ekki leikið með BATE
vegna meiðsla. Óhætt er að segja að
báðar rimmurnar séu galopnar eft-
ir þessi úrslit. kris@mbl.is
Kolbeinn lék í
Meistaradeildinni
Morgunblaðið/Hari
Evrópuleikur Hlutverk Kolbeins
hjá AIK stækkar smám saman.
EVRÓPUDEILD
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Eitt af því skemmtilegasta sem
maður gerir er að spila þessa Evr-
ópuleiki þannig að það eru allir vel
gíraðir og tilbúnir í slaginn á morg-
un,“ sagði Eiður Aron Sigurbjörns-
son, varnarmaður Vals, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Valsmenn
mæta búlgörsku meisturunum í Lu-
dogorets í fyrri leik liðanna í 2. um-
ferð undankeppni Evrópudeild-
arinnar í fótbolta á Origo-vellinum á
Hlíðarenda í kvöld.
„Staðan og stemningin í leik-
mannahópnum er góð og eftir minni
bestu vitund eru allir heilir. Þetta er
risalið sem við erum að mæta og þeir
eru stærri á blaði en Maribor sem
sló okkur sannfærandi úr leik í 1.
umferð undankeppni Meistaradeild-
arinnar á dögunum. Það verður fyrst
og fremst gaman að sjá hvar við
stöndum gegn þessu liði.“
Eiður ítrekar að það skipti öllu
máli að ná í góð úrslit á heimavelli.
„Þetta Maribor-lið er eitt heil-
steyptasta lið sem ég hef mætt. Ein-
vígið var mjög erfitt en við ætlum
ekki að breyta miklu í okkar leik
þannig séð. Ludogorets er lið sem
spilar mjög ákveðinn sóknarbolta og
þeir eru með nokkra öfluga bras-
ilíska leikmenn í sínu liði. Þeir sækja
hins vegar á mörgum mönnum og
það er eitthvað sem við ætlum að
nýta okkur. Markmiðið í leiknum er
fyrst og fremst að verja markið okk-
ar og við viljum standa vel að vígi
fyrir seinni leikinn úti í Búlgaríu og
ef það á að takast þurfum við að ná í
góð úrslit hérna heima.“
Íslensku liðin hafa ekki riðið feit-
um hesti frá Evrópukeppnum í
sumar og Eiður viðurkennir að það
sé ákveðinn munur á íslensku lið-
unum og mörgum af mótherjum
þeirra.
„Eins og ég sagði áðan er Mari-
bor-liðið það heilsteyptasta sem ég
hef mætt. Við erum eitthvað á eftir
þeim í getu og hæfileikum og það
tekur tíma að ná svona sterkum lið-
um. Það hefur verið stígandi í deild-
inni á undanförnum árum og við
þurfum bara að halda áfram hérna
heima að þróa okkar leik. Ef allir
róa í sömu átt kemur þetta á end-
anum en eins og staðan er í dag er
ákveðinn munur á liðunum hérna
heima og stærri liðunum í Evrópu,“
sagði Eiður við Morgunblaðið.
Verðum að verja markið okkar
Evrópuleikirnir skemmtilegastir Íslensku liðin þurfa að róa í sömu átt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valur Eiður Aron Sigurbjörnsson
og félagar mæta Ludogorets.