Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 Ég tek strætó í vinnuna. Það tekur lengri tíma en að keyra í vinnuna enmér finnst það þægilegra. Á morgnana er ég þreyttur og hef lítinnáhuga á að setjast bak við stýri og einbeita mér að akstri. Í staðinn get ég hallað mér aftur í sætinu mínu, slakað á og hlustað á hlaðvarp eða lesið bók. Morgunumferðin er ekki nærri því eins pirrandi þegar maður er aðeins passífur þátttakandi í henni. Þó er eitt sem ég á erfitt með; sætisvalið. Ef þú ætlar að aka í vinnuna get- ur þú aðeins valið eitt sæti – bílstjórasætið. Hvílík forréttindi! Í strætó eru sætin allt upp í fimmtíu. Vandamálið er að ég vil helst sitja einn í strætó. Kannski flokkast það undir andfélagslega hegðun en sann- leikurinn er sá að það síðasta sem ég vil klukkan sjö að morgni er að deila olnbogarými með ókunnugri mann- eskju. Ég kem inn í strætóinn minn frek- ar snemma á leiðinni, þannig að yf- irleitt eru nokkur auð sæti við hlið- ina á auðum sætum og venjulega sest ég þar. En það eru í raun mis- tök. Ég hef lært af reynslunni að þegar líður á strætóferðina mun strætóinn fyllast og það eina sem ég geri með því að setjast í sæti við hliðina á auðu sæti er að framselja rétt minn til að velja hver mun enda á að sitja við hliðina á mér. Ef ég verð að sitja við hliðina á manneskju, sem er í þessu til- felli óhjákvæmilegur raunveruleiki, vil ég halda í þá litlu stjórn sem ég hef til að hafa áhrif á örlög mín og ákveða sjálfur hjá hverjum ég sit. Þess vegna er rökréttara að setjast við hliðina á annarri manneskju í strætó þótt þú getir sest í sæti við hliðina á auðu sæti. En ég geri það samt ekki. Ég er bjartsýnismanneskja. Þótt möguleikinn á að plássfrek manneskja með háværa tónlist í eyrunum setjist við hliðina á mér sé einstaklega óaðl- aðandi, er hann betri heldur en að útrýma möguleikanum á að sitja einn fyrir fullt og allt. Auk þess hef ég það einfaldlega ekki í mér að brjóta þá almennu íslensku félagsvenju að halda eins mikilli fjarlægð frá ókunnugum og mögulega hægt er. Ég þyrfti að vera gjörsamlega siðblindur til að ganga inn í nær auðan strætisvagn og setjast við hliðina á einu manneskjunni í vagninum. Ég er hræddur um að ég neyðist til að framselja rétt minn til að velja mér sessunaut í nafni almennrar kurteisi. Sessunautar og strætisvagnar Pistill Pétur Magnússon petur@mbl.is ’Ég þyrfti að vera siðblindur til aðganga inn í nær auðanstrætisvagn og setjast við hliðina á einu mann- eskjunni í vagninum. Gunnhildur Sæmundsdóttir Hún er nú ekki uppáhalds en Boheimian Rhapsody er mjög góð. SPURNING DAGSINS Hver er uppáhalds kvikmynd- in þín? Helga Friðriksdóttir Pretty Woman. Kristinn Hauksson Stella í orlofi. Sindri Snær Þorsteinsson Þær eru nokkrar en ég segi The Green Mile. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. TEITUR MAGNÚSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Teitur Magnússon mun koma fram á Pikknikk tónleikum Norræna hússins á sunnudaginn. Frítt er á tónleikana sem hefjast klukkan 15.00. Hvar ert þú að spila um helgina? Þetta eru Pikknikk tónleikar Norræna hússins, sem eru á sunnudögum klukkan 3, ég er ekki viss hvort þetta er alla sunnudaga. Það er ókeyp- is á þetta, þetta er í gróðurhúsinu fyrir utan Norræna húsið, í garð- skálanum. Ég spilaði þarna í fyrra og hittifyrra. Ég var ekki búinn að ákveða að spila núna í sumar en síðan var ég óvænt fenginn til að leysa af. Það var einn, hann félagi minn Árni Vil, sem átti að vera og hann gat ekki spilað þannig ég hoppaði inn. Hverju getur fólk búist við af þessum tónleikum? Það er frekar hugguleg stemning þarna. Ég skoðaði veðurspána, það á ekki að vera sólskin en það gerir ekki til, það er hægt að vera inni í þessum garðskála. Við sjáum til hvort það rigni. Það getur orðið svolítið heitt ef það er mikil sól, það hefur stundum verið mjög heitt þegar það er sól, þegar ég hef spilað inni í garðskálanum hefur næstum því liðið yfir mig. En þetta hefur verið vel sótt og góð stemning. Það er líka frábært kaffihús, veitinga- staður. Hvernig myndir þú lýsa tónlistinni þinni? Hún er svona kannski einhvers konar tilraunakennd fólktónlist. Oft suð- rænt og seiðandi, í sumum lögunum. Eins og í laginu Mónika, þetta er svona bossanóva-bræðingur. Þetta er svona blanda af öllum mögulegum áhrifum, en oft er þetta samið í grunninn á kassagítar. Svo er byggt ofan á það. Hvað tekur svo við í sumar? Það verða tónleikar í Grindavík 17. ágúst og Þorlákshöfn 23. ágúst. Svo verð ég í Grænlandi 3. til 12. ágúst. Það var verið að bjóða mér á hátíð sem heitir Qooqqut þar sem ég mun semja tónlist með innfæddum tónlistarmönnum í vinnubúðum. Við verðum með hálftíma tónleika með þessu prógrammi sem verður til þannig og síðan er ég líka með hálftíma tónleika þar sem ég spila mitt sólóefni. Svo er ég líka að semja tónlist fyrir söngleik sem verður frumfluttur í sumar. Tilrauna-fólktónlist í Norræna húsinu Morgunblaðið/Hari SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.