Fréttablaðið - 23.09.2019, Side 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Loftstokkahreinsunin K2 sérhæfir sig í hreinsun á loft-stokkum, loftræstikerfum og
eldhúsháfum fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið
var stofnað árið 1999 og hefur
síðan þá byggt upp mjög gott orð-
spor innan iðnaðarins.
„Stór hluti verkefna okkar
kemur vegna meðmæla frá við-
skiptavinum og endurtekinna
viðskipta og við erum staðráðin
í að veita fyrsta flokks þjónustu
á samkeppnishæfu verði,“ segir
Magnús Ásmundsson, verkstjóri
hjá K2. „Súrefni er manninum lífs-
nauðsynlegt og okkar markmið er
að það sé gott andrúmsloft í hverju
einasta rými.
Loftstokkahreinsunin K2 er
auk þess í nánu samstarfi við ýmis
fyrirtæki sem hafa yfir að ráða
viðamikilli sérþekkingu á ýmsum
sviðum loftræstikerfa,“ segir
Magnús. „Með þessu samstarfi
getum við tryggt viðskiptamönn-
um okkar ýmsa sértæka þjónustu
sem hluta af heildarlausn, sé þess
óskað.“
Mikilvægt að hreinsa
loftræstikerfi
„Eins hagnýtt og loftræstikerfi
getur verið, hvort sem það er á
vinnustað, heima eða annars
staðar, þá getur það hæglega
breyst yfir í andstæðu sína ef ekki
er hugað að reglulegu eftirliti og
þrifum á kerfinu,“ segir Magnús.
Þurrt loft og yfir- eða undir-
þrýstingur getur haft víðtæk áhrif
á líðan starfsmanna og viðskipta-
vina,“ segir Magnús. „Með því að
hreinsa reglulega og hafa eftirlit
með loftræstingu má koma í veg
fyrir að slíkt gerist og í mörgum
tilfellum auka afköst og fækka
veikindadögum starfsmanna.
Viðskiptavinir okkar segja
að eftir hreinsun finnist mikill
munur, loftið sé miklu betra og
það sé mun meiri kraftur í loft-
ræstikerfinu,“ segir Magnús.
Nauðsynlegt viðhald
fyrir fjölbýlishús
„Það er eðlilegt að gera úttekt
á loftræstikerfi fjölbýlishúsa
og hreinsa það á 3-5 ára fresti
og við höfum séð um hreinsun
á loftstokkum og loftræsti-
kerfum fjölda fjölbýlishúsa,“
segir Magnús. „Hreinsun fer þá
fram uppi á millilofti eða þar sem
blásarinn er staðsettur.
Um leið er farið inn í hverja
íbúð þar sem allar ristar eru
teknar niður, lagnir hreinsaðar og
ef þess er óskað þá er loftræsting
sótthreinsuð með umhverfisvænu
sótthreinsiefni,“ segir Magnús.
„Við sótthreinsunina myndast
polymer-húð innan á veggi
loftræstikerfisins sem heldur
örverum, bakteríum og öðrum
óþrifnaði í burtu.
Það er lítið ónæði fyrir íbúa
hússins við svona hreinsun og
yfirleitt tekur það ekki meira en
10–15 mínútur að klára hverja
íbúð eftir að búið er að hreinsa
lagnir og blásara frá þaki,“ segir
Magnús. „Fólk finnur gífurlegan
mun á loftinu eftir að það er búið
að hreinsa loftstokkana.“
Húsfélagið í Engihjalla 7 í
Kópavogi segir að hreinsunin
þar hafi skilað miklu. „Fólkið í
blokkinni okkar er mjög ánægt
og við finnum merkjanlegan
mun á loftinu í íbúðunum,“ segir
í umsögn félagsins. „Þetta var
greinilega mjög tímabært verk og
starfsfólk K2 vann það f ljótt og
örugglega.“
Hefur þú hreinsað háfinn
nýlega?
„Loftstokkahreinsunin K2 býður
upp á það besta sem völ er á í dag
í alhliða hreinsun á eldhúsháfum
á heimilum og veitingastöðum,“
segir Magnús. „Það er nauðsyn-
legt er að gera reglulega úttekt á
eldhúsháfum og hreinsa þá einu
sinni eða oftar á ári.
Hér sést hvernig mikil óhreinindi hafa tekið sér bólfestu í loftstokki sem var tengdur eldhúsi. Ef þetta er ekki þrifið getur þetta verið heilsuspillandi.
K2 býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun á loftstokkum og loftræstikerfum. Eftir hreinsun lítur stokkurinn út eins og nýr.
Það er nauðsynlegt að þrífa eldhúsháfa reglulega. Svona lítur háfurinn svo út eftir hreinsunina.
Hér sjást óhreinindi í loftræstikerfi fjölbýlishúss. Það er hægt að anda léttar eftir að K2 kláraði verkið.
Regluleg hreinsun
eldhúsháfa stuðlar að:
n Minni eldhættu
n Kröftugra útsogi
n Lengri líftíma blásara
n Rafmagnssparnaði
n Þægilegra vinnuumhverfi
heimilismanna og starfsmanna
Eftir fyrstu hreinsun bjóðum
við líka upp á að koma og meta
ástand á loftræstingu frá eldhúsi
á nokkurra mánaða fresti, til að
sjá hvað þarf að líða langt á milli
hreinsana,“ segir Magnús. „Það er
ekkert rukkað fyrir þá þjónustu á
höfuðborgarsvæðinu.
Okkar stefna er að vera ávallt
með bestu fáanlegu efni, tæki og
búnað,“ segir Magnús. „Allir okkar
starfsmenn hafa sérhæft sig í þeirri
þjónustu sem við veitum, hvar á
landinu sem er, og ekkert verk-
efni er of stórt eða of smátt fyrir
okkur.“
Loftstokkahreinsunin K2 er með
skrifstofur bæði í Reykjavík og á
Reykjanesinu. Síminn er 557-7000
og vaktsími er 775-7770. Það er
hægt að senda tölvupóst á k2@
k2.is og heimasíðan er www.k2.is.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U RLOFTRÆSTIKERFI OG HITASTÝRINGAR
2
3
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
7
-0
7
0
4
2
3
D
7
-0
5
C
8
2
3
D
7
-0
4
8
C
2
3
D
7
-0
3
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K