Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Systkinin Lilja María og Mikael Máni Ásmundsbörn hafa bæði helg- að sig tónlist, þó á ólíkum sviðum. Lilja hefur í tónsmíðum sínum ein- blínt á sígilda samtímatónlist og hef- ur nýverið lokið meistaraprófi á því sviði frá City University of London. Mikael lauk í fyrra námi við Con- servatorium van Amsterdam, sem er einn virtasti djasstónlistarskóli heims. Systkinin taka nú höndum saman og halda í tónleikaferðalag um landið. Þar spila þau eigið verk í fjórtán þáttum. „Við vildum finna leið til þess að láta þessa heima, djassinn og sígildu samtímatónlistina, mætast svo við bjuggum til sögu í þjóðsagnastíl til þess að hafa einhvern sameiginlegan efnivið að vinna út frá,“ segir Lilja og bætir við: „Sagan er í raun og veru í aukahlutverki. Hún er bara leið til þess að búa til einhverja framvindu og andrúmsloft sem við getum bæði unnið út frá.“ Áhrif frá Sigur Rós og Debussy Mikael segir tónlist þeirra vera tilraunakennda og blanda saman samtímaklassík og djassi. „Auk þess vefst aðeins inn í verkið tónlist sem við Lilja ólumst upp við. Við erum auðvitað systkini og ólumst upp við sömu tónlist. Við höfum bæði hlust- að mikið á Sigur Rós og Debussy til dæmis. Ég held það megi greina það í verkinu ef maður er með mjög opin eyru fyrir því,“ segir hann. Í verkinu spilar Mikael á rafgítar og spiladós og syngur en Lilja spilar á píanó, fiðlu og syngur og stýrir auk þess rafi sem hún segir blandast saman við hljóðheim hljóðfæranna. Verkið skiptist í fjórtán hluta og það er misjafnt hvaða hljóðfæri koma við sögu hverju sinni. „Það fylgir svolít- ið dýnamíkinni í verkinu sjálfu,“ skýrir Mikael. Samstarfið gengið vel „Hugmyndin kviknaði þegar ég var að klára meistaraverkefnið mitt í ágúst í fyrra því þá vorum við að vinna svolítið saman. En við byrj- uðum ekkert að vinna í verkefninu fyrr en við hittumst á Íslandi um síð- ustu jól,“ segir Lilja en þau systk- inin hafa mikið dvalið erlendis. Mikael segir þau hafa unnið að verkinu jafnt og þétt síðan. „Ég hef verið að senda Lilju búta af mínum lögum og hún á móti af sínum og svo fórum við að setja saman. Síðan hitt- umst við á Íslandi í viku í apríl og unnum saman áfram. Svo höfum við verið í stífu æfingaferli frá því í lok júní. Það er búið að vera ótrúlega gaman,“ segir Mikael og Lilja tekur undir: „Það hefur gengið rosalega vel.“ Lilja segir samstarf þeirra systk- ina hafa hafist þegar hún vann að meistaraverkefni sínu. „Við höfum hingað til verið hvort á sínu sviðinu. Þetta var kjörið tækifæri til þess að reyna að finna sameiginlegan út- gangspunkt,“ segir hún. „Náum rosalega vel saman“ „Ég held að við höfum kannski ekki verið nógu hugrökk áður til þess að gera akkúrat þetta því við komum frá svo ólíkum heimum inn- an tónlistarinnar,“ bætir Mikael við. „Við höfum lengi viljað vinna saman því við náum rosalega vel saman persónulega og höfum sömu mark- mið, vinnum á svipaðan hátt og tón- listin er líf okkar,“ segir hann. Fyrstu tónleikar hinna samrýndu systkina, Lilju og Mikaels, verða í Ólafsfjarðarkirkju á morgun, laug- ardaginn 27. júlí, en síðan verður ferðast um Norðurland og spilað í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 30. júlí, í Akureyrarkirkju 31. júlí og Reykja- hlíðarkirkju á Mývatni 1. ágúst. Lokatónleikarnir verða í Mengi í Reykjavík hinn 9. ágúst. Spurður hvort það verði framhald á verkinu segir Mikael: „Þetta er bú- ið að vera ótrúlega gaman og við vilj- um halda áfram. Okkur finnst báð- um best að vinna á mjög opinn hátt og sjá hvert það leiðir okkur. Ég held að við munum sjá eftir tón- leikana hvað næsta skref verður en það er alveg bókað að það verður eitthvert næsta skref.“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson Samrýnd „Okkur finnst báðum best að vinna á mjög opinn hátt og sjá hvert það leiðir okkur,“ segir Mikael um samstarfið við systur sína Lilju. Þau halda í tónleikaferðalag um landið þar sem þau flytja frumsamið verk. „Tónlistin er líf okkar“  Lilja María og Mikael Máni Ásmundsbörn taka höndum saman  Flytja frum- samið tónverk á ferðalagi  Tilraunakennd blanda af samtímaklassík og djassi Skoska myndlistarkonan Sam Ains- ley opnar í dag, föstudag, kl. 18 sýninguna Alternating Currents í Grafíksalnum Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Ainsley er þekkt listakona og sýningarstjóri, hefur sýnt víða um lönd og eru verk eftir hana í virtum lista- og einkasöfnum víða. Hún hefur tekið þátt í ýmiskonar frum- kvöðlastarfsemi á sviði myndlistar í Skotlandi og á alþjóðlegum vett- vangi. Hún kenndi í aldarfjórðung við Glasgow School of Art og stýrði þar MFA-náminu um skeið og námu nokkrir íslenskir myndlistarmenn þá hjá henni. Á sýningunni eru ný verk eftir Ainsley, þar á meðal hið 35 fer- metra „Red Curtain for Iceland“ á tveimur veggjum en á það eru prentaðar myndir af ímynduðum loftstraumum Íslands og öðrum veðurmynstrum. Á annan vegg hef- ur Ainsley skapað stóra teikningu sem sýnir raunveruleg og ímynduð tengsl landslags á Íslandi og í Skot- landi. Þá sýnir hún ný grafíkverk. Listakonan Sam Ainsley er í hópi þekktustu listamanna Skota. Verk um íslenska loft- strauma og landslag  Sam Ainsley sýnir í Grafíksalnum Í sýningarrýminu Midpunkt í Hamraborg í Kópavogi vinnur nú fransk-íslenskt listateymi, Camille Lacroix og Ari Allansson, í fyrstu vinustofudvölinni sem Midpunkt býður upp á. Camille er frönsk hljóðlistakona og leikmyndahönn- uður og Ari íslenskur kvikmynda- gerðarmaður en þau búa og starfa í París. Í Midpunkt starfrækja þau nú Hina íslensku geimferðastofnun og svonefnt Space Lab og vilja „bæta fimmtu áttinni við – beint upp og út í geim“. Rannsóknar- vinnan fer að mestu fram fyrir lukt- um dyrum en áhugasömum gefst þó í dag, döstudag, kl. 13 til 15, tæki- færi til að koma og kynna sér hvernig henni miðar. Space Lab Listamennirnir rannsaka eld- flaugavísindi og geimferðir í myndverkum. Geimferðastofnun í Midpunkt Nokkrum dögum eftir að átta myndlistarmann- anna 75 sem eiga verk á hinum vinsæla tvíæringi Whitney-safnsins í New York kröfðust þess að verk þeirra yrðu tekin af sýning- unni segði Warr- en Kanders, varaformaður stjórn- arinnar, ekki af sér hefur hann látið undan sívaxandi þrýstingi og farið að þeirri ósk. Fyrirtæki Kand- ers framleiðir táragas sem hefur meðal annars verið beitt á ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum og hafa listamenn verið ósáttir við að sýna í safni sem tengist slíku. Þá hafa margir starfsmenn safnsins einnig krafist afsagnar Kanders. Táragasframleið- andinn segir af sér Frá Whitney- tvíæringnum í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.