Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 16

Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Loftstokkahreinsunin K2 sérhæfir sig í hreinsun á loft-stokkum, loftræstikerfum og eldhúsháfum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 og hefur síðan þá byggt upp mjög gott orð- spor innan iðnaðarins. „Stór hluti verkefna okkar kemur vegna meðmæla frá við- skiptavinum og endurtekinna viðskipta og við erum staðráðin í að veita fyrsta flokks þjónustu á samkeppnishæfu verði,“ segir Magnús Ásmundsson, verkstjóri hjá K2. „Súrefni er manninum lífs- nauðsynlegt og okkar markmið er að það sé gott andrúmsloft í hverju einasta rými. Loftstokkahreinsunin K2 er auk þess í nánu samstarfi við ýmis fyrirtæki sem hafa yfir að ráða viðamikilli sérþekkingu á ýmsum sviðum loftræstikerfa,“ segir Magnús. „Með þessu samstarfi getum við tryggt viðskiptamönn- um okkar ýmsa sértæka þjónustu sem hluta af heildarlausn, sé þess óskað.“ Mikilvægt að hreinsa loftræstikerfi „Eins hagnýtt og loftræstikerfi getur verið, hvort sem það er á vinnustað, heima eða annars staðar, þá getur það hæglega breyst yfir í andstæðu sína ef ekki er hugað að reglulegu eftirliti og þrifum á kerfinu,“ segir Magnús. Þurrt loft og yfir- eða undir- þrýstingur getur haft víðtæk áhrif á líðan starfsmanna og viðskipta- vina,“ segir Magnús. „Með því að hreinsa reglulega og hafa eftirlit með loftræstingu má koma í veg fyrir að slíkt gerist og í mörgum tilfellum auka afköst og fækka veikindadögum starfsmanna. Viðskiptavinir okkar segja að eftir hreinsun finnist mikill munur, loftið sé miklu betra og það sé mun meiri kraftur í loft- ræstikerfinu,“ segir Magnús. Nauðsynlegt viðhald fyrir fjölbýlishús „Það er eðlilegt að gera úttekt á loftræstikerfi fjölbýlishúsa og hreinsa það á 3-5 ára fresti og við höfum séð um hreinsun á loftstokkum og loftræsti- kerfum fjölda fjölbýlishúsa,“ segir Magnús. „Hreinsun fer þá fram uppi á millilofti eða þar sem blásarinn er staðsettur. Um leið er farið inn í hverja íbúð þar sem allar ristar eru teknar niður, lagnir hreinsaðar og ef þess er óskað þá er loftræsting sótthreinsuð með umhverfisvænu sótthreinsiefni,“ segir Magnús. „Við sótthreinsunina myndast polymer-húð innan á veggi loftræstikerfisins sem heldur örverum, bakteríum og öðrum óþrifnaði í burtu. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur það ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki,“ segir Magnús. „Fólk finnur gífurlegan mun á loftinu eftir að það er búið að hreinsa loftstokkana.“ Húsfélagið í Engihjalla 7 í Kópavogi segir að hreinsunin þar hafi skilað miklu. „Fólkið í blokkinni okkar er mjög ánægt og við finnum merkjanlegan mun á loftinu í íbúðunum,“ segir í umsögn félagsins. „Þetta var greinilega mjög tímabært verk og starfsfólk K2 vann það f ljótt og örugglega.“ Hefur þú hreinsað háfinn nýlega? „Loftstokkahreinsunin K2 býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun á eldhúsháfum á heimilum og veitingastöðum,“ segir Magnús. „Það er nauðsyn- legt er að gera reglulega úttekt á eldhúsháfum og hreinsa þá einu sinni eða oftar á ári. Hér sést hvernig mikil óhreinindi hafa tekið sér bólfestu í loftstokki sem var tengdur eldhúsi. Ef þetta er ekki þrifið getur þetta verið heilsuspillandi. K2 býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun á loftstokkum og loftræstikerfum. Eftir hreinsun lítur stokkurinn út eins og nýr. Það er nauðsynlegt að þrífa eldhúsháfa reglulega. Svona lítur háfurinn svo út eftir hreinsunina. Hér sjást óhreinindi í loftræstikerfi fjölbýlishúss. Það er hægt að anda léttar eftir að K2 kláraði verkið. Regluleg hreinsun eldhúsháfa stuðlar að: n Minni eldhættu n Kröftugra útsogi n Lengri líftíma blásara n Rafmagnssparnaði n Þægilegra vinnuumhverfi heimilismanna og starfsmanna Eftir fyrstu hreinsun bjóðum við líka upp á að koma og meta ástand á loftræstingu frá eldhúsi á nokkurra mánaða fresti, til að sjá hvað þarf að líða langt á milli hreinsana,“ segir Magnús. „Það er ekkert rukkað fyrir þá þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Okkar stefna er að vera ávallt með bestu fáanlegu efni, tæki og búnað,“ segir Magnús. „Allir okkar starfsmenn hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er, og ekkert verk- efni er of stórt eða of smátt fyrir okkur.“ Loftstokkahreinsunin K2 er með skrifstofur bæði í Reykjavík og á Reykjanesinu. Síminn er 557-7000 og vaktsími er 775-7770. Það er hægt að senda tölvupóst á k2@ k2.is og heimasíðan er www.k2.is. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U RLOFTRÆSTIKERFI OG HITASTÝRINGAR 2 3 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 D 7 -0 7 0 4 2 3 D 7 -0 5 C 8 2 3 D 7 -0 4 8 C 2 3 D 7 -0 3 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.