Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 6

Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 6
VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Því miður hafa spár mínar um um- ferðarmálin í Kvosinni ræst. Ástandið er jafnvel verra en ég ótt- aðist,“ segir Ólafur Kristinn Guð- mundsson umferðarsérfræðingur í samtali við Morgunblaðið. Umræða hefur skapast undan- farið um þær miklu umferðar- teppur sem myndast hafa á álagstímum á gatnamótum Geirsgötu og Lækjargötu/ Kalkofnsvegar. Svo mikil var óánægjan að bæj- arstjórn Seltjarnarness blandaði sér í málið og óskaði eftir úrbótum. Ljósastillingu á gatnamótunum hef- ur nú verið breytt, en sú lausn hefur litlu bjargað að mati Ólafs. Umferðarljósin illa sett upp „Það bætist við vandræðin hvað umferðarljósin á gatnamótunum eru illa sett upp. Þegar þú ert stopp þarna þá eru engin ljós á móti. Þú sérð því aldrei hvenær ljósin skipta sér. Síðan er búið að ganga frá þessu þannig að gönguljósin eru skilin eftir. Allir bílar bíða en gönguljósin eru á grænu í allar áttir jafnvel þótt enginn gangandi veg- farandi sé að nota þau. Þegar þú keyrir Geirsgötuna eru hver ljósin á eftir öðrum og engin þeirra sam- stillt, þannig að maður gerir ekkert annað en stoppa,“ segir Ólafur. Hann segir að borgaryfirvöld hafi gert margvísleg mistök varðandi út- færslu gatnamótanna. Umferðar- sérfræðingar hafi bent á að heppi- legast væri að leggja Sæbraut og Geirsgötu í stokk neðanjarðar því fyrirsjáanlegt væri að umferðar- þungi og álag þar muni aukast veru- legra vegna mikillar uppbyggingar í miðbænum og vesturbænum. Í verð- launatillögu Portusar um Hörpu og nágrenni tónlistarhússins frá árinu 2005 var lagt til að Geirsgatan yrði öll lögð í stokk en ofanjarðar átti að vera torg með iðandi mannlífi. „Allar borgir eru að gera svona, en á sama tíma tóku borgaryfirvöld í Reykjavík þá misráðnu ákvörðun að byggja bílakjallara undir Geirsgöt- unni og þar með var lokað fyrir þann möguleika um alla framtíð að færa umferðina í göng,“ segir Ólaf- ur. Hann segir að árið 2014 hafi aftur verið tekin vanhugsuð ákvörðun. Þá hafi lóð á Austurhöfn verið færð til suðurs svo hægt yrði að byggja nýj- ar höfuðstöðvar Landsbankans. Þetta þýddi að Geirsgatan lá ekki lengur í boga inn á Kalkofnsveg heldur voru útbúin svokölluð T- gatnamót með umferðarljósum. Í viðtali við Morgunblaðið í desember 2016 sagði Ólafur að þessi T-gatna- mót myndu ekki anna umferðinni. „Þetta hefur ræst, því miður. Og væntanlega á umferðin á þessum gatnamótum eftir að aukast enn þá meira á næstu árum.“ Í desember 2016 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsnefnd til að Geirsgatan yrði lögð í stokk neðanjarðar. Fulltrúar meirihlutaflokkanna voru þessu andvígir, m.a. á þeim forsend- um að kostnaður við þessa lausn hlypi á milljörðum. „Ekki er verið að hefta umferðar- flæði þó að forgangsraðað sé í þágu sjálfbærra samgönguhátta enda eru þeir í fyrirrúmi í þessum hluta borg- arinnar og áhersla lögð á öryggi gangandi vegfarenda,“ bókuðu fulltrúar meirihlutans m.a. Ólafur Kristinn segir að þarna hafi farið síðasti möguleikinn til þess að bjarga umferðarmálum Kvosarinnar. Nú sé búið að byggja bílakjallara undir Geirsgötunni og möguleiki á stokkalausninni ekki lengur fyrir hendi. „Ástandið verra en ég óttaðist“  Miklar umferðarteppur myndast á Geirsgötu  Umferðarsérfræðingur spáði því að gatnamót þar myndu ekki anna umferðinni  Mistök að leggja ekki götuna í stokk  T-gatnamótin einnig mistök Morgunblaðið/Árni Sæberg Gatnamótin Á álagstímum myndast langar raðir bifreiða á gatnamótunum. Þetta á sérstaklega við um Geirsgötuna sjálfa og Sæbrautina í austurátt. Ólafur Kristinn Guðmundsson 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar Fjórar umsóknir bárust um emb- ætti sóknarprests í Breiðholts- prestakalli. Embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 20. júní sl. og rann umsóknarfrestur út hinn 22. júlí. Umsækjendur um embættið eru: Erna Kristín Stefánsdóttir guð- fræðingur, Ingimar Helgason guð- fræðingur, séra Magnús Björn Björnsson og séra Sigurvin Lárus Jónsson. Umsóknir fara nú til mats- nefndar um hæfni til prestsemb- ættis. Biskup Íslands skipar í emb- ættið frá og með 1. september næstkomandi. Í Breiðholtsprestakalli er ein sókn, Breiðholtssókn, með um 4.000 íbúa og eina kirkju, Breiðholts- kirkju. Breiðholtssókn er á sam- starfssvæði með Fella- og Hóla- og Seljasókn í Breiðholti. Núverandi sóknarprestur er sr. Gísli Jónasson prófastur. Hann hefur gegnt emb- ættinu um áratuga skeið og lætur nú af störfum fyrir aldurs sakir. sisi@mbl.is Fjórar umsóknir um Breiðholtskirkju Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Vegaframkvæmdir í Ingólfsfirði á Ströndum við veginn yfir til Ófeigs- fjarðar eru á áætlun, að sögn Frið- riks Friðrikssonar, talsmanns Vest- urVerks, sem sér um framkvæmdirnar. Hann segir að enn sé töluvert mikið eftir af verk- inu og býst við að vinnu verði lokið eftir tíu til fjórtán daga. „Við erum bara í Norðfirði og eig- um eftir að færa okkur yfir og laga veginn. Þetta er að mestu leyti bara verið að greina veginn og taka svona nibbur sem standa úti í vegi, öllum til bóta,“ segir Friðrik. „Þetta vinnst bara eins og það vinnst. Þetta er nú ekki stórvægilegt sem á að gera en það á að reyna að þurrka veginn svo að hann haldi betur og setja ræsi þar sem vatn fer illa með veginn.“ Enn hafa mótmælendur ekki látið á sér kræla vegna framkvæmdanna en Friðrik telur að hægt sé að búast við einhverjum aðgerðum en vonar þó að til þess komi ekki. „Það er eitthvað sem við getum átt von á. Menn hafa alla vega sagst ætla að gera eitthvað en við trúum bara að fólk sé löghlýðið og fari eftir lögum og reglum. Við trúum því þangað til á annað reynir,“ segir hann. Morgunblaðið/Sigurður Bogi VesturVerk Framkvæmdir VesturVerks í Ingólfsfirði á Ströndum við veginn yfir til Ófeigsfjarðar eru á áætlun. Vegaframkvæmdir á áætlun  Mótmælendur virkjunar hafa enn ekki látið á sér kræla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.