Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 ALLTAF KLÁRT Í ÞRIFINAJAX NÚ FÆRÐU AJAX með matarsóda og sítrónu og AJAX með ediki og eplum Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi hreint HM U19 karla Leikið í Norður-Makedóníu: D-riðill: Þýskaland – Ísland................................22:26 Brasilía – Portúgal ................................29:36 Serbía – Túnis........................................23:25  Lokastaða í riðlinum: Portúgal 10, Þýskaland 8, Ísland 6, Túnis 4, Serbía 2, Brasilía 0. Ísland mætir Japan í 16-liða úr- slitum á morgun.  EM U16 karla B-deild í Svartfjallalandi: C-riðill: Danmörk – Sviss ...................................72:52 Úkraína – Hvíta-Rússland ...................86:65 Svartfjallaland – Ísland .......................:73:59  Danmörk 8, Svartfjallaland 6, Úkraína 6, Ísland 5, Hvíta-Rússland 4, Sviss 4. Ísland mætir Úkraínu í 5. umferð í dag.  Arnór Smárason var áberandi í 3:2-heimasigri Lillestrøm á Mjøndalen í norsku úrvals- deildinni í fót- bolta í gær. Arn- ór skoraði fyrsta mark liðsins úr víti á 13. mínútu og lagði upp ann- að markið á 36. mínútu. Lillestrøm er í níunda sæti deildarinnar með 21 stig eftir 17 leiki. Arnór er kom- inn með þrjú mörk á leiktíðinni. Arnór skoraði og lagði upp Arnór Smárason ÁRBÆR Kristján Jónsson kris@mbl.is Ekki er auðvelt að átta sig á því hver örlög Fylkis verða þegar Pepsí Max- deild karla í knattspyrnu lýkur í haust. Liðið er með 50% árangur eft- ir sextán umferðir. Eftir 2:1 sigur gegn Grindavík í gær hefur liðið unnið sex leiki, tapað sex og gert fjögur jafntefli. Liðið þokaðist frá fallsvæðinu því Grindavík er í næstneðsta sæti með 17 stig. Er Fylkir því fimm stigum fyrir ofan fallsæti en aðeins þremur frá 3. sætinu sem FH er komið í eins og frægt er orðið. Segir þetta auðvit- að mikið um það hvernig deildin hef- ur spilast. KR og ÍBV skera sig úr í efsta og neðsta sæti en að öðru leyti er lítill munur á liðunum. Einungis var um fimmta tap Grindvíkinga að ræða en þeir hafa hins vegar aðeins unnið þrjá leiki og mörkin eru ekki nema þrettán í leikjunum sextán. Þar sem liðið hef- ur verið bitlítið í sókninni í sumar þá er agalegt fyrir það að lenda 2:0 undir eftir korter líkt og gerðist gegn Fylki í gær. Agaleg byrjun fyrir Grindavík Grindvíkingar hafa varið mark sitt mjög vel í sumar en vörnin opn- aðist nokkrum sinnum illa á fyrsta korterinu í gær. Geoffrey Castillion reyndist Grindvíkingum erfiður og slapp tvívegis í gegn í fyrri hálfleik. Í annað skiptið skaut hann í þverslána en í hitt skiptið sá Vladan Djogatovic markvörður Grindavíkur við honum. Castillion skoraði hins vegar úr víti strax á 4. mínútu sem Ragnar Bragi Sveinsson náði í. Á 15. mínútu bætti Hákon Ingi Jónsson við marki eftir góða fyrirgjöf Daða Ólafssonar frá vinstri. Í síðari hálfleik gáfu Fylkismenn eftir og Grindvíkingar voru mun meira með boltann. Þeir sköpuðu sér ekki mörg dauðafæri og ákafinn virtist ekki mikill þegar þeir sóttu. Stefán Ljubicic var þó nokkuð sprækur eftir að hann kom inn á sem varamaður og hann skallaði í stöng- ina á 78. mínútu. Mark Grindavíkur kom svo seint að Grindvíkingum gafst ekki tími til að fylgja markinu eftir. Uppbót- artíminn var nánast liðinn þegar annar varamaður, Sigurjón Rún- arsson, hafði betur í baráttu við Helga Val Daníelsson í teignum og skallaði í netið af stuttu færi eftir aukaspyrnu Diego Diz frá hægri. Grindvíkingar eru aðeins tveimur stigum á eftir næstu liðum en þeir þurfa að vera beittari til að vinna leiki. Hvort verður Fylkir í efri eða neðri hlutanum?  Árbæingar mjökuðu sér frá fallsvæðinu með sigri  Grindavík í fallsæti Morgunblaðið/Eggert Skoraði Geoffrey Castillion með boltann. Erfitt er að átta sig á hvað Grindvíkingarnir fyrir aftan eru að gera. 1:0 Geoffrey Castillion 4. (v) 2:0 Hákon Ingi Jónsson 15. 2:1 Sigurjón Rúnarsson 90. I Gul spjöldGeoffrey Castillion. (Fylki) I Rauð spjöldEngin. Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 8. Áhorfendur: 649. FYLKIR – GRINDAVÍK 2:1 MM Daði Ólafsson (Fylki) M Ólafur Ingi Skúlason (Fylki) Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki) Geoffrey Castillion (Fylki) Elias Tamburini (Grindavík) Diego Diz (Grindavík) Pavel Ermolinskij, landsliðsmaður í körfubolta, hefur náð samkomulagi við Val og mun hann leika með liðinu á næsta tímabili samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Pavel hefur leikið með KR frá árinu 2013 og orðið Ís- landsmeistari sex ár í röð. Hann varð einnig bikarmeist- ari í þrígang með KR-ingum og Íslandsmeistari árið 2011. Pavel lék sem atvinnumaður í Frakklandi og á Spáni frá 2003 til 2010. Hann lék í Svíþjóð frá 2011 til 2013. Pavel er mikilvægur hlekkur í íslenska landsliðinu og lék með liðinu á EM 2015 og 2017. Hann átti góðan leik í 83:82-sigrinum á Sviss í forkeppni EM 2021 á laugardag- inn var. Pavel skoraði 6,2 stig að meðaltali með KR á síðustu leiktíð og tók 5 fráköst. Þá tók hann fram skóna á miðju tímabili. Hann hefur leikið meira en 150 leiki með liðinu. Valur endaði í níunda sæti úrvalsdeildarinnar síðasta vetur og var að- eins tveimur stigum á eftir Grindavík og sæti í úrslitakeppninni. johanningi@mbl.is Pavel sagður á leið til Vals Pavel Ermolinskij Bandaríska fimleikastjarnan Simone Biles afrekaði nokkuð sem engum hefur tekist í tæp sjötíu ár þegar hún keppti á bandaríska meistaramótinu í fimleikum í Kan- sas um helgina. Biles vann þar sinn sjötta titil á meistaramótinu, en aðeins Clara Lomady hefur afrekað það og gerðist það árið 1952. Biles varð einnig fyrsta konan til að fram- kvæma þrefalda skrúfu með tvöföldu stökki aftur á bak (e. triple-twisting, double back manouvre) í gólfæfing- um. Raunar er talið að hún sé fyrsta konan sem reynir yfirleitt að framkvæma slíkt í keppni. Biles er einungis 22 ára gömul en hún er fjórfaldur gullverðlaunahafi frá Ólympíuleikum. Hún sló í gegn svo um munaði í Ríó árið 2016 og var líklega skærasta stjarna leikanna. Biles hefur nú unnið tuttugu mót í röð í Bandaríkjunum. Hún hefur unnið meistaramótið sex sinnum á sjö árum, en hún var ekki með árið 2017. sport@mbl.is Biles í algerum sérflokki Simone Biles KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Extra-völlurinn: Fjölnir – Tindastóll .......18 Norðurálsvöllurinn: ÍA – ÍR ................19.15 Kaplakrikavöllur: FH – Grindavík ......19.15 Varmárvöllur: Afturelding – Haukar..19.15 Kópavogsvöllur: Augnablik – Þróttur R. .20 4. deild karla: Stokkseyrarvöllur: Stokkseyri – GG........19 Hertz-völlurinn: Fenrir – Berserkir ........20 HANDKNATTLEIKUR Reykjavíkurmót karla: Dalhús: Fjölnir – Valur U..........................20 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.