Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 12
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
Marels, er ánægður með nýútgefið
uppgjör fyrirtækisins fyrir annan
ársfjórðung 2019.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Árni að félagið væri að sýna 10%
tekjuvöxt á milli ára, ef annar árs-
fjórðungur er borinn saman við
sama tímabil í fyrra, og 11% tekju-
vöxtur væri á fyrstu sex mánuðunum
í ár miðað við sama tímabil í fyrra.
Tekjur Marels námu 326,5 milljón-
um evra á öðrum ársfjórðungi miðað
við 296,7 milljónir evra á sama árs-
fjórðungi í fyrra og þá nam hagn-
aðurinn 34,3 milljónum evra á sama
tímabili en 29,5 milljónum evra í
fyrra. Árni Oddur var einnig ánægð-
ur með mótteknar pantanir sem
námu 311,2 milljónum evra en 291,1
milljón í fyrra.
„Árið hefur verið sterkt í pöntun-
um, með kröftugri byrjun á árinu og
annar fjórðungur þessa árs er þriðji
hæsti ársfjórðungur í sögu Marels í
mótteknum pöntunum,“ segir Árni
Oddur en þær minnkuðu þó um tæp
4% frá fyrsta fjórðungi þessa árs.
Þar spilar inn í umrót á vettvangi al-
þjóðastjórnmála, m.a. viðskiptastríð
Bandaríkjanna og Kína. Aftur á móti
jukust pantanir fyrir stærri verkefni
í Asíu og Kína auk þess sem vöxtur
er í endurnýjunar- og viðhaldsverk-
efnum Marels í Evrópu og N-Am-
eríku.
„En það eru líka hindranir á öðr-
um stöðum hvað varðar frjálst flæði
landbúnaðarvara. Við það bætist
svínaflensan sem var umfangsmeiri
núna en nokkurn tímann áður í Kína
sem gerir það að verkum að yfir 20%
af búpeningnum hafa glatast. Á móti
hefur þörfin fyrir lausnir Marels
sem tryggja matvælaöryggi og rekj-
anleika aldrei verið meiri. Við þurf-
um öll að borða og hafa jafnvægi í
mataræði okkar; sambland af græn-
meti, prótíni og fleiri fæðuflokkum.
En þegar innflutningurinn stöðvast
til Kína þarf Kína að framleiða sjálft.
Þannig að það hefur verið töluvert
mikið að gera í kjúklingaiðnaðinum í
Kína. Þar hefur uppbygging verk-
smiðja unnið örlítið á móti veikari
mörkuðum í Evrópu og Bandaríkj-
unum,“ segir Árni Oddur.
„Við höfum byggt upp gríðarlega
sterkt net bæði í Norður-Ameríku
og í Suður-Ameríku sem er mat-
vælakista heimsins. Nú erum við
einnig að byggja okkur upp skipu-
lega í Asíu og Kína og höfum verið að
vinna jöfnum höndum að hjálpa
heimsálfu eftir heimsálfu að jafna
framboð og eftirspurn eftir matvæl-
um, og gera matvælaframleiðslu
sjálfbærari,“ segir Árni Oddur sem
nefnir einnig að góður gangur sé í að
samnýta tækni Marels á milli iðnaða;
kjúklings, kjöts og fisks, m.a. með
SensorX-röntgentækni.
Pantanabók Marels lækkar á milli
ársfjórðunga og nemur nú 459,4
milljónum evra, miðað við 474,7
milljónir við lok síðasta ársfjórð-
ungs, og 523,2 milljónir evra við lok
annars ársfjórðungs árið 2018. Það
segir Árni vera eðlilega þróun.
„Við höfum verið að vaxa að með-
altali með innri vexti um 6% á ári,
síðustu 20 árin. Þetta hefur alltaf
gerst í svona sveiflum. Pantanir juk-
ust um 13% á milli ára árið 2017, við
það hækkar pantanabókin. Fyrstu
tveir ársfjórðungarnir á þessu ári
hafa verið sterkir og mótteknar
pantanir almennt góðar. Nú erum
við að afhenda mikið af stórum kerf-
um sem eru á leiðinni til viðskipta-
vina, sem leiðir til þessa mikla tekju-
vaxtar milli ára og lækkunar á
pantanabók,“ segir Árni Oddur.
Þörfin aldrei verið meiri
Ljósmynd/Sveinbjörn Úlfarsson
Matvæli Tekjur Marels uxu um 10% á milli ára á öðrum ársfjórðungi.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, kveðst ánægður með uppgjör
fyrirtækisins á öðrum ársfjórðungi Marel byggir sig skipulega upp í Asíu
Marel
» Lækkaði um 1,09% í Kaup-
höll Íslands í gær og lækkaði
um 0,24% í Amsterdam. Gengi
Marels nemur 590 krónum á
hvert bréf í Kauphöll Íslands en
4,4 evrum á hvert bréf í Amst-
erdam. Markaðsvirði Marels
nemur 455 milljörðum króna.
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
arnir þurfi að sækja eða selja
gjaldeyri á millibankamarkaði. Ef
framboð og eftirspurn mætast er
markaðurinn í jafnvægi,“ segir
Þórhallur og bætir við að stöku
sinnum komi fyrir að nær engin
viðskipti eigi sér stað á milli-
bankamarkaði. „Viðskiptavak-
arnir eru í slíkum tilvikum bara
sjálfum sér nægir í báðar áttir.
Það er hvorki skortur né upp-
söfnun að eiga sér stað. Það kom
til að mynda ansi langt tímabil í
fyrra þar sem millibankamark-
aður var lítið notaður. Það er allt
saman eðlilegt,“ segir Þórhallur.
Í kjölfar skráningar Marels í
Euronext-kauphöllina í Amster-
dam fyrr á þessu ári áttu sér stað
talsverð viðskipti á millibanka-
markaði. Að útboðinu loknu
hægðist verulega á viðskiptunum.
„Í kringum útboðið hjá Marel
voru allir að borga í evrum. Þeg-
ar það kláraðist róaðist þetta
mikið. Þetta hefur síðan verið að
fara hægt og rólega af stað núna
undir lok síðustu viku og í byrjun
þessarar,“ segir Þórhallur.
aronthordur@mbl.is
Nær engin viðskipti áttu sér stað
á millibankamarkaði á um
tveggja vikna tímabili nú fyrir
skömmu. Þetta staðfestir Þórhall-
ur Sverrisson, forstöðumaður
gjaldeyrismiðlunar Íslandsbanka,
í samtali við Morgunblaðið.
Spurður hvað valdi segir Þórður
að þegar jafnvægi næst á mark-
aðnum sé engin þörf fyrir við-
skiptavaka að leita á milli-
bankamarkað. Slíkt þurfi þó alls
ekki að þýða að engin viðskipti
eigi sér stað á markaðnum.
„Það geta átt sér stað mikil við-
skipti, en þó ekki þannig að bank-
Engin viðskipti með gjaldeyri
Lítil sem engin
hreyfing á milli-
bankamarkaði
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Nær engin viðskipti áttu sér stað á millibankamarkaði.
26. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.6 122.18 121.89
Sterlingspund 151.92 152.66 152.29
Kanadadalur 92.5 93.04 92.77
Dönsk króna 18.151 18.257 18.204
Norsk króna 14.045 14.127 14.086
Sænsk króna 12.854 12.93 12.892
Svissn. franki 123.33 124.01 123.67
Japanskt jen 1.125 1.1316 1.1283
SDR 167.62 168.62 168.12
Evra 135.52 136.28 135.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.858
Hrávöruverð
Gull 1425.55 ($/únsa)
Ál 1795.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.13 ($/fatið) Brent
Hagnaður stoð-
tækjafyrirtæk-
isins Össurar
nam 2,8 millj-
örðum íslenskra
króna á öðrum
fjórðungi þessa
árs. Það er um
15% aukning frá
sama tímabili ár-
ið áður.
Þetta er meðal
þess sem fram kemur í uppgjörs-
tölum frá Össuri fyrir annan árs-
fjórðung.
EBITDA fyrirtækisins í ársfjórð-
ungnum jókst til muna milli ára eða
um 33%. Alls nam EBITDA Össurar
5,2 milljörðum íslenskra króna.
Rekja má aukninguna til sölu á há-
tæknivörum, hagræðingar í rekstri
og aukinnar stærðarhagkvæmni.
Alls nam sala á öðrum ársfjórð-
ungi 22 milljörðum íslenskra króna.
Það samsvarar um 18% vexti í stað-
bundinni mynt og 7% innri vexti.
Það er lítilleg aukning frá fyrsta
ársfjórðungi þegar salan var 19
milljarðar króna. Samanlögð sala
ársins er því 41 milljarður króna.
Haft er eftir Jóni Sigurðssyni,
forstjóra Össurar, að uppgjörið sé
mikið ánægjuefni. „Við erum
ánægð með að ljúka fyrsta helmingi
ársins með góðum söluvexti og sér-
staklega góðri niðurstöðu í stoð-
tækjarekstri félagsins. Hér má
nefna góða sölu á hátæknivörum. Í
ljósi góðs söluvaxtar á fyrsta helm-
ingi ársins, hefur fjárhagsætlun fé-
lagsins fyrir innri vöxt verið upp-
færð í 5-6% fyrir árið,“ sagði Jón.
Hagnaður
Össurar
eykst
Mikill vöxtur á
öðrum ársfjórðungi
Össur Áfram
gengur vel.
M.BENZ C350e AVANTGARDE
nýskr. 03/2018, ekinn 14 Þ.km, bensín/rafmagn
(plug in), sjálfskiptur, glerþak ofl. ofl. Stórglæsilegur!
TILBOÐSVERÐ 5.550.000 kr. Raðnúmer 259502
BMW 530e IPERFORMANCE
nýskr. 06/2018, ekinn 10 Þ.km, bensín/rafmagn (plug
in), sjálfskiptur, vel búinn aukahlutum. Stórglæsilegur!
Verð 6.490.000 kr. Raðnúmer 380510
VW PASSAT GTE PREMIUM
nýskráður 02/2018, ekinn 31 Þ.km, bensín/rafmagn
(plug in), sjálfskiptur, leður, glerþak ofl. Geggjaður bíll!
Verð 5.150.000 kr. Raðnúmer 259510
M.BENZ E 350e EXCLUSIVE
nýskr. 05/2017, ekinn 34 Þ.km, bensín/rafmagn
(plug in), sjálfskiptur, tvöfalt stafræntmælaborð ofl.
Glæsilegt eintak! TILBOÐSVERÐ 6.290.000 kr.
Raðnúmer 259503
RENAULT GRAND SCENIC BOSE
EDITION nýskr. 11/2018, ekinn aðeins 8 Þ.km,
dísel, sjálfskiptur, hlaðinn aukabúnaði.
Verð 4.690.000 kr. Raðnúmer 259171
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is