Morgunblaðið - 16.08.2019, Síða 6
S
pjaldalærdómur er talin árangursrík aðferð fyrir metnað-
arfulla nemendur til að bæði læra og varðveita þekkingu.
Rannsóknir sýna að þegar þú horfir á tiltekna spurningu á
spjaldi og hugsar um svarið er ákveðinn hluti hugarstarf-
semi þinnar virkjaður. Í ferlinu er semsagt ekki bara verið
að leggja á minnið ákveðinn texta heldur reynir heilinn að hugsa hug-
takið frá byrjun til enda, sem skilur eftir sig dýpri vitneskju. Þegar
nemandinn svarar svo spurningunni og metur hvort svarið sé rétt eða
ekki er hann um leið að meta eigin færni á viðfangsefninu. Rannsóknir
hafa líka sýnt að slík þekking á eigin hugsun verði til þess að svarið
fari enn dýpra í minni hans en ella.
Eitt þessara forrita hefur náð sérstökum vinsældum vestanhafs en
það er Anki-forritið,
sem hægt er að nota í
bæði tölvum og síma.
Þeir nemendur sem
kjósa að glósa á spjöld
gætu haft áhuga á
Anki-appinu. Anki,
sem er japanska orðið
yfir iðjuna að leggja
eitthvað á minnið, gerir
notendum kleift að búa
til sín eigin spjöld upp
úr námsefninu, svo
sem spurningar eða
myndir upp úr texta,
ásamt svörunum, sem
nemandinn svo flokkar
í spjaldastokka eftir
viðfangsefni. Nemand-
inn flettir í gegnum
stokkana, svarar eftir
bestu getu og metur hversu erfitt honum þótti spjaldið. Við lok hverr-
ar tarnar hefur forritið safnað saman gögnum um hversu vel notand-
inn þekkir hvert spjald og prófar nemandann í því sem hann sjálfur
telur sig eiga erfiðast með að muna. Ef nemandinn gerir villu á einu
spjaldi kemur sama spurning upp stuttu síðar og tryggir þannig að
hann læri það sem hann átti í mestu erfiðleikum með og beinir athygli
hans í rétta átt.
Dæmi um atriði sem eru tilvalin í appið eru tungumál, landafræði,
líkamspartar eða sjúkdómar (appið er mikið notað meðal læknanema í
Bandaríkjunum).
Vissulega er slík spjaldagerð vinna þar sem nemandinn þarf að
setja upp eigin spjöld, gera þau vel og fara yfir þau daglega. Já, dag-
lega. En minnislærdómur gengur einmitt út á endurtekningu og þar
kemur appið að góðum notum.
Önnur forrit sem vert er að benda á sem einnig ganga út á notkun
slíkra spjalda eru til dæmis forritin iStudious, Brainscape og QuizLet.
Hægt er að nota Anki-forritið á mis-
munandi hátt bæði í tölvum og síma.
Minnislær-
dómur þarf
ekki að vera
leiðinlegur
Lærdómsforrit hverskonar eru sniðug leið
til að fanga athygli ungmenna og gera lær-
dóminn bæði skemmtilegan og gagn-
virkan. Börn og unglingar í dag eyða mikl-
um tíma í snjallsímum og smáforritum og
því vel í stakk búin til að nýta sér slík forrit
og bæta lærdómstækni sína.
Nína Guðrún Geirsdóttir | ninagudrun@gmail.com
Anki-forritið er mikið
notað af læknanemum.
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Tækifærin
eru
endalaus!
Kynntu þér öðruvísi og
spennandi nám hjá okkur:
Langar þig að prófa eitthvað annað?
Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt,
hagnýtt og öðruvísi nám á framhaldsskólastigi.
Námið er hagnýtt tveggja ára nám, sem byggt
Tækni Hönnun Nýsköpun Framkvæmd
er upp á óvenjulegan, persónulegan
og umfram allt – spennandi máta.
Kynntu þér námsleiðirnar okkar á fiskt.is
– þar sem tækifærin eru endalaus!