Fréttablaðið - 23.09.2019, Qupperneq 9
Um daginn rataði frétt úr heimi geimvísindanna á síður allra helstu netmiðla
og í hádegisfréttir. Hún lét kannski
lítið yfir sér en var æði stór þegar
maður spáði í það. Líklegt var talið,
að á tiltekinni plánetu í fjarlægu
sólkerfi væri einhvers konar líf. Að
minnsta kosti var talið að þar væru
lífvænleg skilyrði.
Lengi hefur vangaveltan um líf
annars staðar verið á meðal þeirra
stærstu sem mannkynið hefur
glímt við. Þarna var sem sagt sögð
frétt sem markaði viss tímamót í
þeirri viðureign. Ein frétt á meðal
annarra frétta. Ég hugsaði: Svona
gerist þetta. Svona verður fréttin
sögð þegar líf loksins finnst á
öðrum hnöttum. Maður er að
keyra einhvers staðar og Broddi
Broddason segir í fréttum það
vera helst að bandaríska geim-
ferðastofnunin hafi í gær fundið
vitsmunalíf á annarri plánetu.
Verurnar séu grænar og með stór
augu og ílangan haus. Þær séu
búnar að hlusta á tónlistina sem
við sendum þeim út í geiminn fyrir
einhverjum árum og þakki kærlega
fyrir sig. Fólk segir almennt „ja,
hérna“ og „svei mér þá“. Svo kemur
næsta frétt um afla línubáta það
sem af er vetri. Og svo að íþróttum.
Svæði 51
Spurningin um líf á öðrum á
hnöttum er jú á meðal þeirra
stærstu, rétt er það. Þó verð ég að
viðurkenna að mér finnst eins og
þessi spurning hafi aðeins lækkað í
sessi með árunum. Hún hefur misst
mikilvægi sitt.
Á föstudaginn átti sér stað við-
burður í Bandaríkjunum sem hafði
áður verið blásinn mjög upp á sam-
félagsmiðlum. Grallaraspói þar
vestra hafði boðað að þennan dag
skyldi æstur múgur brjótast inn
í hið dularfulla afgirta hersvæði
númer 51 í Nevada (Area 51). Lengi
hafa kenningar verið uppi um
að innan þessara girðinga geymi
bandaríski herinn geimverur.
Þarna sé til dæmis ET til húsa og fái
ekki að hringja heim til sín.
Yfir tvær milljónir manna
boðuðu komu sína. Allt stefndi í
að þörf fólks til að vita fyrir víst að
líf sé á öðrum hnöttum myndi ná
vissum hápunkti. Málið yrði jafn-
vel leyst í eitt skipti fyrir öll.
Það er skemmst frá því að segja
að örfáir mættu þegar á hólminn
var komið. Af fréttum að dæma
virðist viðburðurinn hafa verið
tíðindalítill. Einn var handtekinn
fyrir að pissa. Annar keyrði óvart á
kú og varð miður sín.
Lífið hér
Það er þetta sem ég segi. Spurn-
ingin hefur ekki sama sess lengur.
Í mínum huga lítur dæmið þannig
út, að mér finnst afskaplega líklegt
— eiginlega borðleggjandi — að
á einhverjum þessara þúsunda
milljarða stjarna í alheiminum
sé einhvers konar líf. Annað væri
fáránlegt. Fréttin sem Broddi
myndi lesa í hádegisfréttum myndi
því ekki koma mér það mikið á
óvart, þótt vissulega fæli hún í sér
tímamót.
Ég held að ástæðan fyrir því
að vægi spurningarinnar um líf á
öðrum hnöttum hafi minnkað sé
þó ekki endilega sú að málið þyki
ekki nógu merkilegt lengur, heldur
er ástæðan mun fremur fólgin í
því, að sú tilfinningin er fjarska
útbreidd að lífið á þessum hnetti sé
nógu erfitt og mikil ráðgáta fyrir.
Af þessum sökum er það táknrænt
að á föstudaginn skyldi maður í leit
að geimverum enda með að keyra
á kú. Lífið á þessum hnetti varð
honum fyrirstaða.
Sjáiði til. Hver þarf geimverur
þegar maður hefur Donald Trump?
Er ekki nógu erfitt að skilja lands-
byggðarfólk í miðríkjum Banda-
ríkjanna og þeirra hugsanakerfi?
Er það að Boris Johnson sé forsætis-
ráðherra í Bretlandi ekki fyllilega
sambærilegt við það að geim-
vera væri það? Og hingað heim:
Þegar maður heldur að maður sé
nokkurn veginn búinn að átta sig á
sínu nærumhverfi, dúkkar þá ekki
ríkislögmaður í Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu upp kollinum
með illskiljanlega greinargerð
þar sem öllum kröfum um bætur
vegna gríðarlegs óréttlætis sem
saklaust fólk hefur mátt þola af
hálfu ríkisins er hafnað. Það er
engu líkara en greinargerðin og
embættið komi frá öðrum hnetti
þar sem allt aðrir hlutir hafa gerst.
Hugar annarra
Sífellt skal maður minntur á
það í stóru sem smáu að aðrir
heimar eru allt í kringum mann. Í
hugum annarra og hegðun þeirra
birtast ráðgáturnar ljóslifandi.
Þótt mannkynið hafi líklega
aldrei verið jafntengt og aldrei
jafnauðvelt að sameina gríðar-
legan fjölda fyrir framan tölvur
og sjónvarpstæki, þá er hitt líka
afskaplega áberandi sem einkenni
á okkar samtíma, að út um allt er
fólk í sínum búbblum og hólfum,
aðskilið frá öðrum. Heilu þjóð-
félögin skiptast í hópa sem geta
með engu móti talast við. Gréta
Thunberg sér enga ástæðu til að
tala við Trump. Hann býr í öðrum
veruleika en hún, án talsambands.
Niðurstaðan? Jú, líf á öðrum
hnöttum má bíða aðeins. Það er
nóg af geimverum hér.
Hver þarf geimverur
þegar maður hefur Donald
Trump?
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust™
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Líf á öðrum hnöttum
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
2
3
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-F
D
2
4
2
3
D
6
-F
B
E
8
2
3
D
6
-F
A
A
C
2
3
D
6
-F
9
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K