Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
Á
hundrað ára kaupstaðar-
afmæli, og 145 ára afmæli
Þjóðhátíðar í Eyjum, geta
Vestmannaeyingar horft
bjartsýnir fram á veg. Bærinn iðar af
lífi, ný söfn og veitingastaðir hafa
verið opnuð, fyrirtækin á svæðinu
sótt í sig veðrið og með nýjum Herj-
ólfi munu samgöngur milli lands og
Eyja stórbatna.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri seg-
ir þó ennþá ýmis verkefni sem þurfi
að leysa, bæði til að bæta lífsgæði
íbúa eyjarinnar og grípa þau tæki-
færi sem framtíðin á eftir að bera í
skauti sér. Íbúum fjölgar hægt og
með markvissri uppbyggingu og
bættum samgöngum ætti í búum að
geta fjölgað hraðar:
Góðar lóðir í boði
„Það vantar ennþá þúsund manns til
að ná upp í sama fjölda og bjó í Vest-
mannaeyjum fyrir eldgosið 1973 og
við getum auðveldlega tekið á móti
fleiri íbúum. Í núverandi mynd ráða
helstu innviðir samfélagsins og stofn-
anir við rúmlega þúsund manns í við-
bót. Mikið hefur verið byggt und-
anfarið, góðar byggingalóðir í boði og
nokkur mjög áhugaverð
húsbyggingarverkefni á teikniborð-
inu.“
Íris bendir á að Vestmannaeyjar
hafi upp á flest það að bjóða sem nú-
tíma-Íslendingurinn sækist eftir.
Þannig sé bærinn nógu smár og þétt-
ur til að hægt sé að lifa þar bíllausum
lífsstíl og margir sem fara allra sinna
ferða innanbæjar á reiðhjóli eða
tveimur jafnfljótum. Ekki þarf held-
ur að standa í stöðugu skutli á börn-
unum á heimilinu og geta þau komið
sér sjálf á æfingar í einhverjar af
þeim mörgu íþróttagreinum sem
stundaðar eru í bænum.
„Svo er náttúran hér auðvitað gríð-
arlega falleg og mikilfengleg, og um-
hverfið hentar vel til útivistar. Mikið
er um að vera; fjölbreyttar hátíðir og
viðburðir eru í boði árið um kring og
miklu meira í boði en fólk myndi
kannski reikna með í 4.300 manna
byggðarlagi.“
Leita úrbóta
Tvær stærstu áskoranirnar sem
Vestmannaeyingar standa frammi
fyrir eru á sviði samgangna og heil-
brigðismála. Segir Íris að styrkja
þurfi heilbrigðisþjónustu í Eyjum því
þó að þar sé í dag rekin heilsugæsla
og sjúkrasvið þá var skurðstofunni
lokað árið 2013. „Það átti að vera
tímabundið en skurðstofan hefur enn
ekki verið opnuð á ný,“ segir Íris og
bætir við að komið hafi verið aftan að
bæjarbúum með því að flytja miðstöð
sjúkraflugs frá Vestmannaeyjum til
Akureyrar. „Það var hluti af því sam-
tali sem við áttum við stjórnvöld
vegna lokunar skurðstofunnar, að
tryggt væri að koma mætti fólki hratt
og vel upp á land með sjúkraflugi.
Skömmu síðar var sjúkraflugið boðið
út á ný og færðist í framhaldinu norð-
ur í land. Með því hefur viðbragðs-
tíminn lengst og þjónustan ekki sú
sama og reiknað hafði verið með. Það
er, sem sagt, með bæði samgöngu-
málin og heilbrigðisþjónustuna sem
við eigum undir ríkisvaldið að sækja
og þurfum stöðugt að leita úrbóta í
þeim efnum.“
ai@mbl.is
Lífsgæði sem fólk sækist eftir
Þessir vösku ungu menn tóku sér stutt hlé, fyrr í vikunni, frá því að hlaða brennu fyrir Þjóðhátíð, og stilltu sér upp fyrir ljós-
myndara. Dugnaður og drifkraftur þykir einkenna Vestmannaeyinga og þeir standa þétt saman þegar á reynir.
Bæjarstjórinn myndi
vilja sjá íbúum Vest-
mannaeyja fjölga
hraðar og hægt er að
taka við þúsund manns
til viðbótar með
núverandi innviðum.
„Það vantar ennþá þúsund manns til að ná upp
í sama fjölda og bjó í Vestmannaeyjum fyrir eld-
gosið 1973 og við getum auðveldlega tekið á
móti fleiri íbúum,“ segir Íris Róbertsdóttir.
Ljósmyndir/Óskar Pétur Friðriksson
1. Heimsæktu Eldheima. Á þessari
hrífandi sýningu má fræðast um
eldgosið í Heimaey og Surts-
eyjargosið. Safnið var opnað fyrir
fimm árum og ómissandi að líta
þar inn.
2. Haltu á vit sögunnar í Sagn-
heimum. Byggðasafn Vestmanna-
eyja var tekið í gegn fyrir nokkrum
árum og fer aðrar leiðir en mörg
önnur byggðasöfn. Börnin geta
mátað sjóræningjaklæðnað og
leikið sér í sjóræningjahelli.
3. Kíktu á mjaldrana. Frægustu
nýju íbúar Vestmannaeyja eru
mjaldrar sem bjargað var frá Kína
og hefja núna nýtt líf við mun betri
skilyrði. Í gestamiðstöð Sea Life
Trust má skoða sædýrin, kynnast
lundanum og sjá mjaldrana synda
um.
4. Farðu út að borða. Það gæti vel
verið að Vestmannaeyjar slægju
met í fjölda veitingastaða m.v.
höfðatölu. Af mörgum góðum
kostum má t.d. nefna Tangann,
Slippinn, Einsa kalda, 900 Grillhús
og veitingastaðinn Gott. Þá halda
heimamenn mikið upp á brugg-
húsið The Brothers Brewery.
5. Farðu í siglingu. Nokkur fyrir-
tæki bjóða upp á siglingar um-
hverfis Vestmannaeyjar. Er óvið-
jafnanlegt að sjá landslag og lífríki
svæðisins frá sjó.
6. Farðu í sund. Sundlaugin í Vest-
mannaeyjum þykir bera af og er
m.a. með trampólín-vatns-
rennibraut.
7. Lærðu að spranga. Heimamenn
geta vísað þér veginn að Spröng-
unni, til að æfa þá fornu list að
svífa eins og ofurmenni eftir
klettaveggnum. Reipið er á sínum
stað árið um kring, nema á
Þjóðhátíð þegar það er fjarlægt af
öryggisástæðum.
8. Gakktu á fjöll. Eldfell, Helgafell,
Stórhöfði, Blátindur, Heimaklett-
ur: það vantar ekki fjallgöngu-
tækifærin en vissara að sýna að-
gát og hafa vanan mann með í för
ef þarf.
9. Kíktu í búðir. Í Eyjum má finna
gott framboð gjafavöru og áhuga-
verðar tískuverslanir.
10. Athugaðu dagatalið. Það er
alltaf eitthvað skemmtilegt um að
vera, vetur, sumar, vor og haust:
Þrettándagleði, Þjóðhátíð, Gos-
lokahátíð, tónleikar, fyrirlestrar og
sveitaböll.
Tíu skemmti-
legir hlutir til
að gera í Vest-
mannaeyjum