Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 38

Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 38
SPÁNN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Fljótlega eftir að ég sagði skilið við Valencia heyrði ég af áhuga frá Zaragoza og hlutirnir gerðust mjög hratt eftir það ef svo má segja,“ sagði Tryggvi Snær Hlinason, leik- maður Zaragoza og íslenska lands- liðsins í körfuknattleik, í samtali við Morgunblaðið á æfingu liðsins í Seljaskóla í vikunni. Zaragoza leikur í efstu deild Spánar þar sem Tryggvi hefur spil- að frá árinu 2017 en hann gekk til liðs við spænska liðið 9. júlí, tæpum mánuði eftir að hann rifti samningi sínum við Valencia. Hann lék sem lánsmaður með Obradorio í deildinni á síðasta tímabili. „Það þurfti ekki að selja mér það mikið að skrifa undir hjá félaginu. Ég hef kynnst þessu liði ágætlega eftir tíma minn á Spáni og ég þekki þjálfarann þarna ágætlega. Ég veit hvernig körfubolta hann vill spila og hver hugmyndafræði hans er þegar kemur að ungum leikmönnum og það var nóg fyrir mig. Þetta er hörkugott lið og það eru margir ung- ir leikmenn þarna í bland við eldri og reynslumikla spilara. Þetta er skemmtilega samsettur hópur, stemningin þarna er góð og orðspor félagsins er mjög gott. Jón Arnór Stefánsson lék þarna á árunum 2011 til ársins 2014 og hann talaði mjög vel um félagið þannig að fyrir mér var þetta aldrei spurning.“ Fleiri leikir en æfingar Það verður nóg að gera hjá Tryggva á næstu leiktíð en Zara- goza endaði í sjötta sæti efstu deild- ar Spánar á síðasta tímabili og fór alla leið í undanúrslit úrslitakeppn- innar. Þá mun liðið einnig leika í Meistaradeild Evrópu á næstu leik- tíð. „Liðið leikur í efstu deild Spánar og í Meistaradeildinni á næstu leik- tíð sem þýðir að við munum spila mjög marga leiki á tímabilinu sem er jákvætt fyrir mig. Ég þarf að ná mér í reynslu og spila meira og ég tel mig líka geta lært mikið af hinum stóru mönnunum í liðinu, þeim Fran Vázquez og Javier Justin. Vázquez er orðinn 36 ára gamall og hann get- ur eflaust kennt manni ýmislegt enda búinn að vera lengi í þessu. Ég er fenginn inn sem þriðji framherji liðsins og ég tel að ég muni fá gott tækifæri til þess að sýna mig og sanna. Það er stór plús að liðið sé í Evrópukeppni, það þýðir líka bara fleiri leikir og færri æfingar eins og menn segja, og það verður skemmti- legt að fá tækifæri til þess að takast á við það verkefni.“ Möguleikinn til staðar Íslenska landsliðið undirbýr sig nú fyrir leiki gegn Sviss og Portúgal í forkeppni EM 2021 en leikirnir fara fram í ágúst. Ákveðin endurnýj- un er í gangi hjá landsliðinu og er hópurinn nánast eingöngu skipaður ungum leikmönnum sem Tryggvi vonar að stígi skrefið einn daginn og haldi út í atvinnumennsku. „Það er mikil endurnýjun í gangi í landsliðinu núna og eins og staðan er í dag eru tveir af eldri kynslóðinni eftir í liðinu. Þessir eldri eru dugleg- ir að segja okkur til og kenna okkur á hlutina en annars er restin af liðinu bara ungir strákar. Ég vona innilega að þeir drífi sig sem flestir út í at- vinnumennsku og prófi að spila í hærri gæðaflokki því þeir geta það svo sannarlega. Landsliðið hefur allt sem til þarf til þess að verða frábært lið en það vantar kannski herslu- muninn upp á og þetta skref myndi ýta okkur yfir línuna.“ Vill fleiri lands- liðsmenn í at- vinnumennsku  Tryggvi Snær Hlinason sér fram á meiri spiltíma með liði Zaragoza Morgunblaðið/Hari Flutti Tryggvi Snær Hlinason landsliðsmiðherji færði sig um set á Spáni í sumar og leikur með Zaragoza á komandi keppnistímabili. 38 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 Inkasso-deild karla Grótta – Þór ............................................. 1:1 Arnar Þór Helgason 33. – Rick Ten Voorde 49. Staðan: Fjölnir 13 9 2 2 29:12 29 Þór 14 8 3 3 24:14 27 Grótta 14 7 5 2 28:19 26 Leiknir R. 14 8 0 6 25:21 24 Víkingur Ó. 14 6 4 4 15:11 22 Fram 14 6 2 6 20:22 20 Keflavík 14 5 4 5 18:17 19 Þróttur R. 14 5 3 6 27:19 18 Haukar 14 3 5 6 19:26 14 Afturelding 14 4 1 9 17:29 13 Njarðvík 14 3 1 10 15:27 10 Magni 13 2 4 7 14:34 10 Inkasso-deild kvenna Tindastóll – Haukar ................................ 0:1 Tara Björk Gunnarsdóttir 43. Staðan: FH 10 8 1 1 27:11 25 Þróttur R. 10 8 0 2 38:9 24 Tindastóll 10 6 0 4 27:20 18 Afturelding 10 5 1 4 13:13 16 Haukar 10 5 0 5 14:9 15 Augnablik 10 4 1 5 9:11 13 Grindavík 10 3 3 4 14:17 12 ÍA 10 3 2 5 10:12 11 Fjölnir 10 3 2 5 15:21 11 ÍR 10 0 0 10 3:47 0 2. deild kvenna Völsungur – Hamrarnir........................... 3:1 Staðan: Völsungur 7 6 1 0 15:7 19 Fjarð/Hött/Leikn. 9 5 1 3 28:10 16 Grótta 8 4 2 2 16:8 14 Sindri 8 4 0 4 13:19 12 Hamrarnir 9 3 1 5 10:13 10 Álftanes 8 3 0 5 18:16 9 Leiknir R. 7 0 1 6 2:29 1 Frakkland B-deild: Guingamp – Grenoble............................. 3:3  Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í leikmannahópi Grenoble. Pólland Górnik Zabrze – Zaglebie Lubin ........... 1:0  Adam Örn Arnarson var ekki í leik- mannahópi Górnik Zabrze. Danmörk Lyngby – SønderjyskE ........................... 0:3  Eggert Gunnþór Jónsson lék fyrstu 60 mínúturnar með SønderjyskE en Frederik Schram var varamarkvörður. Staðan: SønderjyskE 3 2 1 0 6:2 7 København 2 2 0 0 5:3 6 Midtjylland 2 2 0 0 3:1 6 Brøndby 2 1 1 0 5:2 4 OB 2 1 0 1 6:4 3 Nordsjælland 2 1 0 1 4:2 3 Horsens 2 1 0 1 3:3 3 Lyngby 3 1 0 2 3:7 3 Hobro 2 0 2 0 2:2 2 Randers 2 0 1 1 3:4 1 AGF 2 0 1 1 2:3 1 Esbjerg 2 0 1 1 1:2 1 AaB 2 0 1 1 1:3 1 Silkeborg 2 0 0 2 0:6 0 B-deild: Viborg – Roskilde.................................... 3:0  Ingvar Jónsson var ekki í leikmannahópi Viborg. Svíþjóð Kristianstad – Vittsjö.............................. 0:3  Sif Atladóttir og Svava Rós Guðmunds- dóttir léku allan leikinn með Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. Växjö – Limhamn Bunkeflo ................... 3:1  Andrea Thorisson kom inn á hjá LB á 63. mínútu. Staðan: Gautaborg 18 stig, Rosengård 17, Vittsjö 17, Örebro 16, Linköping 14, Kristianstad 14, Piteå 14, Djurgården 9, Eskilstuna 8, Våxjö 8, Limhamn Bunkeflo 4, Kungsbacka 1. KNATTSPYRNA HANDBOLTI Ólympíuhátíð æskunnar U17 ára karlar í Bakú: Keppni um sæti 5-8: Aserbaídsjan – Ísland .......................... 11:48 Serbía – Slóvenía .................................. 22:24  Ísland leikur í dag um fimmta sætið gegn Slóveníu. EM U18 karla B-deild í Rúmeníu: C-riðill: Ísland – Bosnía ..................................... 57:84 Lúxemborg – Tékkland ..................... 33:117 Noregur – Ísrael................................... 46:93  Ísland mætir Tékklandi í 2. umferð í dag og Ísrael í 3. umferð á morgun. KÖRFUBOLTI Haukar fóru í heimsókn til Tinda- stóls á Sauðárkróksvöllinn og fóru með 1:0-sigur af hólmi í Inkasso- deild kvenna í knattspyrnu í gær. Haukar hafa unnið þrjá leiki í röð og er liðið til alls líklegt. Með sigr- inum fóru Haukar upp fyrir Augna- blik og upp í fimmta sæti deild- arinnar. Tindastóll er í þriðja sæti með 18 stig og missti af tækifæri til að saxa á forskot Þróttar og FH sem eru í efstu tveimur sætunum. Tara Björk Gunnarsdóttir skor- aði sigurmarkið á 43. mínútu og sitt fyrsta mark á leiktíðinni. Þriðji sigurinn í röð hjá Haukum Fyrirliðinn Chante Sandiford hélt marki Hauka hreinu á Króknum. Þórður Þorsteinn Þórðarson, knatt- spyrnumaður frá Akranesi, samdi í gær við FH-inga út keppnis- tímabilið 2020. Fyrr í vikunni fékk hann samningi sínum við ÍA rift. Þórður er 24 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril með ÍA. Mest sem hægri bakvörður en einnig framar á vellinum. Hann á að baki 67 leiki í efstu deild og hefur skor- að átta mörk en fékk aðeins tæki- færi í einum leik í byrjunarliði ÍA í deildinni í sumar og ákvað af þeim sökum að breyta til eins og fram kom í viðtali við hann á mbl.is. Þórður kominn til FH-inga Ljósmynd/FH FH Þórður Þorsteinn Þórðarson gæti spilað gegn KA á morgun. Grótta og Þór skildu jöfn, 1:1, er liðin mættust í topp- slag í Inkasso-deild karla í knattspyrnu, 1.deild á Sel- tjarnarnesi í gær. Arnar Þór Helgason var áberandi í liði Gróttu, á jákvæðan og neikvæðan hátt. Arnar skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu Axels Sigurðssonar á 33. mínútu. Aðeins tíu mínútum seinna fékk Arnar Þór beint rautt spjald fyrir ljótt brot á Jakobi Snæ Árnasyni. Staðan í hálfleik var 1:0, Gróttu í vil, en Þórsarar voru snöggir að nýta sér liðsmuninn í seinni hálfleik. Hollendingurinn Rick Ten Voorde skoraði jöfn- unarmark á 49. mínútu eftir skelfileg mistök Há- konar Rafns Valdimarssonar í marki Gróttu. Þór var líklegri til að skora sigurmark en Grótta það sem eftir lifði leiks, en vörn Gróttu stóð vel og náði að halda út og fá eitt stig. Þór er í öðru sæti með 27 stig, tveimur stigum minna en Fjölnir. Grótta er í þriðja sæti með 26 stig. Leikurinn var liður í 14. umferð en umferðinni lýkur með leik Magna og Fjölnis á Grenivík í dag. Fjölnir getur því aukið við forskot sitt á toppi deildarinnar en Magni er á botninum ásamt Njarðvík og þarf á stigum að halda. johanningi@mbl.is Hamagangur á Seltjarnarnesi Morgunblaðið/Hari Inngrip Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, handsamar knöttinn á Nesinu í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.