Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 14
Reuters
Reuters
Sue Langley
Stjórnandi sem aftur á móti
kann að halda ró sinni þótt
á móti blási eflir teymið
sem hann hefur í kringum
sig og ef hann kann að ná
fram góðri samkennd í
hópnum fylkir vinnustað-
urinn sér á bak við hann°.
Ekki verður deilt um tilfinninga-
greind Ellen DeGeneres.
Stjórnendur sem tileinka sér
fræði tilfinningagreindar ættu að
geta skapað þægilegri nærveru.
Unga fólkið þjálfar þennan hæfileika ekki nóg
Lesendur kannast eflaust margir við þá staðalmynd að konur séu næmari á tilfinningar en karlmenn og betur
lagið að fást við tilfinningar annarra. Sue segir rannsóknir þvert á móti benda til að kynin standi hér um bil
jafnfætis og bara hægt að greina lítilsháttar mun, þar sem karlar virðast næmari á að greina merki um reiði,
en konur eiga auðveldara með að koma auga á þegar fólk í kringum þær sýni merki depurðar. „Rannsóknirn-
ar segja okkur hins vegar að tilfinningagreind fólks eykst iðulega með aldrinum, enda kennir reynslan okkur
að fást betur við annað fólk og eiga í farsælum samskiptum við samferðamenn okkar.“
Er áhyggjuefni að vísbendingar eru um að tilfinningagreind ungs fólks fari hrakandi og segir Sue að
ástæðan kunni að vera að unga kynslóðin lifi og hrærist í sýndarheimi. „Uppvaxtarár unga fólksins bjóða því
upp á færri tækifæri til að æfa heilbrigð samskipti augliti til auglitis við annað fólk og þroska með því næmni á
alls kyns látbragð og vísbendingar sem segja til um líðan annarra.“
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Vísindin geta kennt okkur ýmislegt um þær tilfinningar sem við finnum og
hjálpað okkur að vinna betur úr þeim. Færni í tilfinningagreind er líka lykillinn
að góðum samskiptum og ómissandi verkfæri fyrir stjórnendur.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Þ
egar allt kemur til alls virðist tilfinningagreind
vera einn mikilvægasti hæfileiki sem stjórn-
andi getur búið yfir. Margar rannsóknir styðja
þá fullyrðingu að næmni og lipurð í mannleg-
um samskiptum hafi meira að segja um árang-
ur stjórnenda en t.d. hve greindir þeir eru eða hvers konar
persónuleika þeir hafa. „Sumar kannanir ganga svo langt
að segja að um og yfir 80% af frammistöðu stjórnenda
byggi á tilfinningagreind,“ segir Sue Langley. „En sjálfri
þykir mér það æði stór fullyrðing og hallast ég frekar að
ítarlegri könnun sem leiðrétti fyrir ótal þætti og fékk það
út að tilfinningagreind skýrði um 36% af árangri hæfra
stjórnenda.“
Sue er stofnandi og framkvæmdastjóri Langley
Group og hefur um árabil sérhæft sig í þjálfun og
kennslu á sviði tilfinningagreindar. Hún er væntan-
leg til Íslands í nóvember og mun kenna námskeiðið
Tilfinningagreind í stjórnun hjá Opna háskólanum í
Háskólanum í Reykjavík. Námskeiðið er öllum opið
og fer skráning fram á vefsíðu Opna háskólans.
Gráta ekki saman í hring
Hún segist oft verða vör við ákveðinn
misskilning á því hvað felst í tilfinninga-
greind og að námskeið hennar snúist alls
ekki um það að sitja í hring og gráta yfir
gömlum sárum. Þess í stað er rýnt í vís-
indin að baki tilfinningunum sem við og
aðrir upplifa, svo að stjórnendur geti
betur skilið og stýrt eigin tilfinningum en
um leið haft betra skynbragð á tilfinningalíf
annarra og þannig byggt upp öflugri vinnu-
stað.
„Tilfinningagreind snýst ekki heldur um að loka á eigin
tilfinningar eða spila með tilfinningar annarra, en ef við átt-
um okkur á því sem gerist í líkama okkar þegar alls kyns
tilfinningar gera vart við sig getum við t.d. tekist betur á
við áföll og neikvæða líðan, og jafnframt fengið meira út úr
jákvæðum tilfinningum og góðum augnablikum,“ útskýrir
Sue og bendir á að stjórnendur sem hafa litla sem enga
stjórn á tilfinningum sínum endist oft ekki lengi í starfi eða
fæli frá sér gott fólk. „Stjórnandi sem aftur á móti kann að
halda ró sinni þótt á móti blási eflir teymið sem hann hefur í
kringum sig, og ef hann kann að ná fram
góðri samkennd í hópnum fylkir vinnu-
staðurinn sér á bak við hann.“
Stjórnendur sem hafa náð góðum
tökum á tilfinningagreind virðast líka
ná að skapa betri menningu á vinnustað.
„Rannsókn sem Gallup gerði árið 2016
leiddi í ljós að um 70% af vinnustaða-
menningu mótast af því hvernig stjórn-
andinn gefur tóninn,“ segir Sue.
Allir geta lært að átta sig
betur á eðli tilfinninga og nýtt
þá þekkingu til að standa bet-
ur að vígi bæði í einkalífi og
starfi. „Það eru góðu frétt-
irnar; að á meðan það væri
óvinnandi verk fyrir flesta
að ætla að t.d. verða mun
greindari stjórnandi, eða
þróa allt annan og stjórnun-
arvænni persónuleika, þá má á
skömmum tíma ná miklum fram-
förum í tilfinningagreind.“
Sjónvarpsstjarnan
geðþekka, Oprah
Winfrey, er gott dæmi
um manneskju með
fádæma góða
tilfinninggreind.
Tilfinningagreind
snýst ekki um að spila
með tilfinningar annarra
Þín leið
til fræðslu
Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga
og stofnana þeirra á landsbyggðinni.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is
Sveitamennt
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is