Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Blaðsíða 8
Arnþór Birkisson
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019
Ein bestu ráð sem foreldrumhafa verið gefin eru frá Goethe. Hann sagði að for-
eldrar ættu helst að stefna að því að
gefa börnum sínum tvennt: rætur og
vængi.
Að vissu leyti eru þetta andstæður.
Ræturnar halda þér heima, binda þig
við sama stað og halda þér í viðjum
hins þekkta, hins vanalega og hefð-
bundna, þess sem þér hefur verið
kennt, gildin sem þér hafa verið inn-
rætt og reglurnar sem þér hefur ver-
ið gert að virða. Þær bjóða ekki upp á
svigrúm heldur festu. Vængirnir
færa þig aftur á móti á nýja staði og
gefa þér frelsi til að fara út fyrir hið
þekkta, fara þínar eigin leiðir og jafn-
vel segja skilið við það sem þér hefur
verið kennt og innrætt.
Það er ábyggilega í gullnu jafn-
vægi þessara tveggja þátta sem hver
einstaklingur verður farsælastur.
Markmiðið er einföldun
Þó að við kunnum öll að meta fjöl-
skylduformið kunnum við ekki endi-
lega við að þjóðfélaginu sé líkt við
fjölskyldu. Það kallar fram í hugann
lítt eftirsóknarvert ástand þar sem
einstaklingurinn er ófrjáls og ósjálf-
bjarga; ástand sem hefur verið vel
lýst með þekktum hugtökum á borð
við „stóra bróður“ og „nanny state“.
En það er ekkert slíkt sem ég hef í
huga þegar ég leyfi mér að heimfæra
orð Goethes um foreldra upp á sam-
félagið og segja að leikreglur sam-
félagsins hljóta að miða að gullnu
jafnvægi þess að gefa okkur ein-
staklingunum bæði rætur og vængi.
Setja okkur ramma án þess að
íþyngja okkur um of.
Fyrsta hugsun hægrimanna er
ekki hvaða nýju íþyngjandi reglum
er hægt að bæta við til að bæta sam-
félagið heldur hvort unnt sé að auka
einstaklings- og athafnafrelsi með
því að einfalda hlutina.
Á varðbergi
Það þýðir auðvitað ekki að nýjar
reglur eigi aldrei rétt á sér. Sam-
félagið tekur sífelldum og sífellt
hraðari breytingum sem oft er nauð-
synlegt að bregðast við og end-
urspegla í leikreglunum. En við
eigum að vera mjög á varðbergi
gagnvart því að of langt sé gengið í
þeim efnum.
Það er líka viðbúið og eðlilegt að
sumt regluverk sé langt og ítarlegt.
Við stærum okkur þannig réttilega af
besta fiskveiðistjórnunarkerfi heims
en viðmið okkar í þeim efnum er ekki
að regluverkið sé svo fáar blaðsíður.
Það er raunar býsna margar blaðsíð-
ur, en það virkar.
Það er því ekki algild regla að allar
reglur séu því betri því einfaldari
sem þær eru, en sem meginregla er
hún skynsamlegt leiðarljós. Einföld-
un innan marka hins raunhæfa og
skynsamlega. Í ráðuneyti mínu er
unnið markvisst að því að rýna hvaða
reglur megi einfalda. Þar er verk-
efnið að taka fyrir hverju einustu eft-
irlitsreglu sem undir ráðuneytið
heyrir og athuga hvernig er hægt að
einfalda hana í þágu atvinnulífsins.
Þá höfum við fengið OECD í lið með
okkur í ítarlega greiningu á reglu-
verki mikilvægra geira á borð við
ferðaþjónustu og byggingariðnaðinn
með aukna skilvirkni og samkeppn-
ishæfni að leiðarljósi.
Við verðum einnig að hafa alltaf á
bak við eyrað hver eigi í raun að bera
ábyrgðina þegar fyrirtæki brjóta
reglur. Ég tel að í slíkum tilvikum sé
of mikil tilhneiging til að kalla sífellt
eftir auknu eftirliti hins opinbera. Í
stað þess að það bíti þá sem brjóta
má ekki gleymast að það eru alltaf
þeir sem síst skyldi sem eru látnir
greiða fyrir aukinn kostnað á op-
inberu eftirliti vegna þess að fáir
brjóta reglur. Það er hvorki sann-
gjarnt né skynsamlegt.
Hversu víðtækt eftirlit?
Það er síðan sjálfstæð en líka mjög
áhugaverð spurning hversu langt við
erum tilbúin að ganga til að tryggja
að reglum sé fylgt. Nýlega var birt
skoðanakönnun sem sýndi að mikill
meirihluti landsmanna vill fjölga eft-
irlitsmyndavélum. Mörgum þykja
slíkar myndavélar minna á „stóra
bróður“ en vissulega veita þær
mörgum öryggistilfinningu, fækka
mögulega glæpum og geta aug-
ljóslega gegnt lykilhlutverki við að
upplýsa þá.
Með nútímatækni eru lítil tak-
mörk fyrir því hversu víðtæku eftir-
liti er hægt að koma á. Í því felast að
sjálfsögðu álitamál um grundvall-
argildi. Breytingarnar eru hraðar og
það er tímabært að ræða af meiri al-
vöru hvaða skorður við séum tilbúin
að setja frelsinu – þar með talið per-
sónufrelsi og friðhelgi einkalífs – í
þágu allsherjarreglu.
Kröfurnar um flóknari reglur og
aukið eftirlit koma iðulega upp þegar
eitthvað hefur farið úrskeiðis ein-
hvers staðar. Það er engin ástæða til
að amast við því og ósköp eðlilegt að
spurt sé hvort möguleiki sé á úrbót-
um. Þannig verða framfarir. Við eig-
um hins vegar öll að temja okkur að
meta þessar kröfur með yfirveguðum
hætti og skoða þær með gagnrýnum
augum. Fyrsta spurningin á að vera
hvort ávinningurinn sé örugglega
meiri en tilkostnaðurinn. Ef við
spyrjum aldrei þeirrar spurningar –
sem of oft vill gleymast í hita leiksins
– köllum við yfir okkur minni sam-
keppnishæfni, minni framleiðni og
lakari lífskjör.
Rætur og vængir
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’Leikreglur samfélagsinshljóta að miða aðgullnu jafnvægi þess aðgefa okkur einstakling-
unum bæði rætur og vængi.
Setja okkur ramma án þess
að íþyngja okkur um of.
Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500
Teketill úr postulíni kr. 36.500
Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Roðtöskur
Atvinna