Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 2019
„Tveir mömmustrákar með mikil gestalæti segja sögur í
leit að ást, samþykki og viðurkenningu,“ segir í lýsingu
nýs hlaðvarpsþáttar sem hóf göngu sína í júní. Þátt-
urinn, sem notið hefur mikilla vinsælda, ber nafnið Hæ
hæ – Ævintýri Helga og Hjálmars og eru Helgi Jean
Cleassen fjölmiðlamaður og Hjálmar Örn Jóhannsson
skemmtikraftur stjórnendur hans.
Þeir félagar skipta þættinum upp í fjóra til fimm hluta.
„Það er pub-quiz spurning, topp fimm listi, með eða á
móti, byrjunarsaga og svo erum við með leikþátt sem við
endum alltaf á,“ segir Hjálmar. Í leikþættinum bregða
þeir Hjálmar og Helgi sér í hlutverk skemmtilegra per-
sóna eins og Hvítvínskonunnar og Péturs á Útvarpi
Sögu. „Í nýjasta þættinum verður miðilsfundur,“ bætir
Hjálmar við. „Þættirnir eru 70% grín, 20% á andlegu
nótunum og svo eru 10% sem vitum ekkert hvað verður
úr.“
Hjálmar segir þá Helga hafa undirbúið sig vel fyrir
gerð þáttanna og ekki viljað fara út í gerð þeirra nema
allt væri á hreinu. „Viðtökurnar hafa verið svakalegar.
Við erum búnir að vera í fyrsta eða öðru sæti á lista
Apple síðan við byrjuðum. Það eru rétt yfir 20.000
manns sem hafa hlustað á þættina,“ segir Hjálmar.
Hann útilokar ekki að þeir fái gesti til sín í þáttinn þó að
aðaláherslan verði á þá tvo.
Þættina má finna á Spotify, hjá Apple, á Soundcloud
og geta áhugasamir bæði horft á þættina í heild sinni
sem og styttri innslög á Facebook-síðu þáttarins.
Gleðigjöfunum og vinunum Helga Jean og Hjálmari Erni virðist hafa tekist vel til í nýjum hlaðvarpsþáttum sínum.
Hvítvínskona og miðilsfundur
Nýir hlaðvarpsþættir með þá Helga Jean Claessen og Hjálmar Örn
Jóhannsson innanborðs eru vinsælir meðal hlaðvarpsþyrstra Íslendinga.
„Svo hrópaði hann (á íslenzku
auðvitað): Komið hingað,
baunadjöflar, ef þið þorið: En
enginn þorði, enda hafði mað-
urinn vit á að ávarpa landslýð á
íslenzku, en ekki dönsku,“ segir í
bréfi til Velvakanda 13. júlí 1969.
Sendandi bréfsins, sem skrifar
undir nafninu „Heimkominn“,
var á gangi með eiginkonu sinni
á Strikinu í Kaupmannahöfn í
Danmörku þegar hann heyrði
einkennilegan söng sem kom þó
kunnuglega fyrir eyru.
„Við héldum fyrst að þarna
væri einhver hippíi á ferð gaul-
andi en þegar nær kom sáum við
skrítna sjón. Vel klæddur og
snyrtilegur maður, en mjög
drukkinn, stóð hnarreistur á
götuhorni, veifaði rommflösku,
eins og taktstokki og söng
„Aldrei skal ég eiga flösku“,“
segir Heimkominn og bætir við
að konan hans hafi skammast sín
fyrir að vera Íslendingur á þess-
ari stundu og viljað forða sér.
Að sögn Heimkomins byrjaði
einn hippinn að safna peningum
fyrir kauða en þá var eins og
runnið hefði af honum ölæðið og
hann forðað sér.
Hann endar svo söguna: „Mest
brá okkur þegar við sáum allt í
einu dauðskelkaða konu fara í
humáttina á eftir honum, sýni-
lega eiginkonu hans. Skemmti-
leg utanlandsferð fyrir hana.“
GAMLA FRÉTTIN
Ofurölvi
á Strikinu
Betra er að gá að sér þegar á að fá sér neðan í því í utanlandsferðum.
Morgunblaðið/Jim Smart
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Halldór Armand Ásgeirsson
rithöfundur
Nihad Ðedovic
körfuknattleiksmaður
Zlatan Ibrahimovic
knattspyrnumaður
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
MENTORE model 3052
L 201 cm Áklæði ct. 70 Verð 389.000,-
L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-