Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Þ egar litið er yfir langa sögu íþróttastarfs í Vestmanna- eyjum mætti halda að ein- hver alveg sérstök vítamín væri þar að finna í drykkjarvatn- inu. Karla- og kvennalið bæjarins, í knattspyrnu, handbolta og öðrum greinum, í öllum flokkum, hafna iðulega í toppslagnum og árangur- inn mun betri en vænta mætti af ekki stærra bæjarfélagi. Skýringin kemur fljótt í ljós þegar rætt er við heimamenn: íþróttaiðkun er almenn í bænum og óhætt að segja að ÍBV myndi hjarta samfélagsins. Þór Í. Vilhjálmsson, formaður ÍBV, getur tekið undir þetta og bendir hann á að af 4.200 eyja- skeggjum séu um 700 skráðir í fé- lagið. Eru þá ekki talin með um 650 börn og ungmenni sem stunda æfingar hjá félaginu. Þá styrkir það starfið að í Vestmannaeyjum fara fram tvö öflug íþróttamót yngri flokka; TM-mótið fyrir stúlkur og Orkumótið fyrir pilta. Komu um 800 þátttakendur á síð- asta TM-mót en 1.100 á Orkumótið fyrr í sumar. Má heldur ekki gleyma að nefna mikla þrettánda- gleði sem félagið efnir til ár hvert og laðar til Eyja fjölda manns. Byggt á aldargömlum grunni Þótt ÍBV sé ungt íþróttafélag nær saga félagsins langt aftur. Knatt- spyrnufélag Vestmannaeyja, KV, var stofnað 1903 en æfingar hófust ekki að ráði fyrr en 1906. Næst í knattspyrnusögu Eyja kom Íþróttafélagið Þór, sett á laggirnar 1913. Loks var Knattspyrnufélagið Týr stofnað 1921 og tóku liðin saman höndum um að keppa sem eitt lið utan Eyja, og þá undir merki KV. Árið 1945 er Íþrótta- bandalag Vestmannaeyja stofnað og eftir stofnun þess léku liðin undir því nafni .Voru Týr og Þór endanlega sameinuð árið 1996 sem ÍBV, með knattspyrnu og hand- bolta sem aðalgreinar. Fram að sameiningu höfðu fé- lögin tvö skipst á að hafa umsjón með Þjóðhátíð í Eyjum, en hátíð- íðin er í dag langsamlega stærsti viðburður ársins hjá ÍBV og seg- ir Þór að þar geri gæfumuninn að fjöldi sjálfboðaliða leggur hönd á plóg til að tryggja að allt gangi vel fyrir sig. Er hátíðin líka burðarstólpinn í fjáröflun ÍBV en rekstur félagsins er um- fangsmikill og segir Þór kostn- aðarsamt að reka svona stórt íþróttafélag – og ferðakostnaður íþyngjandi útgjaldaliður. „Stuðn- ingur bæjarins er fyrst og fremst í formi íþróttamannvirkj- anna sem við nýtum og felst einnig í að veita okkur afnot af skólabyggingum til að hýsa íþróttamótin okkar,“ segir hann og bætir við að þetta geri fjár- hag ÍBV frábrugðinn því sem tíðkast víðast hvar á landinu. Byrja snemma að æfa af krafti Árangur ÍBV kemur ekki til af því einu saman að heimamenn standi þétt við bakið á félaginu og segir Þór að almenn þátttaka í barna- og unglingastarfinu hjálpi til að laða fram og hlúa að hæfileikum unga fólksins á íþróttasviðinu. Vandað teymi þjálfara fylgi öllum aldurshópum samviskusamlega eftir og leggi sig fram um að veita þeim gott veganesti, hvort heldur fyrir lífið sjálft eða fyrir glæstan feril í úr- valsdeild. Meðal nýjustu framfara í starf- inu er að samræma betur kennslutíma skólanna og æfinga- tíma barna- og unglingahópanna svo að sem best samfella sé í deg- inum. Þá er búið að setja á lagg- irnar íþróttaakademíu við fram- haldsskólann og grunnskólann, í samvinnun við ÍBV, þar sem þau ungmenni sem þess óska geta sinnt sinni íþróttagrein af enn meiri metnaði. „Bæði gangast þau við ákveðnum reglum um notkun á tóbaki, víni og öðru slíku og hefja síðan daginn strax klukkan sex á morgnana. Fær hópurinn morgunmat hjá aka- demíunni og gerir æfingar áður en skóladagurinn byrjar og stundar svo æfingar með venju- bundnum hætti að kennslu lok- inni.“ Þetta fyrirkomulag virðist inn- ræta þátttakendum mikinn aga og um leið skilar meiri æf- ingatími sér í betri árangri í íþróttinni. „Úr þeim hópi sem hefur farið þessa leið erum við að fá ungt fólk sem ber af í sinni grein og marga sem eiga fullt er- indi í landsliðið.“ ai@mbl.is Íþróttirnar mynda hjarta samfélagsins Íþróttaiðkun er hluti af daglegu lífi margra barna og unglinga í Vestmannaeyjum og hefur samfélagið alið af sér ófáa íþróttamenn í fremstu röð. Í íþrótta- akademíunni byrja ung- mennin daginn klukkan sex á morgnana. Morgunblaðið/Ómar Mynd úr safni af orkumiklum stuðningsmönnum ÍBV. Stór hópur Vestmannaeyinga er skráður í íþróttafélagið og flest börnin í bænum stunda þar æfingar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sandra Erlingsdóttir brýst í gegnum varnirnar með handboltaliði kvenna. Morgunblaðið/Ómar Karlalið ÍBV í knattspyrnu hampar Borgunarbikarnum á þessari mynd frá 2017. Ekki skortir samheldnina hjá hópnum. Þótt lífið í Vestmannaeyjum virðist stundum hverfast um ÍBV segir Þór að þar séu margs konar íþróttagreinar í boði og eigi allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þannig er virkt starf hjá Íþróttabandalagi Vestmannaeyja fyrir þá sem vilja æfa og spila boltaíþróttir sér til gamans og heilsubótar. „Við höfum líka fimleikafélagið Rán, karatefélag, körfuknattleiksfélag, skotfélag, sund- félag, badmintonfélag, íþróttafélagið Ægi, blakfélag og prýðilegan golfklúbb svo nokkur dæmi séu nefnd.“ Fer samt ekki milli mála að spennan er hvað mest á leikjum ÍBV. „Á hand- boltaleikjum fyllist íþróttahúsið af stuðningsmönnum og algengt að á knatt- spyrnuleikjum séu í kringum sjö hundruð áhorfendur. Mikil stemning er í kringum heimaleikina og ekki laust við að bærinn tæmist.“ Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Bærinn tæmist þegar spilað er Þór segir Vestmanna- eyinga duglega að hvetja sitt lið áfram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.