Morgunblaðið - 26.07.2019, Page 29

Morgunblaðið - 26.07.2019, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Við gyllinæð og annarri ertingu og óþægindum í endaþarmi Krem Þríþætt verkun - verndar, gefur raka og græðir Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Inniheldur ekki stera Hreinsifroða Froðan hreinsar, róar og frískar óþægindasvæðið Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum Fyrir hámarksárangur er mælt með notkun á Procto-ezeTM Hreinsi áður en Procto-ezeTM Krem er notað. Fæst í næsta apóteki. »Söngvaskáldið Svav- ar Knútur gladdi við- stadda með tali og tón- um á tónleikum sínum í Norræna húsinu fyrr í vikunni. Svavar Knútur hefur getið sér gott orð fyrir bæði frumsamda tónlist og nálgun sína á sígild íslensk sönglög. Einlægni og hlýja ráða ríkjum í tónlist hans. Söngvaskáldið Svavar Knútur í Norræna húsinu Morgunblaðið/Hari Fjölmenni Húsfyllir var í aðalsal Norræna hússins á tónleikunum og skein einbeitnin út úr hverju andliti. Hlátrasköll Svavar Knútur er launfyndinn sagnamaður sem kann að gleðja áheyrendur sína. Hlýja Nærvera Svavars Knúts einkennist af einlægni og hlýju. Bandaríski rapparinn ASAP Rocky hefur ásamt tveimur starfsmönnum sínum verið ákærður fyrir alvar- lega líkamsárás sem framin var í Stokkhólmi 30. júní. ASAP Rocky, sem heitir réttu nafni Rakim Mayers, kom til Svíþjóðar í júní á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu og var handtek- inn 2. júlí eftir að TMZ birti á vefn- um upptökur þar sem ASAP Rocky sést kasta ungum manni í götuna, kýla og sparka. ASAP Rocky deildi í framhald- inu eigin myndefni til að sanna að honum hefði staðið ógn af unga manninum sem elt hefði hann á röndum og því verið um sjálfsvörn að ræða. ASAP Rocky hefur, ásamt mönnunum tveimur, setið í gæslu- varðhaldi í Kronoberg-fangelsinu frá 5. júlí og verða þeir þar allir fram að réttarhöldunum sem fram fara 30. júlí. Athygli vakti þegar Donald Trump forseti Bandaríkjanna tísti um málið fyrir nokkrum dögum. Þar upplýsti hann að hann hefði rætt málið við Stefan Löfven, for- sætisráðherra Svíþjóðar, og boðist til þess að greiða trygginguna fyrir ASAP Rocky, en eins og fram kem- ur í frétt SVT er slíkt ekki hægt í sænska réttarkerfinu, sem er öðru- vísi uppbyggt en það bandaríska. „Árásarmennirnir notuðu flösku sem barefli, lömdu og spörkuðu í liggjandi mann. Þeir segja að um sjálfsvörn hafi verið að ræða, en þarna er klárt brot á ferðinni,“ seg- ir Daniel Suneson saksóknari í sam- tali við SVT. Fyrr í vikunni ákvað hann að vísa frá kæru lífvarðar ASAP Rocky á hendur þoland- anum. „Ástæðan er sú að ég hef séð upptökur, sem ekki hafa komið fyr- ir almenningssjónir, sem sýna nokkuð aðra atburðarás en þá sem fyrri upptökur á netinu gáfu til kynna,“ segir Suneson og vísar þar til upptöku úr eftirlitsmyndavél veitingastaðar í nágrenni við árás- arstaðinn. Á blaðamannafundi sagði Slobodan Jovicic, verjandi ASAP Rocky, umbjóðanda sinn vera vonsvikinn yfir stöðu mála og að ákæruvaldið tæki ekki tillit til hans hliðar. „Hann telur sig vera saklausan,“ sagði Jovicic. Brotin sem ákært er fyrir varða allt að tveggja ára fangelsi í Svíþjóð. ASAP Rocky ákærð- ur fyrir líkamsárás  Réttarhöldin fara fram 30. júlí ASAP Rocky Enski rithöfundurinnQuentin Bates hefur fet-að í fótspor DesmondsBagleys og skrifað spennusögur sem gerast á Íslandi. Á hálum ís er önnur bók hans sem kemur út á íslensku og verður ekki annað sagt en honum hafi tekist vel upp. Dollaramyndirnar koma einna helst upp í hugann eftir lestur bók- arinnar. Þótt efnið sé grafalvarlegt og afbrotin grimm er ákveðin glettni til staðar. Quentin Bates, sem þekkir vel til á Íslandi, hefur enda látið hafa eftir sér að hann setji markvisst brandara í hverja bók og hafi gaman af orðaleikjum sem bara Íslendingar skilji. Að sumu leyti er Á hálum ís formúlubók; glæpamenn á flótta undan armi réttvísinnar. Gunnhildur Gísladóttir rannsóknarlögreglu- maður er sem fyrr í aðalhlutverki réttvísinnar, annars vegar vegna starfs síns og hins vegar vegna fjölskyldumála. Glæpamennirnir skiptast í þrjá hópa; Alla í Horn- búðinni og hans fylgjendur, Graf- arana og síðast en ekki síst Össur Óskarsson, sem situr óvænt uppi með Magna Klemens Sighvatsson, saklausan rum, sem er tilbúinn að taka að sér viðvik á gráu svæði fyr- ir peninga, og mæðgurnar Ernu og Tinnu Lind. Sagan snýst fyrst og fremst um samskipti síðastnefndu fjórmenn- inganna eftir að rán karlanna fer ekki eins og að var stefnt. Mæðg- urnar blandast óvænt í málið og eiga síðan stóran hlut að máli í hraðri atburðarás, þar sem lög- reglan er lengi alltaf skrefi á eftir afbrotafólkinu. Lýsingar á fjórmenningunum eru skemmtilegar og höfundi hefur tek- ist að búa til persónur sem eiga í raun ekkert sameiginlegt og hugsa fyrst og fremst um eigin skinn en leika leikinn eins og þær hafi aldrei gert annað. Ótrúleg blanda, sem að sumu leyti virðist vera óaðskilj- anleg að hluta en þrífst engu að síður engan veginn í sköpuðu um- hverfinu. Spennan er mikil og atburða- rásin hröð. Breyskleikinn á sér engin takmörk og þegar öllu er á botninn hvolft virðist ekki vera mikill munur á milli góðs og ills. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rithöfundur Quentin Bates. Á flótta undan armi réttvísinnar Spennusaga Á hálum ís bbbbn Eftir Quentin Bates. Jón Þ. Þór íslenskaði. Ugla 2019. Kilja, 336 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.