Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019
Fram hefur komið í fréttum aðmun fleiri aki yfir löglegum há-
markshraða eftir Hringbraut eftir að
hámarkshraði í götunni var lækk-
aður úr 50 í 40 kílómetra á klukku-
stund vestan Bjarkargötu heldur en
áður og satt að segja er munurinn
sláandi.
Ástæðan fyrir því að hámarks-hraðinn var lækkaður var slys
sem varð við ljós í götunni, og er eðli-
legt að bregðast við kröfum foreldra
sem óttast um börn sín í umferðinni.
Hún er oft mjög mikil í götunni og
börn eiga iðulega erindi yfir Hring-
brautina, til dæmis vegna íþrótta-
starfsins í KR.
Hins vegar hefði mátt koma beturtil móts við ökumenn samfara
þessari breytingu. Þarna eru mörg
ljós á stuttum kafla og virðast þau
stillt þannig að útilokað sé að komast
á milli á grænu ljósi á löglegum
hraða. Það var tæpt áður en hrað-
anum var breytt, en útilokað nú.
Græna ljósið getur nú virkað eins og
rauð dula nautabanans á tarfinn og
freistað ökumanna að reyna að ná á
milli ljósa og komast sem lengst án
þess að nema staðar.
Því hefur verið lýst yfir að séðverði til þess að ekið verði á lög-
legum hraða á þessum hluta Hring-
brautar, meðal annars með því að
sekta ökumenn þar til þeir átta sig.
Það mætti líka huga að því að farahina leiðina og stilla ljósin þann-
ig að eina leiðin til að aka eftir Hring-
brautinni án þess að þurfa að stoppa
sé á löglegum hraða. Þetta er gamla
spurningin um gulrótina eða prikið.
Gulrót eða prik
STAKSTEINAR
Ljósin á mótum Bræðraborgarstígs og Hring-
brautar eru ekki í takti við næstu ljós.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Fulltrúar VR afhentu Héraðsdómi
Reykjavíkur stefnu á hendur Fjár-
málaeftirlitinu (FME) í gær. Stjórn
VR samþykkti að stefna stofnuninni
fyrir að viðurkenna ekki lögmæti
ákvörðunar fulltrúaráðs VR um að
afturkalla umboð
stjórnarmanna í
Lífeyrissjóði
verzlunarmanna.
Þetta staðfesti
Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður
VR, við mbl.is.
„Markmiðið er
fyrst og fremst að
fá þennan úr-
skurð FME
dæmdan ógild-
an,“ segir Ragnar Þór og vísar til
þess að FME líti svo á að ákvörðun
um afturköllunina sé ekki gild þar
sem hún hafi ekki, að mati stofnun-
arinnar, verið tekin af stjórn VR eins
og samþykktir Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna gera ráð fyrir.
Fulltrúaráð VR ákvað 20. júní að
afturkalla umboð stjórnarmanna
sem félagið tilnefnir í stjórn lífeyr-
issjóðsins.
Ragnar Þór segir stjórnina hafa
tekið ákvörðun um afturköllun um-
boðs stjórnarmannanna. „Við töld-
um okkur einfaldlega – með því að
vísa ákvörðun til fulltrúaráðs á sín-
um tíma – vera að sýna vandaðri
vinnubrögð og málsmeðferð heldur
en þörf var á, því málið var sam-
þykkt innan stjórnar líka með fyr-
irvara um samþykki fulltrúaráðs
sem stjórnin á öll sæti í.“
Krefjast vandaðra vinnubragða
Formaðurinn segir VR með stefn-
unni vera að gera „þá kröfu að eft-
irlitsaðilar stundi þau faglegu vinnu-
brögð sem þeir segja öðrum að
sýna.“ Hann segir jafnframt vinnu-
brögð FME „ekki boðleg“.
„Ef við stígum ekki niður fæti þá
er alltaf hætta á því að slík vinnu-
brögð verði viðhöfð áfram, þannig að
það er mikilvægt að við sýnum eft-
irlitsaðilum – í þessu tilfelli FME –
nauðsynlegt aðhald og gerum eðli-
lega kröfu um að faglegum vinnu-
brögðum sé beitt þegar verið er að
stunda svona inngrip í mál sem
þetta,“ útskýrir hann.
VR stefnir Fjár-
málaeftirlitinu
Vill að úrskurður FME verði ógiltur
Ragnar Þór
Ingólfsson
„Að gefnu tilefni viljum við ítreka að klósettið er
EKKI ruslafata.“ Þessa áminningu setti Um-
hverfisstofnun á heimasíðu sína nýlega, að gefnu
tilefni.
Nú í júlí fóru starfsmenn Umhverfisstofnunar
í fjöruna í Bakkavík á Seltjarnarnesi að tína rusl
vegna vöktunarverkefnis stofnunarinnar. Vökt-
unin felur í sér að tína allt rusl á 100 metra kafla,
fjórum sinnum á ári. Ruslið er flokkað eftir
staðlaðri aðferðafræði og eru gögnin notuð til að
fylgjast með þróun á magni og samsetningu
rusls á ströndum.
Það varð fljótt áberandi hversu mikið var af
blautklútum, sem var staðfest eftir talningu á
ruslinu, segir á heimasíðunni. Alls voru tíndir
977 blautklútar, en það hafa aldrei fundist eins
margir blautklútar í einni ferð. Til samanburðar
voru alls tíndir 753 blautklútar árið 2017 og 605
klútar árið 2018.
Jafnframt er minnt á að til viðbótar er bannað
að henda eftirtöldu í klósettið:
Tannþráðum, dömubindum, túrtöppum,
smokkum, eyrnapinnum, bleyjum, eldhús-
bréfum, trefjaklútum, fitu og olíum. sisi@mbl.is
Enn er blautklútum hent í klósettið
Ljósmynd/Umhverfisstofnun
Bakkavík Fjaran á Seltjarnarnesi var full af
blautklútum þegar talning fór fram nýlega.
Fjaran í Bakkavík á Seltjarnarnesi er vöktuð