Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Landsmennt
Styrkur þinn
til náms
Landsmennt er fræðslusjóður samtaka atvinnulífsins
og verkafólks á landsbyggðinni.
Sjóðurinn styrkir starfsmenntun beint til fyrirtækjanna sjálfra.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Landsmenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.landsmennt.is
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • landsmennt@landsmennt.is
Mismun-
andi út-
færslur
á MBA-
námi
Í dag er MBA-nám í boði við
háskóla um allan heim en
ólíkt snið er á náminu eftir
löndum og háskólum. Námið
við HÍ myndi flokkast sem
„Executive MBA“. „Í Bretlandi
og Bandaríkjunum er sums
staðar boðið upp á eins árs
MBA-nám í fullu námi (e. full
time) og yfirleitt miðað að
þörfum yngri nemenda sem
eru nýkomnir úr grunnnámi í
háskóla og vilja styrkja sig
áður en þeir fara út á vinnu-
markaðinn,“ útskýrir Svala.
„„Executive“ MBA er sniðið
að fólki sem þegar er á
vinnumarkaði og ýmist orðið
stjórnendur eða með auga-
stað á stjórnandastöðu.
Námið fer þá fram með vinnu
og hjá HÍ er kennt aðra
hverja helgi frá 9 til 5 föstu-
daga og laugardaga.“
Loks er svokallað „global
MBA“ þar sem nemendur
taka námslotur víða um heim.
Námið hjá HÍ er þannig að
hluta, þar sem nemendur
taka tvö námskeið erlendis,
en hópurinn ferðast bæði til
Yale í Bandaríkjunum og
IESE á Spáni og situr stremb-
in MBA-námskeið frá morgni
til kvölds. „Annars getur
„global MBA“-gráða verið
þannig að nemandinn situr
fyrirlestra í Tókýó eina lotu, í
Sjanghaí þá næstu, svo í
New York og því næst í Lond-
on, til að fá alþjóðlega innsýn
og kynnast sem fjölbreytt-
ustum mörkuðum, skólum
og menningu.“
vinnumarkaði að námi loknu. „Við gerum kann-
anir til að greina hverju námið skilar og hafa hátt í
70% þeirra sem hafa útskrifast hjá okkur fengið
launahækkun og/eða stöðuhækkun í kjölfarið. Þá
segja 95% að þeim þyki námið hafa aukið færni
þeirra í starfi.“
Meðalaldur nýnema í MBA-námi HÍ í vetur er
43 ár. Margir þeirra hafa víðtæka reynslu úr at-
vinnulífinu og hafa þegar lokið meistaragráðu og
jafnvel doktorsgráðu.
Klár í þær áskoranir sem
stjórnendur þurfa að glíma við
Komið er víða við í náminu og kafað ofan í alla
mikilvægustu þætti stjórnunar, til að mynda
hvaða eiginleikum góður leiðtogi þarf að búa yfir
til að ná árangri. „Nemendur læra m.a. um sjálf-
bærni í rekstri, nýsköpun og fjármál auk þess að
fá þjálfun í miðlun upplýsinga svo þeir eigi ekki í
nokkrum vanda með að koma fram opinberlega.
Við leggjum einnig áherslu á að undirbúa nem-
endur til að takast á við þær áskoranir sem ný
tækni, aukin sjálfvirknivæðing og sífelldar breyt-
ingar hafa í för með sér,“ útskýrir Svala, en MBA-
nám HÍ fer fram í lotum, föstudag og laugardag,
tvisvar í mánuði. Nemendur sækja sína vinnu þess
á milli en þurfa að semja við vinnuveitandann um
að fá að vera fjarverandi þegar sækja þarf náms-
loturnar og fá þann sveigjanleika sem þeir þarfn-
ast til að sinna lestri kennslubóka og verkefna-
vinnu.
En væri ekki hægt að öðlast sömu færni með því
t.d. að sitja vel valin endurmenntunarnámskeið?
„MBA-námið fer mun dýpra ofan í störf stjórn-
andans, og við útskrift hafa nemendur í höndunum
nýja meistaragráðu sem er alþjóðlega viðurkennd
og mikils metin í atvinnulífinu,“ svarar Svala.
Sambönd um allt atvinnulífið
Þá öðlast nemendur meira en dýrmæta þekk-
ingu. „Fyrir marga skiptir ekki síður máli hve gott
tækifæri MBA-námið er til að stækka og styrkja
tengslanetið. Þau tvö ár sem námið tekur starfa
nemendur náið saman og mynda öflugt tengslanet
sín á milli, en verða um leið hluti af stærra samfé-
lagi útskrifaðra MBA-nema og leiðum við núver-
andi og fyrrverandi nemendur saman á fjöl-
breyttum viðburðum.“
Hver háskóli hefur sínar áherslur í MBA-
náminu og segir Svala að það fari eftir mark-
miðum hvers og eins hvaða skóla er best að velja.
Hún segir að mörgum þyki það mikill kostur við
MBA-námið hjá HÍ að þar fer kennslan að mestu
fram á íslensku, en kennt á ensku í námslotunum
við Yale og IESE. Þá sé námið sniðið að starfsum-
hverfi íslenskra fyrirtækja og stofnana og þeim
reglum sem þau búa við. „Ef fólk á þess kost að
fara í nám erlendis mæli ég alltaf með því, og er
fengur að því fyrir atvinnulífið að íslenskir stjórn-
endur sæki sér menntun sem víðast. En að stunda
námið hér á landi er á margan hátt hentugra og
veldur minni röskun á vinnu og fjölskylduhögum.
Eftir að hafa kynnt mér MBA-nám í fremstu skól-
um í heimi get ég staðfest að nemendur í MBA-
nám við HÍ eru að fá virkilega góðan undirbún-
ing.“
Morgunblaðið/Hari
Stjórnandi þarf að geta
haldið mörgum boltum
á lofti og hafa breiða
þekkingu á öllum hlið-
um fyrirtækjarekstrar.
E
rla segir að krökkunum sé
raðað í hópa eftir getu þar
sem hinum ýmsum þjóð-
ernum er blandað saman.
„Námið byggist upp á
skemmtilegum kennslustundum þar
sem lögð er áhersla á tal, auk þess sem
þau vinna saman í hópum með það að leið-
arljósi að styrkja sjálfsvitund, sjálfseflingu
og menningarlæsi,“ segir Erla.
Hópurinn sem fór út á vegum Erlu Ara síðastliðið
sumar myndaði til dæmis tengsl við hóp sem kom frá
Valencia á Spáni. „Íslensku og spænsku krakkarnir unnu
saman að ýmsum verkefnum og var ánægjulegt að sjá
gleðina og tengslin sem mynduðust við þessa samvinnu.“
Erla segir það vera mikið atriði að krakkarnir fái að
njóta sín og upplifa sjálfstæði í öruggu umhverfi.
„Þau fá mikla möguleika á að styrkja ensku-
kunnáttu sína og öðlast sjálfstraust í að tala
hana. Allir á vegum skólans eru breskir, bæði
kennarar og þau sem sjá um dagskrána eftir
að hefðbundnum kennslustundum er lokið,
auk þess sem þau þurfa að tala ensku við fjöl-
skylduna sem þau dvelja hjá.
Heimurinn er allra og því er afar mikilvægt
að gera sér grein fyrir því að ekki er allt eins og
heima. Það sem þykir sjálfsagt hér þykir kannski
ómögulegt meðal annarra þjóða og því er um að gera að
öðlast hæfileika til þess að aðlagast og virða siði og
menningu í öðrum löndum,“ segir hún.
Að sögn Erlu má ekki gleyma mikilvægi þess að njóta
lífsins, eignast nýja vini og skemmta sér í leik og námi.
Koma svo heim reynslunni ríkari með góðar minningar
sem seint gleymast.
Enskuskóli Erlu Ara hefur um árabil boðið upp á ferðir til Englands fyrir unglinga
á aldrinum 13-16 ára þar sem þau stunda enskunám í Kent School of English.
Marta María | mm@mbl.is
Mikilvægt að
efla sjálfstraustið
Erla
Aradóttir