Morgunblaðið - 26.07.2019, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
Laugardalur Börn og fullorðnir nutu veðurblíðunnar í Grasagarði Reykjavíkur í gær. Þar er kærkomin vin í ys og þys borgarinnar og óvíða betra að vera þegar veðrið leikur við mann.
Arnþór Birkisson
Allir sem lásu það
sem Boris Johnson
skrifaði sem fréttarit-
ari The Daily Tele-
graph í Brussel í upp-
hafi tíunda áratugarins
sáu að þar fór maður
sem hafði gaman af því
að gera gys að Evr-
ópusambandinu og ýta
undir tortryggni í þess
garð.
Hann tíundaði til dæmis að
Brussel-menn vildu staðla líkkistur,
lykt af húsdýraáburði og krefjast
þess að sjómenn bæru hárnet við
fiskveiðar. Hann varaði við yfirþjóð-
legu valdi með spám um skyldu til
að bera evrópsk nafnskírteini og að
Frakkar, Þjóðverjar og Hollend-
ingar yrðu kjörnir í neðri deild
breska þingsins.
Hann er ekki hættur að segja sög-
ur af ESB. Á húsþingi með íhalds-
mönnum á dögunum beygði hann
sig við ræðupúltið og lyfti reyktri
síld í lofttæmdum umbúðum. Þar
mætti sjá dæmi um kostnað sem
skriffinnar í Brussel legðu á síld-
arkaupmann frá eyjunni Mön.
Hverjum svona pakka yrði svo að
fylgja – og hann beygði sig aftur við
ræðupúltið – „svona plastik-
klakapoki! Tilgangslaus, dýr, skað-
vænn fyrir umhverfið, heilsu og ör-
yggi“.
Áheyrendur hlógu eins og venju-
lega þegar Johnson fer á kostum.
Þegar sýnt var frá atvikinu í BBC
skóf fréttamaðurinn ekki utan af því
heldur sagði Johnson hafa logið
hressilega á fundinum. Klakapokinn
sem vakti mesta
hneykslun átti ekkert
skylt við ESB heldur
gerðu bresk heilbrigð-
isyfirvöld ein og óstudd
kröfu um hann. Í fjöl-
miðlum var síðan
spurt: Skiptir máli
hvort forsætisráðherra
Bretlands fari frjáls-
lega með sannleikann?
Herhvöt til
íhaldsmanna
Þegar Boris Johnson
gerði grín að ESB sem fréttaritari í
Brussel og ýtti undir fordóma
margra í Íhaldsflokknum í garð
sambandsins er ólíklegt að honum
hafi til hugar komið að bresk brexit-
bylgja mundi 30 árum síðar fleyta
honum í forsætisráðherrastólinn.
Einmitt það hefur nú gerst. Þegar
úrslitin innan Íhaldsflokksins lágu
fyrir að morgni þriðjudags 23. júlí
flutti Johnson leiðtogaræðu.
Hann vék að flokknum og 200 ára
sögu hans. Íhaldsmenn hefðu alltaf
skynjað best mannlegt eðli og
hvernig best væri að skapa jafnvægi
milli ólíkra eðlishvata (e. instincts).
Hvað eftir annað hefði þjóðin náð
markmiði sínu með styrk Íhalds-
flokksins, eignast eigin heimili,
fengið svigrúm til að afla og verja
eigin fjármunum og til að skapa eig-
in fjölskyldu hæfilegt skjól. Ávallt
hefði flokkurinn komið til móts við
sannar og göfugar eðilshvatir.
Sama mætti segja um eðlishvöt-
ina til að deila með öðrum og veita
öllum jöfn tækifæri í lífinu. Og til að
gæta þeirra fátækustu og mest
þurfandi og til að stuðla almennt að
góðu samfélagi. Undanfarin 200 ár
hefðu íhaldsmenn haft mestan skiln-
ing á því hvernig ætti að höfða til
þessara eðlishvata og stilla þær
saman á þann veg að þær yrðu allri
þjóðinni til heilla.
Boris Johnson sagði að nú á þessu
sögulega augnabliki kæmi enn í hlut
íhaldsmanna að finna jafnvægi milli
tveggja ólíkra tilfinninga. Annars
vegar vildu Bretar eiga náin og góð
viðskipti og öflugt samstarf í örygg-
is- og varnarmálum við evrópskar
samstarfsþjóðir sínar en hins vegar
vildu þeir njóta lýðræðislegrar
sjálfsstjórnar í eigin landi. Í báðum
tilvikum væri um djúpar og heitar
tilfinningar að ræða. Vissulega
mætti taka undir með þeim sem
teldu þessi sjónarmið ósættanleg og
verkefnið óvinnandi. Hann sagðist
hins vegar sannfærður um að sér og
flokknum tækist að finna viðunandi
lausn.
Í leiðtogakjörinu hefði hann bar-
ist undir kjörorði um að framkvæma
brexit, það er úrsögn Breta úr ESB,
sameina þjóðina og sigra Jeremy
Corbyn, leiðtoga Verkamanna-
flokksins. Þá ætlaði að hann að blása
nýjum krafti í þjóðlífið. Brexit yrði í
síðasta lagi 31. október 2019. Öll
tækifæri sem úrsögninni fylgdu
yrðu nýtt til fulls af eldmóði og
sjálfstrausti. Þjóðin yrði eins og risi
sem rís af dvala og hristir af sér
hlekki eigin vanmáttarkenndar og
neikvæðni með betri menntun, betri
innviðum, fleiri lögreglumönnum,
frábærum ljósleiðara sem tengist
hverju heimili.
Herhvöt til þingsins
Boris Johnson forsætisráðherra
flutti þjóðinni fyrsta ávarp sitt í
Downing-stræti síðdegis miðviku-
daginn 24. júlí. Staðið yrði við síend-
urtekin loforð þingsins við þjóðina
og horfið úr ESB 31. október, hvað
sem tautar og raular.
Í stefnuræðu í neðri deild breska
þingsins að morgni fimmtudags 25.
júlí sagði nýi forsætisráðherrann að
hann og allir ráðherrar hans hefðu
skuldbundið sig til að tryggja að
Bretar færu úr ESB 31. október.
Gerðist það ekki yrði breska stjórn-
málakerfið fyrir gífurlegu áfalli
vegna trúnaðarbrests.
Hann sagðist helst kjósa að segja
skilið við ESB með samningi. Enn
mætti ná því marki og hann ætlaði
að leggja sig allan fram í því skyni.
Þingið hefði þrisvar sinnum hafnað
skilnaðarsamningi forvera síns.
Engin þjóð sem mæti eigið sjálf-
stæði og sjálfsvirðingu samþykkti
samning sem svipti hana efnahags-
legu sjálfstæði og sjálfstjórn. Eng-
inn samningur næðist án þess að
varnaglaákvæðið vegna landamæra
á Írlandi yrði fjarlægt. Landamæra-
málið ætti að vera hluti framtíðar-
samninga um tengsl Bretlands og
ESB.
Án samnings yrðu Bretar að sjálf-
sögðu að segja skilið við ESB án
samnings. Næstu 98 daga yrði að
beita ofurafli til að búa þannig um
hnúta að brottför án samnings rask-
aði þjóðlífinu eins lítið og verða
mætti.
Þetta snerist ekki aðeins um
tæknilega þætti heldur um að skýra
efnahagsstefnu sem tryggði sam-
keppnishæfni og framleiðni breskra
fyrirtækja þegar þau losna undan
ESB-reglum.
Ný ríkisstjórn
Boris Johnson stokkaði ekki upp í
ríkisstjórn eigin flokks heldur
hreinsaði út 17 ráðherra. Hann
myndaði nýja ríkisstjórn. Með
hreinsuninni styrkti hann ekki stöðu
sína innan þingflokks íhaldsmanna.
Hann eignaðist öflugan hóp óvin-
veittra þingmanna.
Johnson glímir við sama vanda og
Theresa May. Hann skortir meiri-
hluta í neðri deild breska þingsins.
Þingmenn vilja ekki úr ESB án
samnings. Þeir hafa ályktað í þá
veru oftar en einu sinni.
Michael Gove er áfram ráðherra.
Þeir Johnson börðust hlið við hlið
fyrir brexit en síðan rofnaði pólitískt
bandalag þeirra. Gove undirbýr nú
úrsögn úr ESB án samnings. Við
hlið sína hafa Johnson og Gove nú
Dominic Cummings, heilann á bak-
við sigur útgöngusinna þvert á allar
spár í brexit-atkvæðagreiðslunni ár-
ið 2016.
Snúi Boris Johnson málum sér í
vil á 98 dögum og leiði Breta úr ESB
bregst pólitíska náðargáfan honum
ekki. Hann hefur lagt allt undir í
þágu brexit. Þunginn sem hann
leggur á brexit án samnings kann að
breyta afstöðu Brussel-manna.
Liðsskipan ráðherra og ráðgjafa
gefur til kynna að kosningar séu í
kortunum. Það er öflugasta vopnið
til að hreyfa við þingmönnum.
Eftir Björn
Bjarnason » Snúi Boris Johnson
málum sér í vil á 98
dögum og leiði Breta úr
ESB bregst pólitíska
náðargáfan honum ekki.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Boris á brexit-bylgjunni