Morgunblaðið - 26.07.2019, Page 8

Morgunblaðið - 26.07.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Nú liggur fyrir ákvörðun umnýjan seðlabankastjóra. Seðlabankastjóraskipti voru miklu meira en tímabær en að- dragandi þeirra nú er umhugs- unarverður líkt og yfirleitt þegar skipað er í nýjar stöður hjá hinu opinbera um þessar mundir.    Orðið er brýntfyrir stjórn- málamenn að endurmeta ræki- lega þær aðferðir sem notaðar eru og felast í því að skipa ein- hvers konar valnefndir sem í raun stilla ráðherrum upp við vegg og taka af þeim völdin. Það hefur aldrei verið ætlunin með slíkum nefndum, en sú hefur því miður orðið raunin.    Nefndir af þessu tagi eruábyrgðarlausar og ættu að- eins að vera ráðherra til að- stoðar, en hafa þróast út í að sölsa til sín skipunarvaldið, eða þrengja að minnsta kosti að ráð- herra með óeðlilegum hætti. Þetta sést ítrekað þegar skipað er í dómarastöður en er engu betra þegar skipað er í stöðu seðla- bankastjóra.    Slík ákvörðun á ekki að veraábyrgðarlausrar nefndar sem raðar upp sínum óskakandidöt- um, heldur ráðherra sem ber ábyrgð og stendur reglulega frammi fyrir kjósendum.    Þetta gallaða ferli og vafasömvinna valnefndar verður þó ekki til þess að ástæða sé til að gagnrýna þann sem nú hefur ver- ið skipaður. Hann hefur sýnt ágætan skilning á efnahags- málum og honum fylgja allar góð- ar óskir í nýju og vandasömu starfi. Ásgeir Jónsson Gallað ferli þrátt fyrir niðurstöðuna STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Margir sluppu við að þurfa að aflífa kýrnar sínar vegna innflutningsins,“ segir Marit Fougner, norskur bóndi sem tók þátt í innflutningi á heyi frá Íslandi til Noregs í fyrrasumar þegar norska bændur sárvant- aði hey. „Þetta gekk vel. Heyið sem við fluttum inn var virkilega gott og þeir sem það keyptu voru þakklátir,“ segir Marit sem hefði viljað flytja inn meira hey en óvænt samkeppni kom í veg fyrir það. Greint var frá því í Morgunblaðinu fyrr í sumar að 1.640 rúllubaggar frá Íslandi væru enn óseldir í Nor- egi. „Þeir voru ekki á okkar vegum og mér skilst að þeir hafi ekki selst vegna þess að þeir voru skemmd- ir,“ segir Marit. Þetta árið eru Norðmenn ekki í neinum vandræð- um með hey þar sem veðurskilyrði hafa verið prýði- leg. „Við gætum jafnvel flutt hey til Íslands ef á þarf að halda,“ segir Marit og hlær. Þó segir hún vel koma til greina að grípa aftur til þessa ráðs síðar meir ef á þarf að halda. Marit segir að bændur verði mjög skapandi þegar þeir sjá fram á fæðuskort. „Ég held að það sé í eðli okkar, þar sem skepnurnar verða að fá fæðu og það er á okkar ábyrgð að þær fái hana.“ ragnhildur@mbl.is Innflutt hey bjargaði fjölda kúa  Norskir bændur hæst- ánægðir með íslenskt hey Morgunblaðið/Árni Sæberg Bændur Marit kom hingað til lands í fyrra ásamt Per Tore Teksum til að kaupa íslenskt hey. Ferjan Norræna frá Færeyjum og skemmtiferðaskipið Rotterdam frá Hollandi deildu plássinu í mynni Seyðisfjarðar í gærmorgun og fylltu bæinn fólki þegar komið var til hafn- ar. Norræna stoppaði einungis stutt, „tvo eða þrjá tíma“ að sögn Aðal- heiðar Borgþórsdóttur, bæjarstýru og hafnarstjóra á Seyðisfirði, og sagði hún að sú væri venjan á há- sumrin. „Alltaf á fimmtudögum yfir háannatímann. Þá fáum við bara far- þegana inn og hina út,“ sagði hún. Hitt skipið, Rotterdam frá Hol- landi, stoppaði öllu lengur en það hafði komið til hafnar stuttu á und- an Norrænu. Sneri það skutnum inn að bænum og horfði út á djúp- an fjörðinn yfir daginn, eða þar til það sigldi aftur á braut síðdegis í gær. Seyðisfjarðarhöfn þykir skjól- góð og er fjörðurinn bæði djúpur og skerjalaus. Þangað hefur Nor- ræna siglt um árabil en komum skemmtiferðaskipa hefur fjölgað ár frá ári síðustu ár. Skipin fylltu bæinn fólki í gærmorgun Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Tignarlegt Rotterdam-skipið snýr skutnum að Norrænu og Seyðfirðingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.