Morgunblaðið - 27.07.2019, Page 18
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hlutabréfamarkaðurinn tók harka-
lega í fréttir af kaupum Michele Bal-
arin og Oasis Aviation Group (OAG)
á flugrekstrareignum þrotabús
WOW air. Þannig lækkuðu hlutabréf
Icelandair Group um ríflega 7% í
kjölfar fréttanna
enda fullyrt að
þau væru frá-
gengin og að fullu
greitt fyrir verð-
mætin. Sam-
kvæmt undirrit-
uðum samningi
hugðust kaup-
endur tryggja sér
vörumerkið
WOW air, flug-
rekstrarhandbækur sem nýst gætu
til þess að sækja um flugrekstrar-
leyfi, bókunarvél félagsins, búninga,
þjónustuvagna og varahluti sem
tengdust flugvélaflota félagsins.
Ekki allt sem sýndist
Tólf dögum eftir upphaflega til-
kynningu birtist viðtal við Ballarin í
ViðskiptaMogganum þar sem eng-
inn fyrirvari var gerður við yfirlýst
kaup og fullyrt að kaupendur hefðu
þá þegar tryggt 85 milljónir dollara
til reksturs endurreists WOW air.
Þann sama dag birti Morgunblað-
ið hins vegar frétt um að viðskiptin
væru ekki að fullu frágengin. Hafði
blaðið þær upplýsingar eftir heimild-
armönnum.
Nú er orðið ljóst að kaupsamningi
milli Ballarin og OAG annars vegar
og þrotabús WOW air hins vegar
hefur verið rift. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að ástæðuna megi
rekja til þess að síendurtekið hafi
loforð um greiðslu fyrir verðmætin
verið svikin. Þannig hafi verið byggt
á því að fyrir eignirnar yrðu greidd-
ar tæpar 1,5 milljónir dollara og að
fjárhæðin yrði greidd í fjórum mis-
stórum færslum. Fyrsta greiðslan,
sem var forsenda þess að samningar
stæðu, hafi ekki borist. Engar hald-
bærar skýringar hafa fengist á því
hvað olli greiðsludrættinum.
Þreifingar standa enn
Þrátt fyrir riftunina mun þeim
skilaboðum hafa verið komið til Ball-
arin og viðskiptafélaga hennar að
eignir þrotabúsins séu enn til sölu.
Hins vegar er búið ekki skuldbundið
af því að ganga til samninga við þau
eins og eftir að kaupsamningur
komst á. Ballarin var raunar ekki ein
um að falast eftir eignum þrotabús-
ins. Um svipað leyti og gengið var
frá fyrrnefndum samningi gerðu að-
ilar sem einnig stefna að endurreisn
félagsins undir vinnuheitinu WAB,
tilraun til að nálgast þrotabúið í
þeirri viðleitni að kaupa flugrekstr-
areignirnar. Í hópi þeirra sem
standa að WAB eru Sveinn Ingi
Steinþórsson, sem stýrði hagdeild
WOW, Bogi Guðmundsson, lögmað-
ur hjá Atlantik Legal Services, og
Þóroddur Ari Þóroddsson, ráðgjafi í
London. Heimildir Morgunblaðsins
segja að hópurinn vinni enn að því
marki að WAB verði að veruleika.
Stóð ekki við kaupsamning
Morgunblaðið/Hari
28. mars Nú er 121 dagur liðinn frá gjaldþroti WOW air. Enn er allt á huldu um hvort félagið verður endurreist.
Flest bendir til þess að ekkert verði af kaupum Michele Ballarin á flugrekstrar-
eignum úr þrotabúi WOW air Dró fyrstu greiðslu samningsins svo vikum skipti
Michele
Ballarin
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn
Sunnumörk 2, Hveragerði, og Larsenstræti 5, Selfossi • Sími 483 1919,
Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18
lána sinna hjá bankanum í meira
en 90 daga vanskilum, af heildar-
útlánasafni bankans. Þannig gefur
hlutfallið ekki til kynna að 0,9% af
lánasafni bankans sé í meira en 90
daga vanskilum heldur að það hlut-
fall lánasafnsins tengist með einu
eða öðru móti aðilum sem eigi í
einhverjum vanskilum af því tagi.
Þegar litið er yfir stöðu vanskila
eftir greinum, líkt og það er sund-
urliðað í reikningum Landsbank-
ans, kemur í ljós að fyrirtæki í iðn-
aði sem eru í einhverjum
vanskilum lengur en 90 daga
skuldi bankanum ríflega 4,6 millj-
arða. Fyrir ári síðan stóð sú fjár-
hæð í rúmum 3,1 milljarði. Þá eru
skuldir fasteignafélaga sem eru
með skuldir sínar, að hluta til eða í
heild í yfir 90 daga vanskilum, 2,6
milljarðar króna en voru aðeins
tæpir 1,4 milljarðar um mitt ár í
fyrra. Svipaða sögu má segja af
fyrirtækjum í byggingarstarfsemi.
Skuldir fyrirtækja í þeim geira
sem eins er ástatt fyrir nema nú
tæpum 2,3 milljörðum en þær
námu rúmum 1,2 milljörðum fyrir
ári.Til þess að mæta væntum út-
lánatöpum færir bankinn fjármuni
í svokallaðan virðisrýrnunarsjóð.
Lilja Björk segir að árið í ár sé það
fyrsta frá hruni þar sem bankinn
tekjufæri ekki fjármuni úr þeim
sjóði.
„Undanfarin misseri hefur ekki
verið gjaldfærsla hjá okkur vegna
virðisrýrnunar því jákvæðar virð-
isbreytingar á lánum hafa verið
meiri en neikvæðar. Á þessu ári er
breyting þar á og það er hluti af
útlánastarfsemi að gera ráð fyrir
hóflegum útlánatöpum,“ segir Lilja
Björk.
Svokallað vanskilahlutfall hjá fyr-
irtækjum og einstaklingum sem
eru í viðskiptum við Landsbankann
var 0,9% á fyrri helmingi þessa árs
en var 0,6% yfir sama tímabil í
fyrra. Lilja Björk Einarsdóttir,
bankastjóri Landsbankans, segir
margt skýra þessa þróun en eink-
um horfur í efnahagslífinu.
„Okkur ber að horfa raunsætt á
stöðuna og hér hafa orðið ákveðnir
atburðir, einkum fall WOW air,
sem gefa okkur tilefni til að ætla
að horfurnar séu nokkru dekkri en
þær voru á síðasta ári.“
Vanskilahlutfallið varpar ljósi á
hlutfall lána þeirra fyrirtækja og
einstaklinga sem eru með einhver
Vanskilahlutfallið hækkar um 50%
Verst er staðan í iðnaði, byggingar-
starfsemi og hjá fasteignafélögum
Morgunblaðið/Ómar
Lán Vanskilahlutfall hefur hækkað
síðasta árið. M.a. í byggingariðnaði.
● Verslunin Pfaff,
sem er umboðs-
aðili margra
þekktra vöru-
merkja á sviði raf-
tækja, hagnaðist
um tæpar 66 millj-
ónir króna á árinu
2018, og jók hagn-
að sinn um tæp
24% á milli ára.
Hagnaður fyrir-
tækisins árið 2017 nam 53,4 milljónum
króna.
Rekstrartekjur Pfaff jukust um 13%
og námu tæpum 572 milljónum króna
samanborið við tæpar 506 milljónir árið
2017. Rekstrargjöldin námu 494 millj-
ónum króna í fyrra samanborið við 443
milljónir árið 2017. Samtals námu eign-
ir félagsins 393,6 milljónum króna í árs-
lok en eignirnar voru 360 milljónir í lok
árs 2017. Eigið fé nam 319 milljónum
króna í lok árs 2018. Skuldir fyrir-
tækisins námu 74 milljónum. Krist-
mann Magnússon á 76,66% hlut í fyrir-
tækinu. Margrét Kristmannsdóttir,
framkvæmdastjóri félagsins, á 7,37%
hlut, líkt og Magnús Kristmannsson og
Birgir Kristmannsson. Hjördís Magn-
úsdóttir fer með 1,23% hlut í félaginu.
Hagnaður verslunar
Pfaff jókst um 24%
Margrét
Kristmannsdóttir
27. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.69 122.27 121.98
Sterlingspund 152.1 152.84 152.47
Kanadadalur 92.62 93.16 92.89
Dönsk króna 18.151 18.257 18.204
Norsk króna 14.062 14.144 14.103
Sænsk króna 12.882 12.958 12.92
Svissn. franki 123.39 124.07 123.73
Japanskt jen 1.1254 1.132 1.1287
SDR 167.7 168.7 168.2
Evra 135.52 136.28 135.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.858
Hrávöruverð
Gull 1426.35 ($/únsa)
Ál 1795.0 ($/tonn) LME
Hráolía 63.21 ($/fatið) Brent
● Rólegt var yfir ís-
lenska hlutabréfa-
markaðnum í gær-
dag. Origo lækkaði
um 1,2% í verði í
620 þúsund króna
viðskiptum og
Kvika um 0,64% í
þriggja milljóna
króna viðskiptum.
Fasteignafélögin
þrjú hækkuðu í
verði, Eik um 0,92%, Reitir um 0,45% og
Reginn um 0,91%. Mest hækkuðu bréf í
VÍS, eða um 0,94% í 20 milljóna króna
viðskiptum. Samtals nam veltan í kaup-
höllinni 322 milljónum króna.
Fasteignafélögin hækk-
uðu öll í Kauphöllinni
Bjalla Rólegt í
Kauphöll Íslands.
STUTT