Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 36

Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 50 ára Einar er fæddur á Blönduósi. Hann er stúdent 1989 frá MA, flutti þá til Reykjavíkur og hefur búið þar síð- an. Einar lærði heim- speki við HÍ og Háskól- ann í Genúa og stundaði nám í rekstri fjölmiðla við IESE í New York. Hann hefur í áratug verið aug- lýsingastjóri RÚV, var það áður hjá Stöð 2 og var líka markaðsstjóri Háskólabíós. Eiginkona: Linda Björk Sigurðardóttir kennari, f. 1973, ólst upp á Tálknafirði. Börn: Hafsteinn Jóhannsson, f. 2000, Aðalbjörg Helga Einarsdóttir, f. 2005, og Kolbeinn og Hlynur Einarssynir, f. 2007. Foreldrar: Vignir Einarsson yfirkennari, f. 1937, Aðalbjörg Ingvarsdóttir skóla- stjóri, f. 1939. Þau búa á Blönduósi. Einar Logi Vignisson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Af einhverri ástæðu ertu meira í sviðsljósinu en venjulega. Allt sem gerist í dag virðist á einhvern hátt hafa verið ákveðið fyrirfram. Passaðu vel upp á pen- ingana þína. 20. apríl - 20. maí  Naut Hugsanlegt er að þér verði falin auk- in ábyrgð á næstu vikum. Gefðu þér tíma og sæktu orku í umhverfi þitt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er alltaf niðurdrepandi þeg- ar traust þitt á einhverjum minnkar. Ein- hver sendir þér tóninn. Teldu upp að tíu áður en þú svarar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Komdu hugmyndum þínum á framfæri. Þú byrjaðir með tvær hendur tómar, mundu það, og fæddist ekki með silfurskeið í munni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Skilin milli jákvæðni og bjartsýni og óraunsærra væntinga eru ekki alltaf skörp. Þú hrósar sigri í einhverri keppni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag skaltu hugsa vel og vandlega um langtímamarkmið þín. Hvert stefnir þú í námi, vinnu eða einkalífi? Vertu ein- hverjum til trausts og halds. 23. sept. - 22. okt.  Vog Haltu fast utan um pyngjuna því ein- hver nákominn þér er farinn að gerast helst til þurftafrekur. Ferskir vindar blása um félagslífið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Leggðu þig fram við að hjálpa öðrum í dag. Reyndu að setja mál þitt fram með þeim hætti að enginn velkist í vafa um skoðanir þínar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það verður meira en nóg að gera næstu 24 tímana. Reyndu að létta af þér einhverjum verkefnum sem aðrir geta sinnt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert eitthvað þung/ur á brún núna svo kannski er best að þú sért ekk- ert að reka hornin í aðra svona rétt á meðan. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Í lífinu er mikilvægt að gæta jafnvægis. Maki þinn eða góður vinur mun hugsanlega bregða sér í hlutverk ráðgjafa. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ekki gefast upp þótt þig reki í strand. Gættu þess að falla ekki fyrir freistingum sem þú gætir iðrast síðar. Hugsaðu áður en þú talar. M arta Guðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 28.7. 1959 og ólst þar upp, fyrstu árin í Þingholtunum, en síðan í Vesturbænum. Hún hefur verið búsett í Skerjafirði frá 1989. Marta var í Melaskóla, Hagaskóla, lauk stúdentspróf frá MS og stund- aði nám í bókmenntafræði og stjórnmálafræði við HÍ. Á unglings- og námsárunum starfaði Marta m.a. hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó, var kokkur á sanddæluskipinu Perlunni og sinnti verkefnastjórn og prófarkalestri. Hún hóf kennslu við Hagaskólann í Reykjavík 1985 og kenndi við borg- arrekna og einkarekna skóla, síðast við Tjarnarskóla í Reykjavík 2006- 2010. Hún sinnti dagskrárgerð við Bylgjuna, starfaði við DV um skeið og hafði umsjón með þættinum Borgarlíf á ÍNN. Marta sat í stjórn Heimdallar 1979-80, var framkvæmdastjóri fé- lagsins, sat í stjórn Félags sjálf- stæðismanna í Nes- og Melahverfi frá 1996, var formaður þess 2004- 2007, formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 2007-2010, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 2007-2010 , er í flokksráði og situr í sveitarstjórn- arráði Sjálfstæðisflokksins. Marta var varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 2006-2017, er borgarfulltrúi frá 2017 og hefur set- ið í borgarráði, skipulagsráði, menningar- og ferðamálaráði, íþrótta- og tómstundaráði. Hún var formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar, situr í stjórn Faxaflóahafna, er for- maður íslenskuverðlauna unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík, situr í forsætisnefnd og er einn af varaforsetum borg- arstjórnar, situr í umhverfis- og heilbrigðisráði og skóla- og frí- stundaráði. Hún var formaður Alfa- deildar Delta - Kappa - Gamma, fé- lags kvenna í fræðslustörfum 2009-2011. „Borgarpólitíkin eru mínar ær og kýr: mótun þess umhverfis sem við eigum eftir að lifa og hrærast í, og sú þjónusta sem sveitarfélög leggja af mörkum. Auk þess lifum við á spennandi tímum tækinframfara sem munu bylta samgönguháttum í þéttbýli á næstu árum. Við þurfum að rýna fordómalaust í þessa nýju tækni og þá möguleika sem hún fær- ir okkur og umhverfinu í stað þess að byggja stefnumótun á slagorðum og fordómum.“ En hvað gerir Marta þegar hún er ekki að hugsa um borgarpólitík? „Þegar sólin skín um helgar göng- um við hjónin gjarnan um náttúru borgarlandsins og nágrennis. Þar má nefna fjörurnar í Skerjafirði, Foss- vogi og inn með Sundum, Viðey, Geldingatangann, Blikdal í Esjunni, Elliðaárdalinn, Heiðmörkina og Hólmsheiðina. Svo má endalaust ganga á Úlfarsfellið og Esjuna án þess að fá leið á því. Við Reykvík- ingar erum svo sannarlega með nátt- úruperlur í hlaðvarpanum.“ Fjölskylda Eiginmaður Mörtu er Kjartan Gunnar Kjartansson, f. 27.6. 1952, heimspekingur og blaðamaður. Hann er sonur Kjartans Magnússonar, f. 15.7. 1917, d. 3.12. 1998, kaupmanns í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar H. Vil- hjálmsdóttur, f. 3.11. 1922, d. 18.7. 2014, húsmóður og kennara. Börn Mörtu og Kjartans Gunnars eru Vilhjálmur Andri Kjartansson, f. 20.9. 1982, lögfræðingur, unnusta hans er Þórunn Anna Karlsdóttir heimilislæknir, og Steinunn Anna Kjartansdóttir, f. 1.3. 1984, tóm- stunda- og félagsmálafræðingur en maður hennar er Hallbjörn Magn- ússon leiðsögumaður og eru börn þeirra Vigdís Anna, f. 7.4. 2008, og Þórarinn f. 3.3. 2011. Dóttir Kjartans Gunnars frá því áður er Perla Ósk Kjartansdóttir, f. 6.4. 1979, landbún- aðarfræðingur en maður hennar er Mahran Shweiki og eru börn hennar Rúnar Lee Winship, f. 27.12. 2003, Monja Ríkey, f. 14.6. 2011, og Amína Rós, f. 22.7. 2016. Systkini Mörtu: Steinar Þór Guð- jónsson, f. 20.5. 1955, d. 6.7. 2014; en kona hans var Maria Jolanta Pol- anska, f. 4.4. 1959, d. 24.8. 2018; Hilmar Guðjónsson, f. 28.12. 1957 en kona hans er Agnes Henningsdóttir, og Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir, f. 28.7. 1959 en maður hennar var Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi – 60 ára Ljósmynd/Håkon Broder Lund Á göngu í Elliðaárdalnum Hjónin Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Gunnar Kjartansson ásamt Vigdísi og Þórarni barnabörnum og tíkinni Heklu. Góðra vina fundur Marta með Sallý vinkonu sinni en þær hafa ferðast mikið saman um landið í gegnum tíðina ásamt Vigdísi sem vakti áhuga þeirra á landi og sögu. Á myndinni eru auk þess Raggý tvíburasystir afmælisbarnsins og Ástríður dóttir Vigdísar með tveimur börnum sínum. Nýtur náttúrunnar í Reykjavík og nágrenni Skírð voru í Grundarfjarðarkirkju í gær tvíburasystkinin Brimar Þór Tómasson og Hafey María Tómasdóttir á trébrúðkaups- afmæli foreldra sinna, þeirra Tómasar Loga Hallgrímssonar flutningabílstjóra og Agnesar Ýrar Bergmanníu Kristbjörnsdóttur þroska- þjálfa. Agnes átti jafnframt afmæli, þannig að margföld hátíð var á bæ. Tvíburarnir fæddust 14. maí 2019 á Landspítalanum. Margvísleg tímamót Skírn, afmæli og brúðkaupsafmæli 50 ára Sigríður er fædd í Bandaríkjunum en elst upp í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún er stúdent úr MR frá 1989. Hún er cand. jur. frá HÍ 1995. Sigríð- ur hefur meðal annars starfað hjá Fangelsismálastofnun, dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og hjá emb- ætti lögreglustjórans á höfuðborg- arsvæðinu. Hún er nú héraðsdómari. Börn: Helena Birna Halldórsdóttir, f. 1997, Bjarni Geir Halldórsson, f. 1999. Eiginmaður: Valtýr Sigurðsson, lögmað- ur og fyrrverandi ríkissaksóknari, f. 1945. Foreldrar: Anna Þórunn Geirsdóttir hús- móðir, f. 1942 í Reykjavík, og Ning de Jesus matreiðslumaður, f. 1938 á Filipps- eyjum. Þau eru bæði búsett í Reykjavík. Sigríður J. Hjaltested Til hamingju með daginn ERTU AÐ FARA Í HESTAFERÐ ? Þú færð hestavörurnar hjá okkur ! Sendum um allt land www.fodur.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.