Morgunblaðið - 27.07.2019, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 27.07.2019, Qupperneq 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Leikarinn, leikstjórinn og rithöf- undurinn Karl Ágúst Úlfsson, sem er þekktur fyrir leikrit sín, sjón- varpsþætti, kvikmyndahandrit og þýðingar, gaf út smásagnasafnið Átta sár á samviskunni hjá Bene- dikt bókaútgáfu á dögunum. Bókin hefur að geyma átta smásögur sem Karl hefur skrifað á undanförnum árum. „Sögurnar eru sumar orðnar nokkurra ára gamlar og hafa legið hjá mér. Það hefur svo bæst í safnið smátt og smátt. Ég held að elsta sagan sé frá 2008 og þær yngstu frá því í fyrravetur,“ segir hann. Í vetur var Karl Ágúst við störf hjá Leikfélagi Akureyrar og segist hann þá hafa farið að skoða efni sem hann átti í fórum sínum. „Þá hafði ég allt í einu smátíma aukreit- is sem ég get ekki alltaf gengið að vísum. Ég áttaði mig líka á því að ég var með ýmsar hugmyndir sem ég hafði ekki unnið úr almennilega og ákvað að gefa sumum þeirra séns. Ég hélt að sumar af þessum sögum myndu verða bíómyndir eða eitt- hvað slíkt en ákvað svo að þær mættu alveg eins vera smásögur,“ útskýrir hann. Slæm samviska kemur við sögu Karl Ágúst gaf út verkið Aþena, Ohio árið 2014 sem hefur að geyma 75 örsögur og því er Átta sár á sál- inni ekki frumraun hans í smá- sagnagerð. Hann segir verkin tvö vera gjörólík. „Það var ákveðið sam- hengi í Aþena, Ohio. Það eru sögur sem ég skrifaði þegar ég var í námi í Bandaríkjunum. Þær fjalla allar um eyjaskeggjann sem lentur er í stóra samfélaginu og líst misjafn- lega á. Í Átta sár á sálinni eru hins vegar sögur úr ýmsum áttum. Í rauninni er ekkert þema sem ein- kennir verkið nema það sem tengist titlinum. Safnið heitir Átta sár á samviskunni og slæm samviska kemur við sögu í þeim öllum með einhverjum hætti.“ Smásögurnar í safninu eru fullar af húmor, léttar og skemmtilegar á yfirborðinu þó að í þeim finnist einnig grafalvarlegir tónar. „Ég vona að það megi hafa gaman af sögunum á meðan maður veltir efn- inu fyrir sér,“ segir Karl og nefnir að það gerist að mestu ósjálfrátt að húmorinn læðist inn í verk hans. Hann bætir þó við: „Ég hef tamið mér það að sjá lífið í spaugilegu ljósi – það gerir það svo miklu auðveld- ara. Það smitast sjálfsagt inn í verk- in mín. Um leið og maður veltir fram óvæntri hlið á raunveruleik- anum, þessari broslegu hlið, þá finnst mér það auka skilning manns á lífinu.“ Smásagnaskrifin segir Karl ekk- ert mjög ólík leikritun en nefnir þó að vissulega geti það farið eftir hverjum höfundi fyrir sig. „Ég hef starfað í leikhúsinu nánast alla mína starfsævi og skrifað töluvert mikið fyrir leikhúsið og því er mín aðferð yfirleitt sú að ég set mig í spor per- sónanna sama á hvaða formi ég skrifa. Ég er alltaf að leika persón- urnar jafnóðum og ég skrifa þær og þannig er ég auðvitað vanur að skrifa leikrit. Ég verð að geta sett mig í spor hverrar einustu persónu og orðið hálfpartinn að henni.“ Kominn á veg með nýtt verk Karl Ágúst hefur gegnt hlutverki formanns Rithöfundasambands Ís- lands í rúmt ár og segir það starf hafa gengið vel. „Mér hefur gengið ágætlega með það sem ég hef verið að reyna að koma til leiðar.“ Karl hefur unnið töluvert fyrir Rithöf- undasambandið í gegnum tíðina og sat lengi í stjórn félagsins. „Kannski var þetta að einhverju leyti lógískt framhald af því,“ segir hann. Karl lætur lítið uppi um næstu verkefni. „Ég var að koma heim frá Róm þar sem ég var að vinna í verki sem ég þori ekki að tala mikið um í bili en er kominn vel á veg með. Það er alltaf nóg á döfinni og það skortir ekki hugmyndir. Það er frekar að það vanti tíma til þess að koma þeim í framkvæmd.“ Lífið í spaugilegu ljósi  Karl Ágúst Úlfsson gefur út smásagnasafnið Átta sár á samviskunni  „Það er alltaf nóg á döfinni og það skortir ekki hugmyndir,“ segir höfundurinn Morgunblaðið/Hari Rithöfundur „Ég verð að geta sett mig í spor hverrar einustu persónu og orðið hálfpartinn að henni,“ segir Karl. „Guðdómleg klassík“ er yfirskrift tónleika á tónlistarhátíðinni Englar og menn í Strandarkirkju sem fram fara á morgun, sunnudag, kl. 14. Fram koma Ingibjörg Aldís Ólafs- dóttir sópran, Egill Árni Pálsson tenór og Hrönn Helgadóttir org- anisti. Á efnisskránni eru m.a. íslensk sönglög eftir Eyþór Stefáns- son, Jón Ásgeirsson og Gunnar Þórðarson ásamt aríum, dúettum og kirkjutónlist eftir R. Wagner, G. Verdi, J. Massenet, C. Gounod og Stradella. Þá verða frumflutt á tón- leikunum tvö verk eftir Ólaf B. Ólafsson. Aðgangseyrir er kr. 2.900 og miðar eru seldir við innganginn. Listafólk Hrönn Helgadóttir, Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir og Egill Árni Pálsson. Guðdómleg klassík í Strandarkirkju Kanadíski orgel- leikarinn Isa- belle Demers heldur tvenna tónleika í Hall- grímskirkju um helgina á Alþjóð- legu orgelsumri. Fyrri tónleikarn- ir eru í dag kl. 12 og þar leikur hún verk eftir Ernest Macmillan, Rach- el Laurin, Oskar Lindberg og George Thalben-Ball. Seinni tón- leikarnir eru á morgun, sunnudag, kl. 17 og þar leikur hún verk eftir Charles Tournemire, Jason Ro- berts, Bach, Charles-Valentin Alk- an og Stravinskij. Demers lauk doktorsnámi frá Juilliard. Hún er orgelkennari og forstöðumaður orgeldeildarinnar við Baylor Uni- versity í Texas. Hún hefur leikið Evrópu, Óman, Ástralíu, Nýja- Sjálandi, í flestum ríkjum Banda- ríkjanna og í heimalandi sínu. Isabelle Demers í Hallgrímskirkju Isabelle Demers Myndlistarmaðurinn Halldór Ás- geirsson dregur Myndfána að húni við göngu- og hjólastíg við stífluna við Elliðaár í dag, laugardag, og munu þeir blakta þar fyrir vegfar- endur. Endurtekur hann leikinn síðan á miðvikudaginn kemur. Fánainnsetning Halldórs er af- rakstur samstarfs listamannsins við nemendur í Fellaskóla. Verkið er hluti af umfangsmikilli útisýningu, Úthverfi, sem var sett upp víðs- vegar í Breiðholts- og Seljahverfi fyrr í sumar. Verk Halldórs er fært milli staða í hverfinu á sýningar- tímanum en þá er flaggað á fyrir- fram ákveðnum dögum á hverjum stað. Sýningin Úthverfi er annar áfangi í röð sumarsýninga sem hóf- ust í fyrra, nefnast Hjólið og verða settar upp í aðdraganda fimmtíu ára afmælis Myndhöggvarafélags- ins árið 2022. Á sýningunum eru listaverk sett upp meðfram hjóla- og göngustígum í borginni. Níu listamenn eiga verk á sýningunni en staðsetningu þeirra og frekari upplýsingar má sjá á vefnum www.hjolid.is. Ljósmynd/Halldór Ásgeirsson Fánaverk Fánar Halldórs og nemenda Fellaskóla í Breiðholti fyrr í sumar. Halldór flaggar við ElliðaárstíflunaÚTSALA 40% AFÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.