Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.09.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 23.09.2019, Qupperneq 6
STJÓRNSÝSLA Tillaga til þings- ályktunar um skipun rannsóknar- nefndar til að kanna starfshætti ákæruvalds og dómsvalds í Guð- mundar- og Geirfinnsmálum er í lokavinnslu á Alþingi. Samkvæmt greinargerð með tillögunni er tilgangur hennar að „fá loksins skiljanlegan botn í hin gömlu Guð- mundar- og Geirfinnsmál með rannsókn á mögulegri misbeitingu valds og ólögmætum aðferðum, þeim veigamiklu þáttum sem rétt- arkerfið hefur aldrei treyst sér til að taka til skoðunar.“ Fyrsti f lutnings- maður tillögunnar er Helga Vala Helgadóttir, en samf lokksmenn hennar í Samfylkingunni f lytja málið með henni. Í tillögunni er lagt til að skipuð verði sérstök þriggja manna rann- sóknarnefnd, í samræmi við lög um rannsóknarnefndir, „sem geri sjálf- stæða og óháða rannsókn á starfs- háttum ákæruvalds og dómsvalds í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Nefndin kanni hvort og þá hvaða meinbugir voru á starfsháttum ákæruvalds og lögreglu við með- ferð málanna sem og málsmeðferð fyrir dómi. Rannsóknin taki einnig til aðkomu þýska rannsóknarlög- reglumannsins Karls Schütz.“ Í greinargerð með tillögunni eru tiltekin nokkur dæmi sem f lutn- ingsmenn telja að rannsaka þurfi nánar; svo sem ítrekuð brot á réttar- farsreglum, fjarvistarsannanir sem ekki voru kannaðar og fölsuð gögn sem lögð voru fram í sakadómi. Flutningsmenn nefna einnig síðari tíma dæmi af aðdraganda endur- upptökunnar. Vísað er til gagna um meinta refsiverða háttsemi rannsakenda sem endurupptöku- nefnd er sögð hafa stungið undir stól en nefndin féllst ekki á að refsi- verð háttsemi starfsmanna réttar- kerfisins væri grundvöllur endur- upptöku. Þetta þurfi að rannsaka. Þá er einnig lögð áhersla á að rannsaka þurfi sérstaklega mögu- legan þátt rannsakenda í því að þrjú ungmennanna, sem sakfelld voru á sínum tíma, báru sakir á svokallaða Klúbbmenn. En þau hafa enn ekki verið sýknuð af þeim röngu sakar- giftum sem þau voru sakfelld fyrir. – aá Lífsgæðasetur St. Jó., Suðurgötu 41, Hafnarfirði gengið inn Hringbrautarmegin 24. september - fræðsla – sjálfsvíg kl. 20:00 - 21:30 Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir flytur erindið. Að missa í sjálfsvígi, tekist á við sorgina. Allir velkomnir. Kynning á hópastarfi og kaffisopi. Nánar sími: 551-4141 sorgarmidstod@sorgarmidstod.is Hægt er að framleiða lífdísilolíu úr steikingarolíu og öðrum úrgangi sem safnað er á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR UMHVERFISMÁL Ein milljón lítra af olíu er notuð í Eyjafirði sem hægt er að skipta út fyrir lífdísil á mjög auðveldan hátt. Unnið er að undir- búningsvinnu innan Vistorku á Akureyri í samstarfi við Moltu að þessum orkuskiptum. Áætlun gengur út á að kostnaður við orku- skiptin borgi sig upp á aðeins fimm- tán árum. Þessi ein milljón lítra er olía sem notuð er í Grímsey, í framleiðslu Sæplasts á Dalvík, í Malbiksfram- leiðslu og í ferjusiglingum í firðin- um. Þar er notað jarðefnaeldsneyti sem auðveldlega mætti skipta út fyrir lífdísil. Hægt er að framleiða þessa olíu í firðinum úr lífrænum úrgangi sem til fellur og steikingar- olíu sem er safnað á Akureyri og væri hægt að framkvæma orku- skiptin á innan við tveimur árum. Guðmundur Haukur Sigurðar- son, framkvæmdastjóri Vistorku á Akureyri, segir þetta mjög auðvelda framkvæmd í sjálfu sér þar sem tæknin sé fyrir hendi. „Við sjáum fyrir okkur að vinna aðallega líf dísil úr fitu sem kemur með sláturúr- gangi til Moltu. Þannig mætti vinna stærstan hluta þess. Við gerum ráð fyrir að verkefnið muni kosta um fimm hundruð milljónir króna og greiðast upp á um 15 árum. Því er þetta hagkvæmt verkefni sem og að minnka losun í Eyjafirði,“ segir Guðmundur Haukur Af þessu yrði ávinningurinn skýr því eitt kíló af eldsneyti losar um 2,6 kíló af koltvísýringi. Því myndi þessi orkuskipti þýða minnkandi losun sem nemur um 2.600 tonn- um. „Það jafngildir að um þúsund bifreiðar yrðu teknar af götunum,“ bætir Guðmundur Haukur við. „Raf bíll kostar um fjórar milljónir að meðaltali. Þúsund bílar kosta um fjóra milljarða en þetta verkefni um 500 milljónir og það borgar sig upp hratt.“ Molta vinnur nú að því að finna nýja staðsetningu fyrir framleiðslu sína í Eyjafirði með það fyrir augum að geta komist í eigið húsnæði þar sem hægt er að byggja við. Þessi framleiðsla gæti því hafist innan fárra ára. sveinn@frettabladid.is Ætla að framleiða olíu úr sláturfitu í Eyjafirði Hugmyndir um aukna sjálfbærni í Eyjafirði eru langt komnar. Hægt að fram- leiða um eina milljón lítra af lífdísil úr lífrænum úrgangi sem fellur til á svæð- inu og minnka þannig losun um sem nemur akstri eitt þúsund heimilisbíla. Við gerum ráð fyrir að verkefnið muni kosta um fimm hundruð milljónir króna og greiðast upp á um 15 árum. Guðmundur Haukur Sigurðarson, framkvæmda- stjóri Vistorku Rannsóknarlögreglumaðurinn Karl Schütz ásamt hinum fræga Leir- finni. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Vilja rannsókn á ákæru- og dómsvaldi Samkvæmt greinargerð er tilgangurinn að fá botn í þá þætti Guðmundar- og Geirfinnsmála sem réttar- kerfið hefur ekki treyst sér til að skoða. Hassan Rouhani, forseti Írans. NORDICPHOTOS/ GETTY ÍRAN Hassan Rouhani, forseti Írans, segir hernaðaruppbyggingu Banda- ríkjanna við Persaflóa ógna friði á svæðinu. Í sjónvarpsávarpi í gær sagði hann að erlendur heraf li á svæðinu hefði alltaf í för með sér þjáningar og hörmungar. Hyggst hann kynna nýjar friðarumleitanir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á morgun. Nú þegar eru um þúsund bandarískir hermenn í Sádi- Arabíu. Um helg- ina sagði Mark Esper va r na r- málaráðherra að f leir i her menn yrðu sendir þang- að í kjölfar dróna- árása Jemena á olíu- vinnslustöðvar fyrir skemmstu, en bæði Sádi-Arabar og Bandaríkja- m e n n s a k a Írani um að bera ábyrgð á þeim. Á fundi SÞ munu Sádi-Arab- ar fara fram á refsiaðgerðir gegn Írönum, sem neita alfarið að bera ábyrgð á árásunum. Bandaríkja- menn vilja hins vegar forðast stríð í lengstu lög til að valda ekki meiri óstöðugleika á svæðinu. – ab Kynnir friðarumleitanir við Persaflóa á morgun Fjölgað verður í herliði Bandaríkjanna við Persa- flóa á næstunni í kjölfar drónaárása á olíuvinnslu- stöðvar. Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB. NORDICPHOTOS/AFP BRETLAND Koma verður á landa- mæraeftirliti milli Írlands og Norð- ur-Írlands ef ekki verður samið um útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu. Þetta sagði Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda- stjórnar ESB, í viðtali við Sky í gær. Þar hafnaði hann einnig alfarið því að ESB beri einhverja ábyrgð ef illa fer við útgönguna, það hafi „ekki verið ESB sem fann upp Brexit“. Landamærin á Írlandi hafa verið eitt helsta þrætueplið í tengslum við útgönguna. Boris Johnson, forsætisráðherra Bret- lands, hefur hafnað því að hafa svokallaða bak- tryggingu á landamær- unum. Dominic Raab utanríkisráðherra tekur í sama streng og segir það ótækt að aðrar reglur verði í gildi á Norður- Írlandi en annars staðar í landinu. Unnið sé hörðum höndum að sam- komulagi við ESB í þá átt. J u n c k e r segir ESB hins vegar verða að t r yg g ja eigið öryggi. „ Dý r sem kemur frá Norður-Írlandi til Írlands án landa- mæraeftirlits er komið eftirlitslaust inn í ESB. Það mun ekki gerast. Við verðum að verja heilbrigði og öryggi þegna okkar.“ – ab Landamæraeftirlit ef samningar nást ekki Við verðum að verja heilbrigði og öryggi okkar þegna. Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 D 7 -1 0 E 4 2 3 D 7 -0 F A 8 2 3 D 7 -0 E 6 C 2 3 D 7 -0 D 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.