Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019
Fallegar 3ja og 4ra herbergja
íbúðir í nýbyggingu
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070
eða eignasala@eignasala.is
Sýningar-
íbúðir
tilbúnar
Bókið skoðun
Dalsbraut 4 - Reykjanesbæ
VERÐ FRÁ KR. 29.900.000
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Einræðisstjórnin í Norður-Kóreu
segir að nýjustu eldflaugatilraunir
sínar séu „alvarleg viðvörun“ til
stjórnvalda í Suður-Kóreu sem hún
lýsir sem „stríðsæsingamönnum“.
Norður-Kóreumenn skutu tveim-
ur skammdrægum eldflaugum sem
lentu í Japanshafi í fyrradag. Rann-
sóknir á gervihnattamyndum hafa
einnig bent til þess að Norður--
Kóreumenn hafi haldið áfram smíði
langdrægra eldflauga og framleiðslu
kjarnkleyfra efna sem notuð eru í
kjarnavopn þrátt fyrir fundi Donalds
Trumps Bandaríkjaforseta með
norðurkóreska einræðisherranum
Kim Jong-un, að sögn The Wall
Street Journal. Blaðið hefur eftir
sérfræðingum leyniþjónustu banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins að
Norður-Kóreumenn kunni að hafa
framleitt allt að tólf kjarnavopn frá
fyrsta fundi Trumps með Kim í
Singapúr í fyrra. Talið er að Norður-
Kóreumenn eigi núna alls 20-60
kjarnorkusprengjur sem hægt væri
að beita með tiltölulega skömmum
fyrirvara.
Trump hefur gert lítið úr mati
bandarískra öryggisstofnana á hætt-
unni sem stafar af kjarnavopnum
einræðisstjórnarinnar og sagði ný-
lega í sjónvarpsviðtali að Kim hefði
„lofað“ að framleiða ekki kjarna-
vopn. Áður hafði hann sagt að Kim
hefði verið „mjög hreinskilinn“,
„mjög heiðvirður“ og „mjög einlæg-
ur“ í viðræðum þeirra um kjarnorku-
afvopnun á Kóreuskaga. Trump tal-
aði um að samband sitt við
einræðisherrann væri „dásamlegt“
og sagði á fundi með stuðningsmönn-
um sínum í október að þeir Kim
hefðu orðið „ástfangnir“.
Gagnrýnir heræfingar
Fjölmiðlar einræðisstjórnarinnar
í Norður-Kóreu sögðu að Kim hefði
haft yfirumsjón með eldflaugatil-
rauninni í fyrradag til að vara
„stríðsæsingamennina“ í Suður--
Kóreu við. Þetta var fyrsta eld-
flaugaskot Norður-Kóreumanna frá
fundi Trumps með einræðisherran-
um á hlutlausa beltinu við landamæri
Kóreuríkjanna í júní.
Kim sagði að einræðisstjórnin
hefði neyðst til að þróa „ofuröflug“
vopn til að verjast ógnum við þjóðar-
öryggi Norður-Kóreu. Áður höfðu
fjölmiðlar landsins gagnrýnt ákvörð-
un stjórnvalda í Suður-Kóreu og
Bandaríkjunum um að efna til sam-
eiginlegra heræfinga í næsta mán-
uði. Einræðisstjórnin hefur alltaf
haldið því fram að markmiðið með
heræfingum landanna tveggja sé að
undirbúa innrás í Norður-Kóreu.
Bandaríkjastjórn frestaði eða dró úr
viðamestu heræfingunum með
Suður-Kóreu eftir fyrsta fund
Trumps með Kim í júní á síðasta ári
en umfangsminni æfingum hefur
verið haldið áfram, að sögn banda-
rískra embættismanna. Um 29.000
bandarískir hermenn eru í Suður-
Kóreu í samræmi við varnarsamning
ríkjanna eftir að Kóreustríðinu lauk
árið 1953.
Kim kvaðst vera ánægður með
hvernig tilraunin í fyrradag heppn-
aðist og sagði að ekki yrði auðvelt að
verjast eldflaugunum. Talið er að
Norður-Kóreumenn séu að þróa
skammdræga eldflaug sem geti flog-
ið lágt og breytt stefnu sinni til að
minnka líkurnar á því að hægt yrði
að skjóta hana niður, að sögn varnar-
málaráðuneytis Suður-Kóreu. Fyrr í
vikunni skoðaði Kim einnig nýja
gerð kafbáta sem sumir sérfræðing-
ar telja að geti borið eldflaugar.
Gagnrýnir ekki Bandaríkin
Kim gagnrýndi ekki Bandaríkja-
stjórn í yfirlýsingu sinni um heræf-
ingarnar og stjórn hans hefur forð-
ast gagnrýni á Bandaríkin að
undanförnu í von um að framhald
verði á viðræðunum við Trump.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hvöttu
einræðisstjórnina til að hætta eld-
flaugatilraununum og sagði að land-
inu stafaði hætta af þeim. Trump og
utanríkisráðherra hans, Mike Pom-
peo, gerðu hins vegar lítið úr þýð-
ingu tilraunanna. Pompeo sagði að
markmiðið með þeim væri aðeins að
styrkja samningsstöðu Norður-
Kóreumanna í komandi viðræðum.
Bandaríkjastjórn vill halda við-
ræðunum áfram þar sem eldflauga-
tilraunirnar í fyrradag eru ekki tald-
ar bein ógn við meginland Banda-
ríkjanna. „Norður-Kóreumenn
þyrftu að sprengja kjarnaodd á Tim-
es Square til að koma í veg fyrir að
Trump reyni að ná þessum samn-
ingi,“ hefur The Wall Street Journal
eftir Daniel Sneider, sérfræðingi í
öryggismálum Asíu við Stanford-há-
skóla.
Treysta ekki Bandaríkjunum
Fréttaskýrandi BBC segir að
markmiðið með eldflaugatilraunun-
um kunni að vera að reka fleyg á
milli stjórnvalda í Washington og
Seoul. Stjórn Suður-Kóreu hafi þeg-
ar hvatt til þess að refsiaðgerðir
gegn Norður-Kóreu verði mildaðar
en stjórn Trumps hefur hafnað því
og sagt að fyrst verði Norður-Kóreu-
menn að fallast á að eyða kjarna-
vopnum sínum.
Sérfræðingar í málefnum Norður-
Kóreu telja að vonirnar sem Trump
hefur bundið við fundina með Kim
séu óraunhæfar og beri keim af ósk-
hyggju. „Norður-Kóreustjórn getur
ekki látið vopn sín af hendi og beðið
síðan eftir því að Bandaríkjastjórn
aflétti refsiaðgerðum,“ hefur The
Wall Street Journal eftir Kim Joon-
hyung, prófessor í alþjóðasamskipt-
um í Suður-Kóreu. „Það væri aðeins
mögulegt ef Norður-Kóreumenn
bæru fullt traust til Bandaríkja-
manna. Það gera þeir ekki, þess
vegna getur Norður-Kóreustjórn
ekki beðið lengi.“
Eflir enn kjarnorkuherafla sinn
Harðstjórinn Kim Jong-un einræðisherra horfir með sjónauka á skammdræga eldflaug sem skotið var á loft í Norður-Kóreu í tilraunaskyni í fyrradag.
AFP
Norður-Kóreumenn skjóta eldflaugum í tilraunaskyni
SEOUL
Busan
Wonsan
PJONGJANG
SUÐUR-
KÓREA
JAPAN
KÍNA
RÚSSLAND
TÓKÝÓ
Japanshaf
(Austurhaf)
Tveimur
flaugum var
skotið í
fyrradag
„Þetta er ný tegund af
skotflaugum,“ sagði
Þjóðaröryggisstofnun
Suður-Kóreu
Önnur
flaug rúma
430 km
Hin
flaug rúma
690 km
Heimildir: Herráð Suður-Kóreu/Þjóðaröryggisráð Bandaríkjanna
Einræðisstjórnin í Norður-Kóreu talin halda áfram að þróa langdrægar eldflaugar og framleiða efni í
kjarnavopn Kann að hafa framleitt allt að tólf kjarnorkusprengjur frá fyrsta fundi Trumps með Kim
Mesti samdráttur frá
hungursneyðinni
» Talið er að efnahagssam-
drátturinn í Norður-Kóreu á
síðasta ári hafi verið sá mesti
frá árinu 1997 þegar hungurs-
neyð var í landinu og kostaði
hundruð þúsunda manna lífið.
» Seðlabanki Suður-Kóreu tel-
ur að verg landsframleiðsla
Norður-Kóreu hafi minnkað um
4,1% í fyrra og 3,5% árið áður.