Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 22

Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 ÍMannkynssögu ÓlafsHanssonar (3. útg.1964) stóðu þessi eft-irminnilegu orð um franska 19. aldar rithöfundinn Honoré de Balzac: „Hann var nautnamaður og eyðslusegg- ur og því alltaf skuldum vaf- inn. Varð hann að vera sískrif- andi til að geta reytt eitthvað í lánardrottna sína. Æsti hann sig upp með sterku kaffi og dó á besta aldri af ofþreytu og kaffieitrun“ (157). Mig lang- aði alltaf að kynnast þessum kaffisvelg. Nú hefur Sigurjón Björnsson, sálfræðingur og fyrrverandi prófessor, gefið mér kost á því með snilldarþýðingu á tveimur skáldsögum Balzacs, Evgeníu Grandet (2018) og Föður Goriot (2017). Og ekki nóg með það, því hann hefur einnig þýtt ævisögu Balzacs (2016) eftir sjálfan Stefan Zweig. Geri aðrir bet- ur á tíræðisaldri. Í Föður Goriot er heldur betur rýnt í sálardjúpin: „Það er eðli kvenna að sanna hið ómögulega með hjálp hins mögulega og gera staðreyndir að engu fyrir tilverknað hugboða“ (146). Síðsumarlesningin bíður ykkar, lesendur góðir! Ég hef áður getið um ör- stuttan málfarsþátt á kross- gátusíðu Morgunblaðsins. Maður tekur skammtinn inn eins og lýsi og flettir svo blaðinu til enda með sterku kaffi. Nýlega var þar minnst á orðið beiðni og sagt: „Beyging orðsins er svo tilbreytingarlaus að maður er nærri sofnaður þegar í þágufalli: beiðni, beiðni, beiðni, beiðni.“ Eignarfallið í eintölu er nefnilega beiðni (en ekki „beiðnar“). Eins og beiðni beygjast t.d. blindni, breytni og feimni (vegna feimni, vegna breytni sinnar). Kennari: Jæja, krakkar mínir. Hvernig er eignarfall eintölu af orðinu helgi (með lágstaf)? Nemandi: Auðvitað helgar, t.d. ég hlakka til helgarinnar. Kennari: Býður nokkkur betur? Nemandi (eftir langa þögn): Já, það getur líka verið helgi. Kennarinn greip tækifærið og benti á að beygingin réðist af merkingunni. Menn hlakka til helgarinnar. En ef um er að ræða helgi dýrlingsins eða t.d. landhelgina er eignarfallið helgi. Útfærsla landhelginnar varð að deiluefni. Glöggur nemandi: Af hverju segja menn þá landhelgisgæslan. Kennarinn lyftist í sætinu: S-ið í þessu orði er ekki eignarfalls-ess, heldur bandstafur. Það sama má sjá víða í samsettum orðum, t.d. leikfimiskennari. Eignarfall orðsins leikfimi er samt ekki leikfimis, heldur leikfimi. Það er auðvelt að misskilja orð, t.d. í fyrirsögnum, sbr. fyrirsögnina frægu: Skreið til Nígeríu. Kennari við virðulega stofnun fékk nemendum sínum ritgerðarverkefnið: Hvað er sagt í bænum? Hann var orðinn þyrstur í slúðursögur og hafði víst nokkrar góðar upp úr krafsinu. En erlendur skipti- nemi í hópnum skrifaði um það sem guðhræddir menn færu með í bænum sínum fyrir svefninn. Gildi lista var ritgerðarefni til stúdentsprófs við sama skóla. Skarpur raungreinanemandi skrifaði innblásna ritgerð um hve mikilvægt það væri að gera minnislista áður en ráðist væri í hvers kyns verkefni. Hann fékk góða einkunn. Að sanna hið ómögulega Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Beygingar „Beyging orðsins beiðni er svo tilbreytingarlaus að maður er nærri sofn- aður þegar í þágufalli:“ Það er margfengin reynsla af því að deilur ámilli pólitískra samherja, þ.e. innan flokka,geta orðið persónulegri og illskeyttari en átökog barátta á milli pólitískra andstæðinga. Þetta gerðist þegar Alþýðuflokkurinn klofnaði á fjórða tug síðustu aldar og vinstri armur hans gekk til samstarfs við Kommúnistaflokk Íslands um stofnun Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokks. Hið sama gerðist þegar ágreiningur kom upp innan Framsókn- arflokksins nokkrum árum áður milli Jónasar Jóns- sonar frá Hriflu og yngri manna sem hann hafði hafið til vegs. Þetta gerðist líka þegar aftur varð klofningur í Alþýðuflokki á sjötta tug síðustu aldar og Alþýðu- bandalag varð til með sameiningu Sósíalistaflokksins og þess vinstri arms Alþýðuflokks sem þá var orðinn til. Ekki er fráleitt að halda því fram að enn verði vart eftirmála af samstarfi Alþýðubandalagsins og fyrrum félaga úr Möðruvallahreyfingunni. Í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar mátti finna í flokksfélögum sjálfstæðismanna í Reykjavík hörð átök milli tveggja fylkinga, þeirra sem fylgdu Bjarna heitnum Benediktssyni og nánustu samstarfsmönnum hans að málum og hinna sem skipuðu sér í fylkingu með Gunnari Thoroddsen. Í nokkur ár voru á hverjum aðalfundi þessara fé- laga átök um yfirráð yfir stjórnum þeirra. Og kannski má segja að þau hafi blossað upp á ný í þeim miklu átökum sem stóðu innan Sjálfstæðisflokks- ins á áttunda áratug síðustu aldar og fram í byrjun þess níunda. Það sem einkenndi þessi innanhúsátök í öllum flokk- um var illt umtal um þá sem fram að þeim tíma höfðu verið samherjar. Í átökunum sem urðu innan Sjálf- stæðisflokksins fyrir hálfri öld komu upp stífar kröfur um brottrekstur manna úr flokknum. Það var eins og allt umburðarlyndi gagnvart skoðunum annarra hyrfi eins og dögg fyrir sólu. Raunar var lítið umburðarlyndi almennt fyrir skoð- unum annarra hvort sem var innan flokka eða milli flokka á þeim árum. Sá skortur á umburðarlyndi birt- ist þeim sem störfuðu á ritstjórn Morgunblaðsins á þann veg að það var nánast föst regla að einhverjir sjálfstæðismenn hringdu í ritstjóra blaðsins og spurðu hvernig þeir gætu leyft sér að birta greinar eftir póli- tíska andstæðinga Sjálfstæðisflokksins í blaðinu. Svar- ið sem þeir fengu var að samkvæmt stjórnarskrá Ís- lands væri skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi í landinu og hvort það væri ekki rétt skilið að það ætti líka við inn- an Sjálfstæðisflokksins. Á þeim árum voru engir samskiptamiðlar af því tagi sem nú eru til staðar og þess vegna höfðu ritstjórnir blaða hamlandi áhrif á að beinar ærumeiðingar kæm- ust á prent. En þrátt fyrir illskeytt persónuleg átök innan flokka tókst mönnum þó á stundum að sýna betri hliðar á mannlegum samskiptum. Dæmi um það er tilgreint í bók minni Sjálfstæðisflokkurinn – átök og uppgjör sem út kom hjá Veröld haustið 2012 og fjallar um þau harkalegu átök sem stóðu yfir innan Sjálfstæðisflokks- ins í áratug og náðu hámarki með stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsens snemma árs 1980. Þar segir (bls. 180): „Morgunblaðið rak harða stjórnarandstöðu og þorri þingmanna Sjálfstæðisflokksins sömuleiðis á Alþingi. En jafnframt var lögð áherzla á það af hálfu beggja arma flokksins að halda talsambandi. Á það reyndi í fyrsta sinn að ráði í desember þetta ár þegar Gunnar Thoroddsen varð sjötugur. Við fórum saman í þetta af- mæli, við Geir Hallgrímsson, Matt- hías Johannessen og Björn Bjarna- son. Afmælisbarnið og Vala kona hans tóku okkur vel á heimili sínu við Víðimel þótt þung orð hefðu fallið í garð Gunnars vegna stjórn- armyndunar hans af hálfu okkar allra. Geir Hallgrímsson flutti ræðu til heiðurs afmælisbarninu. Sjaldan hef ég dáðst jafn mikið að þeirri reisn sem Geir bar með sér og þá stund.“ Að þessu er vikið hér og nú vegna þess að sjá má merki þess að skoðanaskipti innan Sjálfstæðisflokksins vegna orkupakka 3 séu að fara úr böndum og gam- alkunnug persónuleg illindi að skjóta upp kollinum á ný. Menn skipa sér í flokka fyrst og fremst vegna af- stöðu til grundvallarmála. Í öllum flokkum kemur á einhverjum tímapunkti upp skoðanaágreiningur um einstök mál. Þannig hefur það alltaf verið og þannig verður það alltaf. Að sumu leyti má segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi á 90 árum verið einn helzti vettvangur fyrir málamiðl- anir um samfélagsmál í okkar landi vegna þess að inn- an hans hafa safnast saman ólíkir skoðana- og hags- munahópar. Og ætla mætti að innan þess flokks hafi orðið til ákveðin lífsreynsla og þroski sem eigi að auð- velda flokknum að taka á ágreiningsmálum sem upp koma og orkupakkinn er nú skýrt dæmi um. Aðferðin til þess er að halda talsambandi en ekki að slíta því. Aðferðin til þess er að tala saman en ekki að formæla gömlum vinum og samherjum og senda þeim tóninn á samfélagsmiðlum. Það eru einhvers konar breytingar að verða í stjórn- málabaráttunni, bæði hér og annars staðar í okkar heimshluta. Það er ekki endilega víst að þær séu allar til góðs eins og sjá hefur mátt um skeið í Bandaríkj- unum Okkar litla samfélag þolir slík umbrot illa. Sjötugsafmæli Gunnars Thoroddsens var dæmi um hið gagnstæða. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Deilur milli pólitískra sam- herja geta orðið illskeyttar Áfyrra helmingi ársins 2019 fluttiég átta fyrirlestra opinberlega, sex þeirra erlendis. Hinn fyrsti þeirra var á ráðstefnu í Gdansk í Póllandi 22. mars um „bláa hagkerfið“, en Anna Fotyga, þingmaður á Evrópuþinginu og fyrrverandi utanríkisráðherra Pól- lands, boðaði til ráðstefnunnar. Ég lýsti þar stuttlega kvótakerfinu ís- lenska, sem ég hef skrifað um tvær bækur á ensku, Overfishing: The Ice- landic Solution, sem Institute of Economic Affairs gaf út í Lundúnum 2000, og The Icelandic fisheries: Sus- tainable and Profitable, sem Háskóla- útgáfan gaf út í Reykjavík 2015. Eru bæði ritin aðgengileg ókeypis á netinu. Eftir því sem árin hafa liðið hef ég áttað mig betur á tveimur aðalatriðum kvótakerfisins og reyndi ég að koma þeim til skila í þessum fyrirlestri. Annað er, hvaða munur er á ókeypis úthlutun seljanlegra aflaheimilda í upphafi eins og þeirri, sem fram- kvæmd var á Íslandi í áföngum 1979- 1990, og opinberum leigumarkaði með aflaheimildir, eins og sumir hagfræð- ingar börðust fyrir á sínum tíma. Munurinn er, að fyrri aðferðin er hag- fræðilega réttari, því að hún er Pa- reto-hagkvæm, sem kallað er. Breyt- ing er Pareto-hagkvæm, ef enginn tapar og allir eða að minnsta kosti sumir græða á henni. Við ókeypis út- hlutun græddi ríkið á hagkvæmari fiskveiðum. Þeir, sem héldu í afla- heimildir sínar og keyptu nýjar, græddu. Þeir, sem seldu aflaheimildir og hættu veiðum, græddu líka. En hefði fiskimiðunum verið lokað og aflaheimildir verið leigðar hæstbjóð- endum, þá hefði ríkið að vísu grætt leigutekjurnar. Þeir, sem hefðu haft fjárhagslegt bolmagn til að leigja aflaheimildir, hefðu hvorki grætt né tapað, því að þeir hefðu notað það fé í að leigja aflaheimildir, sem þeir sóuðu áður í offjárfestingar. En þeir, sem hefðu ekki haft bolmagn til að leigja aflaheimildir, hefðu tapað, því að allar þeirra fjárfestingar hefðu í einni svipan orðið verðlausar. Hitt aðalatriðið er, að enginn verð- mætur réttur var tekinn af öðrum, þegar fiskimiðunum var lokað. Eini rétturinn, sem aðrir en kvótahafar voru þá sviptir, var rétturinn til að gera út á núlli, en fiskihagfræðin kennir okkur, að sú verður nið- urstaðan, ef fiskimiðin eru opin öllum, því að þá aukast fiskveiðar að því marki, að kostnaður verður jafnmikill ávinningi. Þessi réttur er því eðli málsins samkvæmt verðlaus. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Bláa hagkerfið í Gdansk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.