Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 MORGUNBLAÐIÐ 7 Herjólfi sem er hannaður til að rista ekki eins djúpt og sá gamli og því hægt að nota nýja skipið við að- stæður þar sem síðasti Herjólfur hefði setið fastur á grynningum. Þá segir Bjartur að verkfræðingar vinni hörðum höndum að því að finna lang- tímalausn, s.s. að koma þar fyrir bún- aði sem gæti fjarlægt sand úr hafnar- mynninu á öllum tímum árs og án þess að þurfi að kalla til dæluskip. „Við Landeyjahöfn eru aðstæður fyr- ir dæluskip mjög erfiðar yfir vetrar- tímann og þarf að fást við sterka vinda og hafstsrauma, töluverða ölduhæð og mikla öldulengd. Það er því mikilvægt við hönnun hafnar- innar að öryggi sjófarenda sé tryggt.“ Þó að vandræðin í kringum Land- eyjahöfn hafi verið áfall fyrir Eyja- skeggja hefur umframkostnaðurinn ekki lent á herðum þeirra sem nota ferjuna því höfnin er í eigu og á Nýja ferjan er fallega innréttuð og hægt að njóta útsýnisins á leiðinni. Nýr Herjólfur getur hlaðið rafhlöð- urnar á meðan farþegar ganga og aka um borð, og siglt á rafmagninu einu saman milli lands og Eyja. ábyrgð Vegagerðarinnar. Herjólfur hefur vissulega farið á mis við tekjur og fargjaldið hefur haldist það sama þótt sigla þurfi lengri leið til Þorláks- hafnar, en Bjartur segir að styrktar- samningur Herjólfs og ríkisins taki blessunarlega tillit til þess að mun meiri olíukostnaður er á hverja ferð þau skipti sem sigla þarf sexfalt lengri leið til Þorlákslafnar. Hægt að nýta daginn betur Þá mánuði sem Herjólfur hefur get- að notað Landeyjahöfn hefur blasað við hve miklu höfnin breytir, bæði fyrir lífsgæði heimamanna og að- gengi ferðamanna. Styttri sigl- ingatími þýðir að ferðamenn á leið um Suðurland eru líklegri til að skjótast til Eyja til að skoða mannlíf, sögu og náttúru staðarins og Eyja- skeggjar eiga hægt um vik að sækja ýmiss konar þjónustu upp á land. Nefnir Bjartur að heimamenn séu áberandi duglegir að nota fyrstu og síðustu ferðir dagsins og t.d. hægt að taka ferjuna kl. 6.30 að morgni, aka til Reykjavíkur til að sinna alls kyns verkefnum og sækja alla þá þjónustu sem nauðsynleg er og ná síðustu ferjunni heim kl. 23.15. Er þetta mik- ill munur frá því sem var þegar að- eins var í boði að sigla til Þorláks- hafnar, ekki hægt að fara meira en tvær ferðir fram og til baka dag hvern og oftast nauðsynlegt að gista í höfuðborginni ef Eyjamenn áttu þangað erindi. „Nú getur fólk nýtt daginn vel og það að skreppa til borgarinnar kallar ekki á eins mik- inn undirbúning og skipulag,“ segir hann. „Það þættu tíðindi ef Hval- fjarðargöng, Hellisheiði eða aðrar samgönguleiðir á þjóðvegi 1 væru lokaðar yfir ákveðið tímabil. Við þetta búa Eyjaskeggjar enn þann dag í dag en vonandi sjáum við fram á bjartari tíma.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Morgunblaðið/Ólafur Pétur Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.