Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 18
Þ ótt Kristín Jóhannsdóttir hafi bara verið krakki þegar ósköpin dundu yfir var hún samt nógu gömul til að muna það vel að hafa verið vakin af föður sínum um miðja nótt hinn 23. janúar 1973. Öllum að óvörum var tekið að gjósa og logandi hraunið streymdi í átt að bænum. „Eldgosið gerði ekki boð á undan sér og raunar héldu flestir að þar sem Surtseyjargosið hafði orðið tíu árum áður þá hlytu að vera þúsund ár í næsta eldgos á þess- um slóðum,“ segir Kristín en hún er safnstjóri Eldheima þar sem saga gossins í Heimaey er sögð. „Eftir á töldu sumir sig hafa greint einhver merki um hvað væri í vænd- um; að þeir hefðu fundið titring eða tekið eftir að snjó hafði ekki fest á svæðinu þar sem eldgosið kom upp. Enn aðrir fullyrtu að álfarnir í Vest- mannaeyjum hefðu flutt úr aust- urbænum yfir í vesturbæinn nokkr- um dögum áður en tók að gjósa.“ Það er ekki heldur ljóst hver varð fyrst var við logana. Segir Kristín lík- legast að það hafi verið tveir menn sem höfðu það orð á sér að vera dá- litlir villingar og gjarnir á að vaka á meðan bærinn svaf. „Eða kannski var það fólkið sem bjó á bæjunum næst upptökum eldgossins, en á þessum tíma mátti finna bóndabýli utan við sjálfan bæjarkjarnann og náðu log- arnir til þeirra strax á fyrstu klukku- stundunum.“ Þrjú hundruð urðu eftir Eldgosið var óvenjulegt fyrir margra hluta sakir og fjallað um hamfarirnar í alþjóðapressunni. Enda stórfrétt að hraun skyldi sísvona byrja að vella upp úr jörðu steinsnar frá byggð og kraftaverki líkast að ekki varð mann- tjón. „Strax um nóttina var reynt að koma sem flestum um borð í bátana sem voru við bryggju og við tók löng og strembin sigling til Þorlákshafnar það sem rútur og strætisvagnar ferj- uðu fólkið til Reykjavíkur. Um morg- uninn tókst síðan að tæma sjúkra- húsið af rúmföstu fólki og fljúga með það til höfuðborgarinar. Eftir urðu í kringum 300 manns, einkum sterkir og stæðilegir karlar, og var þeirra helsta verkefni að reyna að bjarga verðmætum úr húsum. Mátti oft litlu muna og t.d. fylltist bærinn á tímabili af eitruðu gasi svo hópurinn þurfti að flýja upp til hlíða.“ Það átti þátt í að beina sjónum heimsbyggðarinnar að Heimaeyj- argosinu að nálægð eldstöðvanna við byggðina sýndi svo vel þann ógn- arkraft sem náttúran býr yfir. „Oft þegar kraftar jarðarinnar brjótast fram með þessum hætti er það í óbyggðum, órafjarri mannabústöð- um, en í þessu eldgosi mátti sjá fólk standa og horfa bjargarlaust upp á aleiguna brenna og hverfa undir hraun og ösku. Samt var um tiltölu- lega smátt eldgos að ræða í stóra samhenginu og þakti nýtt hraun um fimm ferkílómetra svæði, á meðan t.d. gosið i Holuhrauni frá 2014-2015 náði yfir 70 ferkílómetra.“ Mikilvægt að varðveita söguna Eins og gefur að skilja var fólkið í Eyjum skekið eftir hamfarirnar og segir Kristín að þegar sú hugmynd kviknaði fyrst að setja á laggirnar safn tileinkað eldgosinu hafi það ýft upp gömul sár. „Til að byrja með vildu sumir helst ekki að þessi saga væri rifjuð upp, en svo mildaðist sá hópur í afstöðu sinni og í dag er al- menn sátt um safnið og skilningur á mikilvægi þess að varðveita þennan kafla úr sögu Vestmannaeyja. Hefur starfsemin líka gengið mjög vel og „Stærsta tjónið var allt það góða fólk sem kom ekki til baka“ Í Eldheimum er saga Heimaeyjargossins sögð og líka hægt að fræðast um gosið í Surtsey. Eld- gosið gerði ekki boð á undan sér og var bærinn rýmdur á einni nóttu. Kristín segir ekki að fullu ljóst hver varð fyrst var við eldgosið. Sumir kváðust hafa séð álfana í bænum flytja búferlum fyrir gos. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Vinnslustöðin hf hafnargata 2 900 Vestmannaeyjar vsv@vsv.is www.vsv.is Til hamingju með afmælið Vestmannaeyjabær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.