Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 28

Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 ✝ Ragnar Sig-urðsson fæddist 16. júlí 1929 á Spít- alastíg 8 í Reykja- vík. Hann lést 17. júlí 2019 á sjúkra- húsinu í Keflavík. Foreldrar hans voru Sigurður Guð- mundsson (1900- 1989) og Rannveig Ingveldur Runólfs- dóttir (1897-1968). Þau bjuggu lengst af í Reykjavík, hann ritstjóri kristilegra blaða og hún rak m.a. prjónastofu. Bróðir Ragnars er Ingólfur, f. 1926, og urðu þeir oft samferða vítt og breitt um Ísland og reynd- ar fleiri lönd. Fóstursystir þeirra var Selma S. Gunnarsdóttir (1936-2006). Föðurforeldrar Ragnars voru Guðmundur Eyj- ólfsson landpóstur (1828-1909) og bústýra hans Sunneva Sigurð- ardóttir (1860-1914), Gríms- stöðum í Meðallandi. Móðurfor- eldrar Ragnars voru Runólfur Bjarnason smáskammtalæknir (1863-1949) og Rannveig Bjarna- dóttir búkona (1857-1949) í Hólmi í Landbroti. Ragnar ólst upp í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Hann lærði snemma að tefla og fór upp úr fermingu að aka stórum bifreið- um. Ungur fór hann svo að vinna við akstur á Keflavíkurflugvelli og í Keflavík. Ók hann flestum tegundum fólksflutninga- Júlía Sóley, f. 2001, Mikael Jökull, f. 2003, og Hrafnhildur Ásta, f. 2010. 6) Rannveig Sigríður, f. 1976, maki Sigurður Þorsteins- son, f. 1976. Synir þeirra: Ragnar Snær, f. 2001, og Andri Steinn, f. 2004. 7) Ragna Ingveldur, f. 1978. Barnsfaðir: Róbert Arnar Reyn- isson, f. 1976. Sonur þeirra: Daní- el Aron, f. 1996, sambýliskona Inga Karen Einarsdóttir, f. 1992, dóttir þeirra Bríet Lára, f. 2017. Annar barnsfaðir Rögnu: Guð- björn Sigurjónsson, f. 1972. Dótt- ir þeirra: Sandra Rós, f. 2001, kærasti Snævar Orri Davíðsson, f. 2001. 8) Guðmundur Bjarni, f. 1981. 9) María Bjarnveig, f. 1983. Barnsfaðir hennar: Stefán Hjalta- lín Kristinsson, f. 1984. Sonur þeirra: Kristinn Ingi, f. 2002. Fyrrverandi maki Maríu: Valur Björn Önnuson, f. 1969. Sonur þeirra: Eyvar Örn Línberg, f. 2007. 10) Ómar, f. 1985. 11) Fóst- urdóttir: Sigríður Kolbrún Viggósdóttir, f. 1967, maki Jón Gíslason, f. 1960. Börn þeirra: Bryndís Eva, f. 1984, unnusti hennar Hans Wium Magnússon, f. 1976, börn þeirra: Sigríður Júlía, f. 2004, Hafsteinn Máni, f. 2005, og Glódís Sara, f. 2017, Jóna Ey- dís, f. 1989, maki Davíð Reim- arsson, f. 1991, synir þeirra Benjamín Nökkvi, f. 2014, og Jón Böðvar, f. 2018, og Böðvar Guð- björn, f. 1992, unnusta Íris Krist- rún Kristmundsdóttir, f. 1991, sonur þeirra Henrik Jökull, f. 2017. Ragnar var jarðsettur í kyrr- þey í Hvalsneskirkjugarði 26. júlí 2019. bifreiða, stórum vinnuvélum, var ökukennari, starf- rækti í Reykjavík bílaþjónustu með að- stöðu og verkfærum fyrir bíleigendur til að dytta að bílum sínum, var kaupmaður og flutti inn bílamálningu og skyldar vörur. Síð- ustu árin skar hann og slípaði steina svo úr urðu skartgripir. Hann bjó lengst af á Suðurnesjum, síðast á Guðlaugs- stöðum í Garði. Fyrri kona Ragnars var Guð- laug Halsör Sigvardsdóttir, f. 1931, þau skildu. Börn Ragnars og Guðlaugar eru: 1) Sigurður, f. 1951. 2) Kristín Linda, f. 1962, maki Sveinbjörn Gizurarson, f. 1962. Börn þeirra: Davíð Örn, f. 1984, maki Fjóla Dögg Halldórs- dóttir, f. 1984, börn þeirra: Sal- ómon Blær, f. 2012, Elísa Björt, f. 2017, og Annika Bára, f. 2019, Benjamín Ragnar, f. 1987, og Guðlaug María, f. 1994, kærasti Birkir Ásgeirsson, f. 1989. 3) Guðný Ásta, f. 1967, maki Guðjón Bragason, f. 1966. Dóttir þeirra: Sunneva Kristín, f. 2009. Seinni kona Ragnars var Júlía Hrefna Viggósdóttir, f. 1947. Börn Ragnars og Hrefnu: 4) Drengur, andvana fæddur 1969. 5) Ólöf Vigdís, f. 1975, maki Gísli Helgason, f. 1971. Börn þeirra: Elsku besti pabbi minn. Hinn 17. júlí 2019 brotnaði mitt hjarta í þúsund mola þegar ég missti þig. Á barnslegan hátt vildi ég að þú yrðir eilífur og ávallt hjá mér. En þú fékkst þó mörg ár enda orðinn 90 ára þegar þú kvaddir þennan heim og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig svona lengi. Þú varst mín fyrirmynd – svo hörkuduglegur, þúsundþjalasmið- ur og það var ekkert sem mér fannst þú ekki geta gert. Ég gat alltaf treyst á þig í einu og öllu. Þú varst sannur vinur vina þinna og þú varst sannur vinur minn. Þú varst yndislegur bróðir bróður þíns sem og hann enda ferðuðust þið mjög mikið saman og áttuð mjög náið og einstakt samband. Þú varst yndislegur faðir sem og afi og langafi. Börnin mín áttu allt- af gott bakland hjá þér. Svo varstu líka skáksnillingur sem ég gat bara ekki með nokkru móti unnið og gafst mér líka bók sem heitir „Svona á ekki að tefla“ enda alltaf með húmorinn í lagi. Þetta er bók sem ég mun stúdera vel áður en við hittumst aftur og klárum okkar skák. Þú unnir landinu okkar sem þú þekktir betur en flestir og ef ég villtist á Íslandi var nóg að hringja og heyra í þér því þú vissir alltaf hvar ég væri út frá lýsingum mín- um einum saman. Þú lifðir fyrir að ferðast hérlendis sem erlendis. Þú varst húmoristi út í eitt og umtal- aður fyrir það á sjúkrahúsinu enda leiddist engum hjúkrunar- fræðingi, sjúkraliða eða öðrum í návist þinni. Sem börn söfnuðum við ótal ís- lenskum steinum sem þú nýttir vel í seinni tíð og smíðaðir svo fjöldann allan af fallegum háls- festum úr þeim steinum enda var safnið orðið stórt eftir svo mörg ferðalög. Þú elskaðir eiginkonu þína mjög mikið, sem mér þótti alltaf svo krúttlegt, og varst mikill dýra- vinur eins og ég. Þú hafðir ótelj- andi sögur að segja enda upplifað tímana tvenna. Innlifunin var svo mögnuð að það var eins og ég hefði sjálf upplifað atburðina í sög- um þínum – svo magnaðar voru þær. Ég elskaði að hlusta á þær og mun sakna þeirra. Alltaf varstu svo hjálpsamur og reiðubúinn að hjálpa öllum sem þú taldir að þyrftu á því að halda. Ég verð ávallt þakklát fyrir þær frá- bæru stundir sem ég fékk með þér sem og að hafa fengið að eiga þig sem föður minn. En þar til við hitt- umst á ný vil ég segja þér að ég elska þig, pabbi minn. Hvíldu í friði. Þín dóttir og vinur, Ragna Ingveldur Ragnarsdóttir. Elskulegur faðir minn Ragnar Sigurðsson fæddist 16. júlí 1929 og fékk Sigurður afi minn hann í afmælisgjöf. Pabbi minn lést 17. júlí sl. þá nýorðinn 90 ára gamall. Hann leit ávallt á aldur sem af- stæðan enda síungur í anda alla tíð. Margar minningar vakna þeg- ar ég hugsa til föður míns og birt- ast minningabrotin hvert af öðru. Ég hef ávallt verið mikil pabbas- telpa, skírð í höfuðið á ömmu minni Rannveigu móður hans og Sigurði afa. Margt kenndi hann mér og var til staðar í þeim gíf- urlega margvíslegu aðstæðum sem lífið hefur upp á að bjóða. Allt frá því að hughreysta yfir fráfalli afa í að fara með mér í mína fyrstu flugferð og átti hann oft gullkorn í pokanum handa Veigu sinni (eins og hann kallaði mig). Í gegnum ástarsorg tjáði hann mér að það væru sko nógu margir fiskar í sjónum og líkt og oft áður hafði hann rétt fyrir sér. Hann gaf sér góðan tíma til að kenna okkur systkinum að spila ýmis spil, tefla og keyra bíl enda með eindæmum þolinmóður. Honum þótti fátt skemmtilegra en að keyra, sama hvort það voru ferðalög um landið eða hin ýmsu aksturshlutverk sem hægt var að reiða sig á. Hann þró- aði með sér áhuga á íslenskum steinum og safnaði þeim. Á hans seinni árum nýtti hann steinana til að búa til fallega skartgripi og mátti sjá ósvikna gleði þegar hann gaf drengjum mínum hálsmen sem hann hafði sjálfur hannað. Hann var laghentur og vandvirk- ur þúsundþjalasmiður og ávallt viljugur til að rétta hjálparhönd. Hann naut sín í sögumannshlut- verkinu og sagði sögur af sjálfum sér og öðrum af góðri innlifun þar sem hvert smáatriði var rifjað upp og krufið. Hann hafði einstakan húmor sem jókst með hækkandi aldri. Þegar minnið var farið að stríða honum bar enn frekar á húmornum, sérstaklega þegar hann mundi ekki réttu svörin, þá var hann snillingur í að snúa út úr með glettni. Elskulegur faðir minn hefur nú sagt skilið við líf sitt á jörðu. Aldr- ei er maður tilbúinn að kveðja þann sem er okkur kær þegar dauðinn knýr að dyrum. Pabbi var lánsamur og átti gæfuríkt líf að baki en erfitt er að lýsa í orðum hversu mikils virði hann var mér og drengjum mínum. Elsku pabbi, þó að ég hafi ekki verið hjá þér daginn sem þú kvaddir þennan heim var ég svo sannarlega með huga minn og hjarta hjá þér. Ég er óendanlega þakklát fyrir þann tíma sem Guð gaf okkur saman og allar stundir okkar á spítalanum. Þær stundir eru mér ómetanlegar og vildi ég ávallt kveðja þig vel, hrædd um að hver kveðjustund væri sú hinsta sem varð raunin þegar ég kvaddi þig áður en ég fór til Svíþjóðar. Ég sit eftir með fjársjóð minninga og viskumola sem ég mun varðveita í hjarta mínu út frá samvistum okk- ar saman. Þessar minningar munu fylgja mér út lífið og veita mér hlýju og huggun þegar ég tekst á við lífið nú þegar þín nýtur ekki lengur við í persónu. Elsku pabbi minn, nú er komið að hinstu kveðjustund og á ég erf- itt með að lýsa hversu sárt ég sakna þín. Ég elska þig óendan- lega mikið og takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og dreng- ina mína. Gong gong, elsku pabbi. Þín dóttir, Rannveig Sigríður. Elsku pabbi okkar er fallinn frá og við kveðjum hann með sorg í hjörtum. Við erum þakklát fyrir að hafa átt hann í lífi okkar, fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman og minningarnar sem honum tengjast. Pabbi var dug- legur maður og atorkusamur, var lengi með sjálfstæðan rekstur og vann oft langan vinnudag. Hann bar virðingu fyrir peningum, enda þurfti að fæða marga munna. Við minnumst viðskiptaferða hans til Englands en þá keypti hann spennandi gjafir fyrir börnin og Mackintosh’s. Þá var glatt á hjalla. Eftir að fjölskyldan flutti í Sand- gerði og pabbi dró úr vinnu nýtti hann helgarnar í að tefla, spila vist, kasínu og póker við börnin. Í skák lagði hann áherslu á þrennt: milli- leiki, leppstöður og fórnir. „Gott væri að hugsa 8 leiki fram í tím- ann,“ sagði hann og glotti. Pabbi var mikill húmoristi og fylgdi húmorinn honum alveg fram að síðustu stundu. Hann var ákaflega stoltur af hópnum sínum og hafði gaman af því að leiðrétta þá sem töldu börnin vera barna- börn hans. Pabbi hafði unun af því að ferðast um Ísland. Fjölskyldan ferðaðist um landið á stórri Scania-rútu sem þau mamma inn- réttuðu. Við börnin fengum að mála rútuna fjólubláa og skreyta með Andrési önd og félögum. Margar skemmtilegar minningar tengjast þessum ferðum. Á Aust- urlandi var t.d. stoppað við ár og skriður þar sem steinar voru skoð- aðir og sýndi pabbi ómælda þol- inmæði við að skýra muninn á líp- aríti og jaspis fyrir börnunum. Pabbi átti gott steinasafn og síð- ustu æviárin dundaði hann sér við að saga niður steina og slípa í háls- men og eyrnalokka. Pabbi ferðað- ist líka mikið með Ingólfi bróður sínum enda báðir með ólæknandi bíladellu. Á tímabili mátti varla vígja nýjan veg, brú eða jarðgöng á landinu án þess að þeir bræður væru með þeim fyrstu til að „skoða aðstæður“. Ekki má gleyma draumaferð þeirra bræðra til Kúbu 2010, þá báðir komnir yfir áttrætt. Þar gafst þeim tækifæri til að skoða alla gömlu bílana, fá sér vindla og drekka romm úr kókóshnetum, sem var að þeirra sögn hinn ljúf- fengasti drykkur. Ef ferð var fyrirhuguð var ávallt gott að hringja í pabba og spyrja hann út í vegi, ár o.fl. því hann var alltaf með staðhætti á hreinu. Aldrei komum við að tóm- um kofunum ef bíllinn bilaði og við þurftum aðstoð. Pabbi var mikill sögumaður og sagði okkur stoltur sögur af for- feðrunum. Hann skannaði dag- bækur frá pabba sínum og afa og allar ljósmyndir sem hann komst í. Hann hafði mikinn áhuga á tækni og tækjum og keypti gjarn- an nýjustu græjurnar. Pabbi var greindur og góður karl sem gaf af sér. Hann hafði stórt hjarta og áttu mamma, börn- in og barnabörnin þar sinn sess. Hann var vanur að segja við okk- ur: „Þetta er þitt líf og það er þitt að lifa því“ en óhætt er að segja að pabbi hafi sjálfur fylgt þessum einkunnarorðum sínum og farið á móti straumnum. Stuðningurinn og umhyggjan sem mamma sýndi pabba, sérstaklega síðustu árin eftir að hann varð lasburða, átti óneitanlega þátt í langlífi og vellíð- an pabba. Með ást og þakklæti. Kolbrún, Ólöf, Rannveig, Ragna, Guðmundur, María og Ómar. Það er mikill spenningur og smá kvíði í maganum þegar kær- astan býður manni með að hitta föður sinn. Þannig var það alla- vega hjá mér í fyrsta skipti sem mér var boðið að koma með í heimsókn til pabba kærustu minn- ar. Þessi heimsókn er mér minn- isstæð, því við þurftum að klofa yf- ir sofandi krakka sem lágu hér og þar á gólfinu í stofunni. Okkar fyrstu kynni voru skemmtileg og síðar komst ég að raun um fjölda hæfileika sem Ragnar, tengdafað- ir minn, bjó yfir. Hann hafði mikið dálæti á bílum og öllu sem viðkom slíkum farartækjum en ég gerði mér ekki grein fyrir hve vel hann þekkti þessi tryllitæki fyrr en við hjónin eignuðumst okkar fyrsta bíl, sem síðan bilaði. Við bjuggum þá í Danmörku og mér fannst eðli- legast að koma honum á verk- stæði, en konan bað mig að bíða því hún ætlaði fyrst að hringja í föður sinn. Þetta var löngu fyrir tíma snjalltækja! Síðan heyrði ég ótrúlegt samtal þeirra feðgina, þar sem konan mín apaði eftir (ó)- hljóðunum í bílnum okkar, í gegn- um símann. Síðan lagði hún á og sagði mér hvað væri að bílnum. Það stóð heima! Ragnar átti þá gjöf að geta sagt skemmtilega frá af sjálfum sér og þeim ævintýrum sem hann hafði lent í. Hann var einnig slunginn skákmaður. Hann kenndi sonum okkar skák og skemmti sér mikið við að tefla við barnabörnin. Hann sagði okkur eitt sinn frá því að það hefði átt að vísa honum heim úr barnaskólanum vegna lélegrar mætingar, en í stað þess að mæta í tíma skemmti hann sér við að horfa á fullorðna menn tefla. Skólastjórinn trúði tæpast þessari afsökun og bauð snáðanum að tefla við sig. Ragnar mátaði skóla- stjórann! Það var gaman að horfa á afabörnin tefla við tengdaföður minn, en hann kenndi þeim einnig póker, að aka bíl og ýmislegt fleira. Á kveðjustundu er gaman að rifja upp sögurnar og minnast góðs tíma sem við áttum saman. Við náðum að ferðast aðeins um Suðurlandið í samfloti við hann og fjölskylduna, og hann þekkti hverja beygju og brekku sem mætti okkur. Hann hafði farið hringveginn allt að átta sinnum á ári í fjölda ára, oftast með eldri bróður sínum, ásamt fjölda ann- arra ferða með fjölskylduna og vegna vinnu. Þegar hann þurfti að prófa nýja bíla, þá var ekkert bet- ur fallið til þess en að renna einn hring eftir þjóðvegi einum með stóra bróður sínum. Ef ný göng voru opnuð, þá fóru bræðurnir gjarnan strax til að taka þau út. Þar sem aðrir sjá urð og grjót gat tengdafaðir minn séð faldar gersemar. Þetta var einn af hans hæfileikum. Hann safnaði ótal steinum, og þegar hann opnaði þá birtust litfagrir gimsteinar. Síð- ustu árin naut hann þess að opna og slípa steina sem hann hafði safnað á langri ævi og búa til úr þeim hálsmen eða aðra skraut- muni. Tengdapabba verður sárt sakn- að. Ég votta eiginkonu hans, Hrefnu, og börnum hans, barna- börnum og barnabarnabörnum mína innilegustu samúð. Megi al- góður Guð blessa ykkur og minn- ingu Ragnars. Sveinbjörn Gizurarson. Elsku Raggi afi okkar kvaddi þennan heim 17. júlí síðastliðinn, degi eftir að hafa náð 90 ára aldri. Raggi afi var merkur maður, mjög skarpur, iðinn og aldrei langt í grínið hjá honum. Síðustu dagana gantaðist hann alveg jafn mikið og áratugina á undan. Raggi afi kenndi mörgum af okkur afkom- endunum að tefla, iðulega með þeirri aðferð að vinna nánast hverja einustu skák. Sú aðferð jók þó einungis áhugann því það var ekki sárt að tapa fyrir honum, enda passaði hann sig á því að kenna okkur eitthvað nýtt í hverj- um leik. Afi var alltaf mikill bílamaður og átti, að okkar mati, einn flott- asta bílinn á landinu. Þetta var rúta sem máluð hafði verið fjólublá, og var með andlitum ým- issa persóna úr Andabæ á hliðinni. Í þessari rútu voru ófá ferðalög farin og í einu þeirra tók afi upp á því að kenna okkur barnabörnun- um póker, sem var ekki leiðinlegt. Bílaþekking afa kom sér iðulega vel, ekki bara ef bílar létu illa, heldur líka þegar bílprófstímabilið tók við, því afi var góður ökukenn- ari í ofanálag. Hann tók okkur öll í æfingaakstur og kláraði að kenna Benjamín Ragnari í gegnum bíl- prófið sjálft sem ökukennarinn hans. Raggi afi var iðinn alla tíð og eftir að hann fór á eftirlaun sat hann ekki auðum höndum heldur smíðaði meðal annars pall í kring- um húsið og fékk sér heitan pott sem hann fór í á hverjum morgni. Hann slípaði líka steina og bjó til reglulega fallega skartgripi og hálsmen úr þeim. Hann var líka með lítið steinabeð þar sem voru margir steinar sem hann hafði fundið víða um landið og einnig keypt að utan. Guðlaug María fann eitt sinn nokkuð venjulegan stein í Veiðileysufirði og kom með hann til afa sem að sá að hægt væri að búa til fallegt skart úr honum. Hann tók því steininn og nokkrum dögum seinna var komið fallegt og dýrmætt hálsmen. Hann var mikill fjölskyldumað- ur og tók alltaf vel á móti okkur barnabörnunum og síðar barna- barnabörnum sínum. Hann náði t.a.m. einstaklega vel til dóttur- sonarsonar síns, en þeir áttu það sameiginlegt, um tíma, að vera tannlausir og með lítið hár á hausnum. Það vakti mikla kátínu. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til hans í sveitina, eins og hann sagði svo oft, og heyra hinar ýmsu sögur um það sem hann hafði brallað í gegnum árin, meðal annars smygl á áfengi, mat og ýmsu fleiru af herflugvellinum og bílaævintýrunum hans. Á Þor- láksmessu var svo alltaf skata sem afa fannst alltaf gaman að bjóða upp á. Þær eru margar góðu minning- arnar sem við eigum og þrátt fyrir sáran söknuð erum við þakklát fyrir þessar og ótal aðrar minn- ingar sem hjálpa manni að brosa í gegnum tárin. Megi Guð blessa þig og minn- ingu þína elsku Raggi afi okkar og vera með þeim sem syrgja. Davíð Örn, þinn nafni Benjamín Ragnar og Guðlaug María. Ragnar Sigurðsson Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.