Fréttablaðið - 23.09.2019, Side 46

Fréttablaðið - 23.09.2019, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is MAÐUR HELDUR ALLTAF AÐ TIL AÐ VERA SÚPERSTJARNA ÞURFI MAÐUR AÐ VERA LEIKARI Í EINHVERRI HOLLYWOOD-MYND. ÞAÐ ER EKKI RÉTT. KONA AÐ FÆÐA BARN ER TIL DÆMIS SÚPERSTJARNA. Sími: 558 1100 Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 10 – 18 virka daga 11 – 17 laugardaga 13 – 17 sunnudaga 10 – 18 virka daga 11 – 16 laugardaga Ísafjörður Skeiði 1 Ævintýralegt haust í Höllinni www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN Vegna endurnýjunar sýningarrýmis seljum við öll sýningareintök frá Furninova í Reykjavík með 30–40% FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR! AFSLÆTTI RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM PINNACLE LA-Z-BOY hæginda stóll. Dökkbrúnt eða svart leður. Stærð: 84 x 97 x 107 cm 143.992 kr. 179.990 kr. 84.992 kr. 99.990 kr. BELINA Borðstofuborð, viður/hvítt. Stærð: 100 x 170/270 H: 74 cm Stækkanlegt í 270 cm með tveimur 50 cm stækkunum. 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Pétur Óskar lék lögreglumanninn Tryggva í þáttunum vinsælu Ófærð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Leikarinn og tónlistar-maðurinn Pétur Óskar Sigurðsson gaf út lagið Superstar á fimmtudag-inn. Myndband við lagið var frumsýnt sama dag á Miami við Hverfisgötu og er Pétur ánægður með viðtökurnar. Vel mætt á frumsýninguna „Það var fullt út úr dyrum og mikið af góðu fólki sem mætti. Mér alla- vega leið eins og það væri mjög svona innilega klappað í lokin, eins og það kæmi smá frá hjartanu. Þannig að fyrir mitt leyti þá fannst mér ganga mjög vel,“ segir Pétur Óskar, en hann gengur undir listamannsnafninu Oscar Leone þegar hann gefur út tónlist. „Það stóð ekki til að koma með neitt listamannsnafn. Nafnið kom á fundi. Þetta er skírskotun í spagettí- vestraleikstjórann Sergio Leone.“ Pétur segist lengi hafa velt því fyrir sér hvernig myndbandið ætti að vera en allt small einhvern veginn saman þegar hann talaði við vin sinn, leik- stjórann og tónlistarmanninn Einar Egilsson. „Við vorum undir áhrifum frá Once Upon a Time in Hollywood. Hún fjallar að hluta um spagettí- vestra en Tarantino heldur mikið upp á þá og Sergio. Við vildum gera eitthvað mjög myndrænt og leikið,“ en Pétur er menntaður leikari og hefur starfað við það síðustu ár. Stjörnurnar röðuðust rétt „Þannig að þetta er líka hugsað sem útrás fyrir mig eða leikarann í mér. Ég hafði verið að þreifa fyrir mér í einhvern tíma með að gera mynd- band en svo lágu stjörnurnar allt í einu rétt og Einar var akkúrat á leiðinni til landsins frá Los Angeles.“ En um hvað fjallar lagið? „Lagið fjallar um það að allir séu á sinn hátt súperstjörnur. Maður held- ur alltaf að til að vera súperstjarna þurfi maður að vera leikari í ein- hverri Hollywood-mynd. Það er ekki rétt. Kona að fæða barn er til dæmis súperstjarna. Stundum líður manni líka þannig, kannski keyrandi heim í umferð á föstudegi og líður einfald- lega eins og súperstjörnu.“ Lagið snertir líka á eðli ástarinnar. „Ást getur varað í eina nótt eða jafnvel heila eilífð. Lagið fjallar mikið um að lifa í núinu. Svo spilar tunglið líka stórt hlutverk í mynd- bandinu.“ Ekki hættur í leiklistinni Pétur segir að hann sé ekki að taka tónlistina fram yfir leiklistina og ætli í framtíðinni að reyna að sinna hvoru tveggja til jafns. „Einmitt núna er mikið að gera í tónlistinni og ég er að fara strax í hljóðverið aftur á morgun að taka upp. Svo er maður að fá góða æfingu í að koma sér á framfæri og svona, er á fullu að kynna myndbandið á sam- félagsmiðlum. Þetta er ágætis æfing í því.“ Pétur var með hlutverk í þætti í Lúxemborg sem verður frumsýndur eftir örfáa daga. „Þetta eru stórir leikarar þar ytra, serían verður líka sýnd í Þýskalandi. Svo ætla ég að reyna að gefa út annað lag sem fyrst og myndband við. Ég ætla að sinna þessu báðu, ég er alls ekki hættur í leiklistinni. Langar alltaf að leika meira.“ Myndbandið er hægt nálgast á YouTube og lagið Superstar er komið á allar helstu streymisveitur. steingerdur@frettabladid.is Við getum öll verið stúperstjörnur Pétur Óskar Sigurðsson gaf út lagið Superstar á fimmtudag. Um kvöldið var myndband við lagið frumsýnt. Pétur, sem er mennt- aður leikari, stefnir á að sinna leiklistinni og tónlistinni til jafns. 2 3 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 6 -F 8 3 4 2 3 D 6 -F 6 F 8 2 3 D 6 -F 5 B C 2 3 D 6 -F 4 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.