Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 LÍFSSTÍLL Sveppa- og papriku-„tapenade“ 1 bakki sneiddir Flúðasveppir 1 bakki paprikur frá Flúða-Jörfa 1 stk. geiralaus hvítlaukur 12 stk. grænar ólífur 50 g sólþurrkaðir tómatar salt og pipar Setjið sveppi og papriku í eld- fast mót og hellið smá olíu yfir. Bakið í 25 mínútur við 150°C. Kælið. Hellið því næst vökvanum frá sveppunum og paprikunni en hægt er að nota það síðar sem kraft í súpu- eða sósu- gerð. Notið matvinnsluvél til að grófhakka hráefnin hvert fyrir sig. Blandið öllu saman. Smakkið til með salti og pip- ar Ýmislegt gómsætt er á matseðlinum eins og gulrót- arbyggkaka. „Og svo erum við með sveppaís og gulrótarís,“ segir Emma. Blaðamaður hváir og segir sveppaís hljómi mjög undarlega. „Hann er rosalega góður!“ segja þær báðar og hlæja. „Það var nú meira sveppabragð af honum áður, við er- um búin að milda það aðeins,“ skýtur Georg inn í. Fastakúnnar úr Reykjavík Farmers Bistro opnaði fyrir tveimur árum og er að festa sig í sessi í sveitinni. Bæði Íslendingar og erlendir ferða- menn sækja staðinn og oft eru Íslendingar í meirihluta. Opið er frá 12-17 á daginn en tekið er á móti hópum bæði kvölds og morgna. „Við erum hér á Flúðum í þessu sumarbústaðahéraði þannig að það koma margir Íslendingar,“ segir Emma. „Þegar hóparnir koma erum við að þjóna allt að hundrað manns í einu,“ segir hún og nefnir að þau bjóði upp á eitthvað fyrir alla. „Við erum með bæði ketó og vegan því fólk vill það en svo viljum við líka bjóða upp á íslenska lambið, naut og kjúkling,“ segir Emma. Blaðamaður nefnir að það væri tilvalið fyrir fjöl- skyldur og vini að fá sér bíltúr úr höfuðborginni og borða á Farmers Bistro á fallegum sumardögum. „Það eru margir sem gera það og erum við með fasta- kúnna úr Reykjavík,“ segir Ragnheiður og segir suma kúnnanna jafnvel koma ríðandi. „Við erum hér með hestagerði og rafmagnsgirðingu og það er vinsælt hjá hópum að koma hingað á hestum.“ Á Flúðum eru ræktuð 600 tonn á ári af sveppum. Það tekur tólf vikur fyrir sveppi að vaxa. Uppskrift af sveppasúpunni er leyndarmál. 145 g nautakjöt (við notum Kjöt frá Koti) 4 sneiðar chorizo (frá Stjörnugrís) 1 sneið Maribo-ostur íssalat frá Garðyrkjustöðinni Ösp chipotle-sósa tómatsalat með lauk og basil guacamole smjörsteiktir sveppir smá sýrður rjómi salsasósa til að hafa með Steikið kjötið í u.þ.b. tvær mín- útur á hvorri hlið og saltið og piprið. Þegar búið er að snúa kjötinu, setjið fjórar sneiðar af chorizo og eina sneið af maribo-osti ofan á kjötið. Raðið á diskinn í þessari röð: íssalat fer á botninn og chi- potle-sósa ofan á salatið. Ham- borgarinn er svo lagður ofan á og aftur íssalat og því næst er ham- borgarinn toppaður með tóm- atsalati og guacamole. Berið fram með íslensku salsa, sýrðum rjóma, smjörsteiktum Flúðasveppum og brenndum osti. Ketóhamborgari Farmers Bistro Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Góð og öflug vörn fyrir meltingarveginn Bio-Kult Candéa inniheldur góðgerla, hvítlauk og greipkjarnaþykkni. Öflug blanda sem eflir mótstöðuafl líkamans l Styrkir meltinguna l Vinnur á Candida sveppnum l Kemur jafnvægi á meltingaflóruna l Bestu gæði góðgerla Öll sykurlöngun hefur minnkað Í mörg ár fann ég fyrir óþægindum í maga. Ég upplifði það yfirleitt þegar líða tók á daginn, varð útblásin og leið ekki vel. Ég taldi það líklegt að um óþol væri að ræða. Fyrir rúmum þremur árum var mér bent á Bio Kult Candéa hylkin og hef tekið staðfastlega tvö hylki á dag með stærstu máltíðum dagsins. Öll sykurlöngun hefur minnkað, en áður fyrr drakk ég mikið sykraða gosdrykki. Ég hef náð að halda mér í kjörþyngd og þakka ég það daglegri inntöku Bio-Kult, sem fær að ferðast meðmér hvert sem ég fer. Kolbrún

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.