Morgunblaðið - 27.07.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Guðrún Erlingdóttir
ge@mbl.is
„Við erum að brjóta niður múra og
útrýma fordómum með því að efla
ungt fólk sem stuðlað gæti að sjálf-
bærum heimi með umhverfisvitund,
virðingu og frið að leiðarljósi,“ segir
Guðmundur Hegner Jónsson, rekt-
or alþjóðamenntaskóla í bænum
Flekke á vesturströnd Noregs.
Nefnist skólinn United World Coll-
ege (UWC) og undirtitillinn Red
Cross Nordic.
Samtökin United World College
International reka skólann en þau
voru stofnuð árið 1962 í Wales af
þýska menntunarfræðingnum Kurt
Hahn, sem Hitler handtók rétt fyr-
ir seinni heimsstyrjöld.
„Hann náði að flýja til Bretlands
og stofnaði þar Gordonstoun-
háskólann sem var í fararbroddi í
nýrri hugsun í menntamálum. Hann
stofnaði síðan UWC-samtökin á
tímum kaldastríðsins,“ segir Guð-
mundur um tilurð UWC-samtak-
anna og bætir við að í Noregi
stundi 204 nemendur frá 90 löndum
nám. Skólarnir séu allir sjálfstæðir
og oftast staðsettir á afskekktum
stöðum. Skólinn í Noregi skeri sig
úr vegna samstarfsins við Rauða
krossinn í Noregi.
Guðmundur segir fjölmörg dæmi
um að nemendur skólans hafi að
loknu námi haft áfrif á samfélög
sín.
18 skólar í fjórum heimsálfum
UWC-samtökin reka 18 skóla í
fjórum heimsálfum, m.a. í Singapúr,
Dubaí og Kosta Ríka. Námið tekur
tvö ár og lýkur með alþjóðlegu við-
urkenndu stúdentsprófi.
Nú stendur yfir rannsóknar-
verkefni hjá Harvard-háskóla sem
snýr að því að rannsaka áhrif
UWC-menntunar á nemendur og
áhrif þeirra á samfélög sín að námi
loknu.
Tveir Íslendingar stunda árlega
nám við skólann í Noregi, sem Ís-
land á aðild að. Nemendur sækja
um skólavist hjá menntamála-
ráðuneytinu í byrjun árs. Þeir
þurfa að vera á framhaldsskóla-
aldri, hafa lokið einu ári í fram-
haldsskóla og hafa vald á ensku en
námið fer allt fram á ensku. Þegar
nemendur eru valdir í skólann er
litið til fleiri þátta en námslegra,
m.a. til félags- og æskulýðsstarfa
og persónuleika. Í 170 löndum
starfa nefndir skipaðar sjálfboða-
liðum sem velja nemendur í
skólana. Skólinn í Flekke er eini
skólinn á Norðurlöndunum og fjár-
magnaður af þeim. Svíar, Danir og
Norðmenn leggja stærstu fram-
lögin til hans en Ísland, Grænland,
Færeyjar og Finnland taka einnig
þátt í rekstrinum.
„Námið fer ekki einungis fram í
skólastofunum. Vegna aðkomu
Rauða krossins að skólanum í Nor-
egi er mikil áhersla lögð á vinnu
með flóttafólki og þeim sem misst
hafa útlimi í stríðshrjáðum löndum.
Einnig sjái nemendur um ýmis
störf á endurhæfingarstöð nálægt
skólanum,“ segir Guðmundur og
bendir á að mikil áhersla sé lögð á
að nemendur kynnist ólíkri menn-
ingu og vinni á fordómum. Það sé
m.a. gert með því að hafa fimm
nemendur saman í herbergi allan
námstímann. Sérstaklega séu valdir
saman einstaklingar af ólíku þjóð-
erni og menningarheimum, t.d. séu
einstaklingar frá Palestínu og Ísr-
ael settir í sama herbergi. Eðlilega
gangi á ýmsu til að byrja með þar
sem þessir einstaklingar séu aldir
upp við að líta niður hver á annan. Í
lok námsins hafi nemendur komist
að því að þeir séu eins og eigi sömu
drauma og þrár.
Friður, virðing og sjálfbærni
Ljósmynd/David Zadig
Fjölbreytni Nemendur hvaðanæva úr heiminum stunda fjölbreytt nám í alþjóðaskólanum United World College Red Cross Nordic í Flekke í Noregi.
Dugnaður Aðstæður nemenda í alþjóðaskólanum í Flekke eru misjafnar.
Guðmundur Hegner Jónsson stýrir alþjóðamenntaskóla UWC í Noregi Tveir íslenskir nem-
endur á ári í skólanum Samtökin UWC stofnuð til þess að brjóta niður múra og eyða fordómum
Guðmundur Hegner Jónsson, fornleifafræðingur, söngvari og kennari,
tók við starfi rektors United World College Red Cross Nordic fyrir ári.
Guðmundur er fæddur á Íslandi. Fimm ára flutti hann með foreldrum
sínum til Edinborgar í Skotlandi, þaðan til Jedda í Sádi-Arabíu, kom aftur
til Íslands 14 ára og kláraði grunn- og menntaskóla. Guðmundur fór í há-
skólanám í Bretlandi þar sem hann kláraði fornleifafræði og nam í tvö ár
óperusöng við Royal Academy of Music í kjölfar söngs með Hamrahlíð-
arkórnum. Við fornleifastörf í Tyrklandi kynntist Guðmundur serbneskri
eiginkonu sinni, Katarínu. Þau fluttu til Serbíu þar sem Guðmundur
kenndi í Alþljóðaskóla. Þaðan lá leiðin með kennslu og söng til Ítalíu,
Kína, Abu Dhabi og loks til Flekkefjord á vesturströnd Noregs þar sem
Guðmundur hefur búið með fjölskyldunni síðastliðið ár.
Víðförull og víðsýnn stjórnandi
REKTOR, SÖNGVARI OG FORNLEIFAFRÆÐINGUR
Alþjóðleg Guðmundur, Katarína og börn þeirra una sér vel í Noregi.