Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Eggert Icelandair Bogi segir það „ekkert nýtt“ að félagið vilji betri nýtingu. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Icelandair fullnýtir ekki flugmenn sína og flugfreyjur, að mati for- manns Félags íslenskra atvinnuflug- manna og formanns Flugfreyju- félags Íslands. Félaginu sé heimilt að nýta starfsfólk sitt betur en það geri það einfaldlega ekki. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair, sagði nýverið að flugmenn og flugfreyjur félagsins skiluðu of fáum vinnustundum miðað við keppinauta fyrirtækisins. Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair Group, tekur undir ummæli Jóns og segir tækifæri fólgin í betri nýtingu starfsfólks. Mögulega þurfi að breyta kjarasamningum vegna þess. Formenn stéttarfélaganna telja það þó ekki nauðsynlegt enda heim- ild til betri nýtingar nú þegar fyrir hendi. Hvað varðar MAX-þotur Iceland- air sem voru kyrrsettar í marsmán- uði samsinnir Bogi því að möguleg framleiðslustöðvun á MAX 737-þot- um Boeing myndi koma sér illa fyrir Icelandair, sem hafði ætlað að bæta fimm slíkum við flota flugfélagsins á næsta ári. »4 Betri nýting gerleg  Icelandair ger- nýti ekki heimildir L A U G A R D A G U R 2 7. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  175. tölublað  107. árgangur  SCHUBERT VAR NÆSTUR Á DAGSKRÁNNI STÝRIR SKÓLA Í NOREGI GUÐMUNDUR HEGNER 10SUNGIÐ Á GLJÚFRASTEINI 45 „Ég hélt nú fyrst að þetta væri eitthvert sár á höfðinu en þetta er bara rautt hrúður sem fer síðan af þeim,“ segir Pétur Alan Guðmundsson, kaupmaður og áhugaljósmyndari, sem náði þess- ari fallegu mynd á dögunum af flórgoðaungum á hreiðri. Pétur segist hafa fylgst með flórgoða- pörum undanfarin ár, þetta sé einn af hans uppá- haldsfuglum. Flórgoði er eini goðinn sem verpir á Íslandi og er að mestu leyti farfugl. Litríkir og fallegir flórgoðaungar Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundsson „Því miður hafa spár mínar um um- ferðarmálin í Kvosinni ræst. Ástandið er jafnvel verra en ég ótt- aðist,“ segir Ólafur Kristinn Guð- mundsson umferðarsérfræðingur í samtali við Morgunblaðið. Umræða hefur skapast undan- farið um miklar umferðarteppur sem myndast hafa á álagstímum á gatnamótum Geirsgötu og Lækj- argötu/Kalkofnsvegar. Ólafur segir að borgaryfirvöld hafi gert margvísleg mistök varð- andi útfærslu gatnamótanna. Best hefði verið að leggja Sæbraut og Geirsgötu í stokk neðanjarðar en því var hafnað. Þá hafi lóð í Austur- höfn verið stækkuð með þeim af- leiðingum að setja varð upp svo- kölluð T-gatnamót, sem ráði ekki við umferðina. Að auki séu umferð- arljósin á gatnamótunum rangt sett upp, sem tefji umferð. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Gatnamótin Á álagstímum myndast langar raðir bíla í allar áttir. Margvísleg mistök gerð á gatnamótum Enginn bleikur fólksbíll var ný- skráður á síðasta ári. Eins og oft áð- ur var lítið um litadýrðir í nýskráð- um bílum en langflestir þeirra voru annað hvort gráir (39,1%) eða hvítir (26%) að lit. Á eftir fylgdu þó rauðir bílar sem höfðu 11% hlutdeild og þar á eftir komu svartir bílar, sem töldu 8,7 % nýskráðra bíla. Þetta og fleira kemur fram í árbók Bílgreina- sambandsins en þar segir einnig að hækkandi aldur bílaflotans á Íslandi hafi mátt merkja í fyrsta skipti í fyrra eftir nokkurra ára tímabil þar sem bílaflotinn yngdist. Er þetta þróun sem þarf að snúa við, segir María Jóna Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri Bílgreinasambands- ins, enda nýrri bílar umhverfisvænni og öruggari. Þyrftu stjórnvöld að koma til móts við neytendur í þessu með ívilnunum af einhverju tagi. »20 Enginn nýskráður bíll bleikur í fyrra Morgunblaðið/Hari Bílar Nýskráningar bifreiða voru færri í fyrra en árið þar á undan. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Kaupum Michele Ballarin og félags hennar, Oasis Aviation Group, á flugrekstrartengdum eignum úr þrotabúi WOW air hefur verið rift. Þetta herma heimildir Morgun- blaðsins. Ástæðan mun vera sú að síendurtekið hafi dregist að inna af hendi fyrstu greiðslu samkvæmt kaupsamningi sem gerður var milli þrotabúsins og fyrrnefndra kaup- enda. Fyrst var greint frá umrædd- um kaupum á forsíðu Fréttablaðs- ins að morgni 12. júlí. Þar var full- yrt að viðskiptin væru gengin í gegn og að þau hefðu byggst á eingreiðslu. Hið rétta er að samn- ingurinn gerði ráð fyrir að við- skiptin yrðu gerð í þremur áföng- um og að umfang þeirra allra yrði svipað að umfangi. Heimildir Morgunblaðsins herma að heildar- virði viðskiptanna hafi hljóðað upp á tæpar 1,5 milljónir dollara, ríf- lega 180 milljónir króna. Þreifingar halda áfram Þrátt fyrir riftunina hafa þreif- ingar um að koma viðskiptunum að nýju á átt sér stað en þau eru þrátt fyrir það í uppnámi sem stendur. Í ítarlegu viðtali við Ballarin, sem birt var í ViðskiptaMogganum á miðvikudag, setti hún engan fyr- irvara um kaupin. Þá fullyrti hún að nú þegar væri búið að tryggja milljarða króna til rekstursins fyrstu tvö árin. „Við höfum tryggt félaginu 85 milljónir Bandaríkja- dala, eða 10,5 milljarða króna, sem á að duga félaginu fyrstu 24 mán- uðina. Ef þörf verður á getur sú tala orðið allt að 100 milljónir dala, eða 12,5 milljarðar króna,“ sagði Ballarin í viðtalinu. Umfang um- ræddra kaupa, sem nú hefur verið rift, voru því aðeins um 1,8% af þeirri fjárhæð sem Ballarin fullyrti að nú þegar væri búið að tryggja til rekstursins. WOW-kaup í uppnámi  Kaupum Michele Ballarin á eignum úr þrotabúi WOW air hefur verið rift Michele Ballarin MStóð ekki við kaupsamning »18 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.