Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 24
Hún er nemendadrifin og felst í
stuttum tímamældum æfingasprett-
um sem eru endurteknir þar til nem-
andinn nær fyrirfram ákveðnu mark-
miði og hefur nýja kunnáttu og færni
á hraðbergi. Nemendur skrá jafn-
óðum hvað þeir bæta sig á svonefnt
staðlað hröðunarkort (Standard Ce-
leration Chart) sem er óaðskilj-
anlegur hluti „Precision Teaching“.
Hröðunarkortið mælir árangur
stýrðu kennslunnar og sýnir hvað
nemandanum fer fram, hversu hátt
hann nær og hversu hratt það gerist.
Hröðunarkortið svarar kennslu-
fræðilegum spurningum kennarans,
eins og hvað eigi að kenna tiltekið at-
riði lengi, eða hvort nemandinn sé á
réttum stað í námsefninu.“
G
uðríður Adda hefur
þróað efnið í starfi og
var gerð þess á sínum
tíma styrkt af Hag-
þenki og Þróunarsjóði
námsgagna eftir góða umsögn fag-
félaga. Kennarar sem nota Læs í vor
og kenna með bandarísku aðferðun-
um „direct instruction“ og „precision
teaching“, stefna að því að nemendur
tvöfaldi færni sína á einni viku eða
sjö skiptum, upp að vissu marki, í því
efnisatriði sem verið er að kenna.
Stundum gengur það þó mun hraðar,
og mörg dæmi eru um að afköstin
þrefaldist í einum kennslutíma,“ seg-
ir Guðríður Adda en næsta námskeið
hefst helgina 7. - 8. september.
Aðferðirnar kallar hún „stýrð fyr-
irmæli“ og „hraðfærniþjálfun“.
„Brýnt er að fylgja nákvæmlega
leiðbeiningum um framsetningu
stýrðu fyrirmælanna sem fela í sér
kennarastýrða innlögn nýrra þekk-
ingaratriða. Kennsla með stýrðum
fyrirmælum er einnig árangursrík
fyrir hópa og heila bekki og er sam-
ofin góðri bekkjarstjórnun. Henni
vindur fram með „sýna – leiða –
prófa“ í föstum, hröðum takti þar
sem nemendur svara í kór. Allir
nemendur hafa því oft heyrt rétta
svarið og tekið þátt í því þegar þeir
snúa sér að hraðfærniþjálfuninni.
Hröðunarkortið er ekki gagna-
geymsla heldur lifandi stýritæki
kennarans, á því byggir hann
ákvarðanir sínar.
„Með þessu fyrirkomulagi eru allir
nemendur sívirkir í tímunum og lítið
svigrúm gefst fyrir truflanir og aðra
ótæka hegðun, þannig að tíminn nýt-
ist vel og kennarinn er laus undan því
álagi sem agavandamál skapa. Hann
fær einnig ótal tækifæri í hverjum
tíma til að hrósa nemendum sem svo
aftur styrkir sjálfsmynd þeirra og
vellíðan.
Aldrei hefði mér að óreyndu dottið
í hug að ég ætti eftir að fá brennandi
áhuga á lestrarkennslu. En í lok tí-
unda áratugarins starfaði ég við at-
ferlis- og kennsluráðgjöf í skólum og
var málum barna vegna ótækrar
hegðunar vísað til mín. Ég hjó eftir
að börnin voru nær öll á aldrinum 10
til 12 ára gömul. Við nánari skoðun
kom í ljós að þau áttu í miklum erfið-
leikum með námið, voru hvorki vel
læs né skrifandi og réðu heldur ekki
við stærðfræðina. Með öðrum orðum,
þessi börn höfðu ekki vald á þeirri
færni sem miðað er við að þau hafi
eftir fjögur ár í grunnskóla og gátu
þar af leiðandi ekki tekist á við nýjar
áskoranir með þyngra námsefni og
miklum texta.
Svo vildi til að á þessum árum
þekkti ég þegar mæligögn um ein-
stakan árangur kennsluaðferðanna
„Direct Instruction“ og „Precision
Teaching“ sem birst höfðu í tímarit-
Tvöfalda færni sína á einni viku
Læs í vor er námsefni til að
kenna lestur frá grunni og
fylgir efnið með í verklegum
lestrarkennslunámskeiðum
fyrir kennara sem Guðríður
Adda Ragnarsdóttir atferl-
isfræðingur og kennari
hefur haldið síðustu ár.
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Guðríður Adda Ragnarsdóttir
atferlisfræðingur og kennari
stendur fyrir námskeiðinu
Læs í vor sem hefur hjálpað
mörgum einstaklingum að
ná tökum á lestrinum.
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
OPIÐ
fyrir umsóknir
Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla á
Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Ástralíu, Nýja Sjálandi,
Kanada og í Bandaríkjunum.
Nám í slíkum skóla er einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hug-
mynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi
er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar.
Nám erlendis í hönnun, miðlun, sjónlistum, stjórnun, sviðslistum, tísku,
ferðaþjónustu eða viðskiptum, opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“
fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði.
Háskólanám erlendis
á sviði skapandi greina
Nám erlendis
opnar þér nýjan
heim, að heiman.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | s 555 1212 | handverkshusid.is
VILT ÞÚ SKAPANDI
ÁHUGAMÁL?
Fjölmörg námskeið í handverki – Skráning, upplýsingar
og myndir á www.handverkshusid.is